Fréttablaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 4
4 22. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
LÖGREGLUMÁL Mál tveggja ungra
pilta sem handteknir voru á Ísafirði
á laugardag grunaðir um að standa
að dreifingu á 85 grömmum af hassi
telst upplýst og hefur þeim báðum
verið sleppt.
Efnið sem drengirnir, sextán og
nítján ára, voru með við handtöku
var í sölueiningum, sem gaf lög-
reglu til kynna að þau væru fyrst
og fremst ætluð til sölu og dreifing-
ar á Vestfjörðum. - aöe
Teknir með hass á Ísafirði:
Fíkniefnamál
telst upplýst
Hellafræðingar farast Tveir ung-
verskir hellakönnuðir fórust í snjóflóði
í ítölsku Ölpunum í gær. Fólkið var í tíu
manna hópi hellafræðinga sem var að
kanna svæðið. Sjö þeirra sátu fastir í
helli eftir snjóflóðið, en sá tíundi slapp
lítið meiddur. Unnið var að björgun
fólksins úr hellinum í gær, en mikil
snjókoma hefti aðgerðir.
ÍTALÍA
FRAMKVÆMDIR „Skipulags- og
byggingamálanefnd fundar
í kvöld og þar verður fram-
kvæmdarleyfi væntanlega veitt
fyrir kalkþörungaverksmiðjuna
á Bíldudal,“ sagði Guðmundur
Guðlaugsson, bæjarstjóri í Vest-
urbyggð, í gær.
„Þá verður hafist handa við
framkvæmdirnar sennilegast á
morgun,“ bætti hann við.
Áætlað er að hægt verði að
hefja störf í verksmiðjunni
seinnipart sumars. Búið er að
kaupa öll framleiðslutæki og
einnig stálgrindarhús sem skellt
verður upp yfir framleiðsluna.
-jse
Kalkþörungar á Bíldudal:
Starfsemi gæti
hafist í sumar
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 21.2.2006
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
Bandaríkjadalur 63,9 64,2
Sterlingspund 111,44 111,98
Evra 76,1 76,52
Dönsk króna 10,196 10,256
Norsk króna 9,449 9,505
Sænsk króna 8,109 8,157
Japanskt jen 0,5377 0,5409
SDR 91,71 92,25
Gengisvísitala krónunnar
106,9487
SERBÍA-SVARTFJALLALAND, AP Ratko
Mladic, fyrrverandi hershöfðingi
Bosníu-Serba og einn þeirra eftir-
lýstu stríðsglæpamanna úr Balk-
anskagastríðunum á síðasta ára-
tug sem mest áhersla hefur verið
lögð á að handsama, er fundinn og
stjórnvöld í Belgrad eru að semja
um að hann gefi sig fram. Þetta
tjáði háttsettur fulltrúi öryggis-
málayfirvalda AP-fréttastofunni í
gær.
Vitað er hvar Mladic er niður
kominn „en hann hefur enn ekki
verið handtekinn“ sagði fulltrúinn,
sem ekki vildi láta nafns síns getið
þar sem hann hafði ekki heimild til
að tjá sig um málið við fjölmiðla.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar í
Belgrad neituðu því hins vegar í
gærkvöld að tekist hefði að hand-
sama Mladic. Áður hafði ríkis-
fréttastofan Tanjug sagt frá því að
Mladic væri í haldi og verið væri
að flytja hann til bandarískrar
herstöðvar í Tuzla í austanverðri
Bosníu. Þaðan yrði flogið með hann
til Haag í Hollandi þar sem hann
yrði framseldur til Stríðsglæpa-
dómstóls Sameinuðu þjóðanna.
Fréttir af málinu voru mjög
misvísandi í gær. Srdjan Djuric,
talsmaður Vojislavs Kostunica
forsætisráðherra, sagði að Mladic
hefði ekki verið handtekinn. Hann
sagði frétt Tanjug tóman tilbúning,
ætlaðan til að spilla fyrir tilraun-
um til að handtaka hinn eftirlýsta.
- aa
Hinn eftirlýsti meinti stríðsglæpamaður Ratko Mladic:
Handtaka sögð á næsta leiti
KARADZIC OG MLADIC Radovan Karadzic,
leiðtogi Bosníu-Serba, og Ratko Mladic
hershöfðingi á meðal sinna manna í Bosn-
íustríðinu. Þeirra er beggja ákaft leitað.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KASAKSTAN, AP Leyniþjónusta
Kasakstans upplýsti í gær að fimm
starfsmenn hennar væru meðal
þeirra sex sem handteknir hefðu
verið vegna gruns um aðild að
morði á stjórnarandstöðuleiðtoga.
Nursultan Nazarbajev, for-
seti landsins, hét því að hver sem
ábyrgur væri fyrir morðinu myndi
fá „hörðustu refsingu“.
Báðar þessar yfirlýsingar komu
eins og svar við ásökunum um að
stjórnvöld hefðu verið viðriðin
morðið á Altynbek Sarsenbayev,
formanns Nagyz Ak Zhoi-flokksins,
hinn 11. febrúar. Hann var annar
áberandi stjórnmálamaðurinn úr
stjórnarandstöðunni í Kasakstan
sem lætur lífið með voveiflegum
hætti á þremur mánuðum. ■
Pólitísk morð í Kasakstan:
Leyniþjónustu-
menn í haldi
MORÐUM MÓTMÆLT Við útför Sarsan-
bayevs beindu margir sök að forsetanum
Nazarbajev. NORDICPHOTOS/AFP
Úr öndunarvél Sjómaður sem
slasaðist um borð í skipinu Frera RE
miðvikudaginn 8. febrúar er laus úr önd-
unarvél. Sérfræðingur á gjörgæsludeild
sjúkrahússins í Fossvogi segir ástand
hans stöðugt og hann sé á batavegi.
