Tíminn - 02.06.1977, Side 21
Fimmtudagur 2. jdni 1977.
21
lesendur segja
Er tekjuskattur
almennur skattur?
Ef skattskrár eru athugabar
og haföir I huga undirskriftalist-
ar frá Bolungarvfk, Borgarnesi
og Hverageröi áriö 1975 er svar-
iö liklega nei. Þaö hefur einnig
veriö mikiö talaö um tekjuskatt
einstaklinga undanfarin ár sem
launamannaskatt. Væntanlega
þess vegna hefur skattalögun-
um veriö breytt á s.l. 3 árum
beinlfnis gagnvart þeim ein-
staklingum, sem eru meö sjálf-
stæöan atvinnurekstur eöa
sjálfstæöa starfsemi þannig:
t fyrsta lagi segir f 4. gr. laga
nr. 10/1974 frá Alþingi: „1
reglugerö skal tryggja eftir
föngum, aö skattafsláttar njóti
ekki þeir, sem skattlausir eru
vegna afskrifta eöa annarra
hliöstæöra ástæöna”.
t ööru lagi segir f 9. gr. laga
nr. 11/1975 frá Alþingi: „Hjá
þeim skattþegnum, sem heimilt
væri aö beita ákvæöum 4. mgr.
23. gr. laga nr. 8/1972 um tekju-
stofna sveitarfélaga, skal
hækka framangreindar vergar
tekjur til skatts á þann veg, er
þar um ræöir.”
I þriöja lagi segir í 9. gr. laga
nr. 20/1976 frá Alþingi: „Hjá
þeim skattþegnum, sem vinna
viö eigin atvinnurekstur eöa
sjálfstæöa starfsemi, skal, áöur
en ákvæöum 3. mgr. er beitt,
hækka vergar tekjur til skatts
um þá upphæö, sem tekjur af
þessum störfum eru lægri en
ætla má aö laun þessara aöila
mibaö viö vinnuframlag þeirra
heföu oröiö, ef þeir heföu unniö
starfiö f þágu óskylds aöila”.
Eitthvaö hafa þessar reglur
þótt gallaöar, fyrst þær eru í
nýjum búningi ár eftir ár, og nú
er komin 4. útgáfan, þvi aö f
nýja skattalagafrumvarpinu
segir í 1. tl. 7. gr. „Vinni maöur
viö eigin atvinnurekstur eöa
sjálfstæöa starfsemi skal hann
telja sér til tekna eigi lægra
endurgjald fyrir starf sitt en
heföi hann innt þaö af hendi viö
óskyldan eöa ótengdan abila”.
Aberandi er í öllum þessum
tilvikum, aö þar segir „skal”.
Vilji Alþingis er ótvfræöur f
þessu sambandi. Vissulega eru
ofangreindar 3 fyrstu til-
vitnanirnar lög og því f sam-
ræmi viö stjórnarskrá vora 77.
gr. „Skattamálum skal skipa ab
lögum”. Þess vegna ættu
ákvæöin aö standast og er tæp-
lega unntaö ganga fram hjá svo
ákveönum vilja Alþingis I lög-
um. Sjálfsagt er fyrir hendi hjá
þeim, sem semja ofangreindar
regiur einhver tölfræöileg úttekt
á þvf, aö einstakiingar f at-
vinnurekstri borgi hlutfallslega
færri og lægri tekjuskatt en
launþegar, ella væru þessar
reglur ekki settar. Eöa ef til vill
er veriö aö segja meö þeim, aö
frádráttarliöir séu of miklir hjá
einstaklingum f atvinnurekstri
eöa eigin nota blandist of mikiö
saman viö raunverulegan rekst-
ur eöa aö tekjur komi ekki aö
fuliu fram hjá einstaklingum I
atvinnurekstri.
Talab hefur veriö um, aö fjár-
mögnun samneyzlunnar þyrfti
aö vera almenn, svo aö hún telj-
ist vera réttlát. Má nefna, aö út-
svarsálagning er þaö almenn,
aö fáir kvarta undan útsvars-
álagningu, t.d. lentu 1480 ein-
staklingar i útsvari 1976 en 892 I
tekjuskatti f einu sveitarfélagi. 1
ööru ientu 492 i útsvari en 300 f
tekjuskatti og I þvf þriöja fengu
175 útsvar en 91 tekjuskatt. Út-
svar er greinilega miklu al-
mennari skattur en tekjuskatt-
ur. Sölugjaid borgum viö dag-
lega f viöskiftum hvers og eins.
Þaö er því almennur skattur.
En þaö eru fleiri en einstakl-
ingar, sem geta boriö tekju-
skatt. Þar koma til hvers konar
félög, svo sem hlutafélög, sam-
eignarfélög, samlög, samvinnu-
félög, sjóöir, félög og stofnanir,
sem fariö hafa út I atvinnu-
rekstur eöa eru ekki undanþegin
skattskyldu skv. lögum. Þetta
eru framteljendur lfka, og þaö
viröist eölilegt, aö allir fram-
teljendur taki sem jafnastan
þátt í þvf aö fjármagna sam-
neyzluna, hvort sem um er aö
ræða félag eöa einstakling
(launþega eöa atvinnurek-
anda). En þá kemur f ljós, aö
frekar fá félög hlutfallslega
bera tekjuskatt og reyndar
kemur fram, aö ýmsir stórir
rekstraraðilar bera almennt
mjög lág gjöld, þ.e. borga hlut-
fallslega lftiö til samfélagsins,
mibab viö umfang rekstursins,
sbr. einnig úrtökur Ragnars
Arnalds þingmanns. Att er vib
álagningu skv. skattskrá. Þótt
framteljandi, féiag eöa ein-
stakiingur velti um 2.000.000.000
krónum á ári og borgi skv.
skattskrá 20.000.000 krónur f
opinber gjöld, getur þaö tæpiega
talizt þung álagning hlutfalls-
lega, 1% af veltu, en unnt er aö
finna launþega f skattskrám,
sem borga um 40% af tekjum
sinum til hins opinbera. Þarna
bera framteljendur hlutfalls-
lega mjög misþung gjöid. (Fóik
getur auðveldlega kynnzt veltu
framteljenda út frá álögöu aö-
stööugjaldi og auglýstri ab-
stööugjaldsprósentu f aöalatriö-
um, sölugjaldi hefur þá veriö
sleppt). Þessir stóru rekstrar-
aöilar væru lftiö nær þrotum eöa
hallarekstri, þótt þeir væru
meiri þátttakendur i fjármögn-
un samneyzlunnar og nálguöust
eitthvaö meira en nú er þá hlut-
fallstölu I opinber gjöld, sem
ýmsir launþegar bera, þar á
meöal opinberir starfsmenn.
Fróölegt er annars aö bera
saman markmiöin I skattamál-
um, sem komu fram i stefnu-
skrá Tfmans fyrir 60 árum, og
skattskrár nú. Þar var talaö um
ab afla landinu tekna frekar
meb beinum sköttum en tollum.
Einnig segir þar, „aö eigna- og
tekjuskattur sé tekinn af stór-
eignum og háum tekjum, en fari
hækkandi i hlutfalli viö eigna-
og tekjumagniö, en þurftartekj-
ur séu þó ekki gjaldskyldar.”
Svo og segir þar, „aö veröhækk-
unarskattur sé lagöur á lönd og
lóöir, þar sem veröhækkunin or-
sakast bersýnilega af aögeröum
þjóöfélagsins, sýslu- og sveitar-
eöa bæjarfélags, svo sem viö
stórfelld áveitufyrirtæki eöa
dýrar samgöngubætur.”
Þessi markmiö eru merkilega
lik þeim, sem koma fram nú á
dögum i alrnennum kröfugerö-
um og væri áhugavert aö vita,
hvernig staöan veröur f þessum
málum eftir nokkra áratugi.
Launþegi.
Mannorðs-
veiðibj alla
Sandhóli 27. mai 1977
FIMMTUDAGSBLAÐ Timáns,
115. tölublaö útgefiö þann 26.
maf 1977 verður undirrituöum\
eftirminnilegt. A forsiðu er birt.