Sjómaðurinn fékk gilskrók í andlitið og
brotnaði illa.
SLYSFARIR
ALÞINGI Össur Skarphéðinsson
alþingismaður var ávíttur á þingi
í gær í fyrsta skipti á fimmtán ára
þingferli sínum.
Össur lét þau ummæli falla að
ákvörðun Davíðs Oddssonar og
Halldórs Ásgrímssonar um aðild
Íslands að innrásinni í Írak hefði
verið bæði lögleg og siðlaus.
„Það kom mér á óvart að forseti
gerði athugasemdir við þetta. Svip-
uð ummæli hef ég mörgum sinn-
um látið falla, og aðrir þingmenn
tekið dýpra í árinni,“ segir Össur
á vefsíðu sinni og kveðst ekki erfa
þetta. - ghs
Össur Skarphéðinsson:
Ávíttur í fyrsta
skipti á þingi
Bætur frá vinnuveitanda Fyrrver-
andi húsverði Gistiheimilisins Ásgarðs
voru í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdar
1,4 milljónir í bætur auk vaxta vegna
vinnuslyss sem rekja mátti til vinnupalls
sem vinnuveitendur hans útveguðu til
að mála gistiheimilið.
DÓMSMÁL
SAKAMÁL „Íslenskir starfsmenn
okkar, sem eru tveir um þessar
mundir, eru að koma heim frá El
Salvador út af þessu máli,“ segir
Lárus Elíasson, framkvæmda-
stjóri Enex.
Jón Þór Ólafsson, sem myrt-
ur var þar í landi fyrir rúmri
viku, starfaði fyrir fyrirtækið.
„Þeir munu fara aftur út en við
viljum þó hittast hér heima og
endurmeta stöðuna en fara síðan
og vinna okkur út úr þessu. Við
erum samningsbundnir með þetta
verkefni svo við verðum bara að
standa skil á því
hvort sem okkur
líkar betur eða
verr.“
Enex er að
smíða tvívökva-
stöð fyrir jarð-
v a r m a f y r i r -
tækið La Geo.
„ H a g s m u n i r
La Geo vegna
okkar framkvæmda eru kannski
ekki svo miklir. Það eru mörg
erlend fyrirtæki að vinna að stór-
um verkefnum þarna og margir
verða óöruggir um sinn hag þegar
svona voðaatburður verður. Þetta
mál er því mjög vandasamt fyrir
þá sem hagsmuni eiga að gæta í El
Salvador,“ bætir hann við.
Jose Salvador Chiquillo, upp-
lýsingafulltrúi La Geo, segir að
25 erlendir starfsmenn starfi við
verkefni á vegum fyrirtækisins í
landinu. „Ég skil það mjög vel að
starfsmenn Enex vilji staldra við
og hugsa málið. Við leggjum hins
vegar áherslu á að verkið tefjist
ekki en því á að vera lokið í desem-
ber. Við höfum átt góð samskipti
við utanríkisráðuneyti Íslands
um þetta mál. Við erum einnig
boðnir og búnir að endurskoða
öryggismál okkar en þetta er í
fyrsta skipti sem eitthvað þessu
líkt hendir. Vissulega er erfitt að
tryggja öryggi starfsfólks þegar
það er í sínum helgarfríum en ef
gerð verður krafa um slíkt erum
við tilbúnir að ræða það. Svo vilj-
um við votta fjölskyldu Jóns Þór
alla okkar samúð,“ segir hann.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins náðu ættingjar Jóns Þórs
í jarðneskar leifar hans í líkhúsið
í Santa Ana á laugardag. Aðrar
heimildir þaðan herma að Enex
hafi kært Einar Sveinsson, eig-
inmann ræðismanns Íslands í El
Salvador, fyrir að taka sér stöðu
sem ræðismaður í þessum máli.
Morðið fékk mjög á þarlenda
samstarfsmenn Jóns Þórs og
hafa þeir þegar haldið minningar-
athöfn. jse@frettablaðið.is
Kalla Íslendingana
heim frá El Salvador
Íslensku starfsmennirnir tveir hjá Enex í El Salvador eru á leiðinni heim. Ætt-
ingjar Jóns Þórs náðu í jarðneskar leifar hans í Santa Ana um helgina. Fulltrúi
La Geo vottar fjölskyldu Jóns Þórs samúð. .
ó
GVATEMALA
HONDÚRAS
EL SALVADOR
San Salvador
Santa Ana
Farþegum Strætó fjölgaði Farþeg-
um með vögnum Strætó bs fjölgaði í
janúar um 6,9 prósent. Í janúar í fyrra
voru þeir tæplega 730 þúsund en í ár
voru þeir tæplega 780 þúsund talsins.
Mest var fjölgunin hjá þeim sem nota
fargjaldakort.
SAMGÖNGUR
VETTVANGUR GLÆPSINS Jón Þór og Brenda
fundust látin í vegkanti skammt frá Santa
Ana.
JÓN ÞÓR ÓLAFSSON
EL SALVADOR Ættingjar Jóns Þórs sóttu jarðneskar leifar hans í líkhúsið í Santa Ana um
helgina. Samstarfsmenn Jóns Þórs hafa þegar haldið um hann minningarathöfn.