álit prófessors, er dregur i efá,
aö frétt frá mér i Timanum
deginum áöur um lambadráp sé
rétt. Um þaö er ekki nema allt
gott aö segja. En þegar maður
sér sumt, er þar er greint frá,
meö eigin augum, og i sjónhend-
ingu eru drepin lömb frá einum
bæ, tugi þúsunda aö verðmæti,
er ekki hægt aö véfengja frétt-
irnar. Einnig berast fréttir af
drápi viða aö, til dæmis frá
sjávarsiðunni austan viö
Stokkseyri, svo og hýstu bændur
féð, vegna ágengni svartbaks,
og þá er ekki aðalatriðiö að
menn hafi viö að trúa. Indverj-
ar eiga heilagar kýr, Islending-
ar heilagan svartbak.
En á 18. siðu þessa sama blaös
er i lesendadálki næsta furöuleg
ritsmið undir fyrirsögninni:
Hesturinn og maöurinn. Ég verö
að játa aö mér finnst næsta for-
kastanlegt aö slikur óþverri
skuli vera birtur, og þar aö auki
undir dulnefni. Þar eru hesta-
menn sagðir luralegir i fram-
komu og klæöaburöi. A frétta-
mynd frá vormóti sunnlenzkra
hestamanna, er meö þessum
óhróöri birtist, var fram-
kvæmdastjóri mótsins og knapi
nfddir niöur. Sföan er hesta-
mönnum er standa álengdar,
lýst sem algjörum dónum.
Þar sem ég er höfundur
þessarar fréttamyndar, ætla ég
að fara um þetta nokkrum orö-
um. Ég get ekki skilið ósköpin
sem ganga á út af þessari mynd.
A 4. síöu þessa sama blaðs er
ágæt fréttamynd, þar eru öll
atriöin, er fordæmd eru f þess-
ari niðgrein. Ætli siöapostuli og
leynipenni Tímans láti ekki i sér
heyra? En það er nokkuö lura-
leg framkoma og klæöaburður,
aö klæöast dulnefni, þora ekki
aö kannast viö sinar geröir, og
stunda þá iþrótt, sem sprottin er
af illgirni og öfund, og vera
manna liklegastúr, að vera i
vösum annarra manna.
Ég er ekki aö biðjast griöa,
eöa mótmæla þvi sem um mig
er sagt. En ég mótmæli af
innsta hjartans grunni, aö þeir
sem þarna eru niddir niöur,
skuli vera athugasemdalaust i
klónum á þessari mannorös-
veiöibjöllu.
Páll Þorláksson.
BÁTAVÉLAR
Getum afgreitt með stuttum fyrirvara
Mercraft bátavélar i stærðum frá 50 hest-
öfl til 180 hestöfl. Gott verð. Viðgerðar- og
vara hlutaþ jónusta.
Eigum til afgreiðslu strax 80 hestafla vél
með gir- og skrúfuútbúnaði.
Tryggvagata 10 Sími 21915 — 21286
P O Box 5030 Reykjavík
FÉLAGSSTARF
dácvhocgjasa
Sumarstarfið er að hefjast og verður bæði
farið i orlofs'ferðir og eins dags ferðir,
eins og undanfarin sumur.
Orlofsferðir.
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
efnir til sumardvalar fyrir aldraða að
Löngumýri i Skagafirði i samvinnu við
Hjálparstofnun kirkjunnar.
Farið verður i 12 daga orlofsferðir, þann
13. júni, 27. júni, 11. júill, 25. júli og 5.
september.
Eins dags ferðir.
Ennfremur verða farnar 12 eins dags ferð-
ir, svo sem til:
Borgarfjarðar
Skálholts
Selfoss, Eyrarbakka, Stokkseyrar
Þingvalla, Laugarvatns
Gullfoss, Geysis
Grindavikur, Hafna, Reykjanesvita
og auk þess styttri ferðir um Reykjavik og
nágrenni. Hefjast þessar ferðir þann 20.
júni.
Allar nánari upplýsingar verða gefnar á
skrifstofu Félagsstarfs eldri borgara,
Tjarnargötu 11, kl. 9:00 til 12:00 f.h., simi
18800.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Vonarstræti 4 sími 25500
Orkustofnun
Orkustofnun óskar aðtaka á leigu nokkrar
jeppabifreiðir...
Upplýsingar i sima 2-88-28 frá kl. 9 til 10
næstu daga.