Fréttablaðið - 22.02.2006, Side 26
MARKAÐURINN
Virði Landsbanka Íslands er
312 milljarðar króna sam-
kvæmt nýju verðmati greining-
ar Íslandsbanka. Jafngildir það
þrjátíu krónum á hlut og hækkar
úr tuttugu og einni krónu frá
síðasta verðmati.
Gengi bréfa í Landsbankanum
höfðu lækkað um rúm fjögur pró-
sent laust fyrir klukkan þrjú í
gærkvöld og stóðu bréf í félaginu
í tuttugu og níu krónum á hlut.
Markaðsvirði bankans er sam-
kvæmt því rúmir 324 milljarðar
króna.
Greiningardeild Íslandsbanka
mælir með því að fjárfestar haldi
í bréf í Landsbankanum þegar
litið er til lengri tíma. - jsk
G E N G I S Þ R Ó U N
22. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Vika Frá áramótum
Actavis Group 6% 14%
Alfesca 2% 0%
Atorka Group -1% -4%
Bakkavör Group 1% 3%
Dagsbrún 12% 9%
Flaga Group 2% -16%
FL Group 4% 42%
Íslandsbanki 4% 29%
KB banki -2% 31%
Kögun 1% 6%
Landsbankinn 5% 21%
Marel 0% 0%
Mosaic Fashions 1% -4%
Straumur -1% 30%
Össur 6% -4%
*Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Lysing_silfurfat_5x100mm
Við viljum að þú náir árangri
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
H
in
rik
P
ét
ur
ss
on
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
“Vi› vitum a› me› réttum tækjum og tólum
eiga vi›skiptavinir okkar meiri möguleika a›
ná árangri í sinni starfsemi. Okkar markmi›
er a› a›sto›a flá til gó›ra verka enda vitum
vi› velgengni okkar byggist á velgengni
vi›skiptavinanna.“
Gu›rí›ur Ólafsdóttir
Yfirma›ur fyrirtækjasvi›s
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Eigendur Daníels Ólafssonar ehf., sem rekur heild-
sölufyrirtækið Danól, hafa ákveðið að selja fyrir-
tækið og allar eignir þess, þar með talda Ölgerðina
Egil Skallagrímsson ehf. Félögin verða seld saman
eða hvort í sínu lagi að því gefnu að ásættanlegt
kauptilboð berist, en sölumeðferðin er í höndum
MP Fjárfestingarbanka. Áætlað er að salan taki um
sex vikur.
Rekstur Danól og Ölgerðarinnar er sagður hafa
gengið mjög vel undanfarin ár og árið 2005 sagt það
besta í rekstri beggja fyrirtækja frá upphafi. „Velta
Danól hefur vaxið jafnt og þétt og var 2,3 milljarðar
2005. Ölgerðin hefur vaxið um 50 prósent frá því í
janúar 2002 og var velta fyrirtækisins í fyrra um
5,5 milljarðar,“ segir í tilkynningu.
Einar Friðrik Kristinsson, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Danól í 42 ár, lætur af störfum þegar
fyrirtækið verður selt. „Ég hef verið lengi í þessum
rekstri og finnst kominn tími til að draga mig í hlé.
Nú eru góðar aðstæður til að selja enda margir fjár-
sterkir aðilar sem hafa bolmagn til að kaupa. Við
viljum koma fyrirtækjunum í hendur traustra aðila
sem geta haldið uppbyggingu rekstrarins áfram og
tryggt starfsfólkinu öruggt starfsumhverfi,“ segir
hann.
Danól er eitt stærsta innflutnings- og dreifing-
arfyrirtæki, en það sinnir innflutningi og mark-
aðssetningu á mat- og sérvöru fyrir verslanir,
bakarí og stóreldhús. Meðal vörumerkja Danól eru
Merrild, Nestlé, Nescafé, Duni, Neutral, Oroblu,
Quality Street, KitKat og After Eight.
Danól er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað
árið 1932, en eigendur þess eru hjónin Einar Friðrik
Kristinsson framkvæmdastjóri og Ólöf Októsdóttir.
Hjá fyrirtækinu starfa um 60 manns.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson var hins vegar
stofnuð árið 1913, en hefur verið í eigu Danól frá
því vorið 2002. Hjá Ölgerðinni starfa um 130 starfs-
menn og starfstöðvar eru víða um land. Ölgerðin
framleiðir, flytur inn, dreifir og markaðssetur
gosdrykki, vatn, öl, bjór, léttvín, sterkt áfengi og
snakk. Meðal vörumerkja Ölgerðarinnar eru Egils
Malt og Egils Appelsín, Pepsi, Kristall og Kristall
Plús, Rosemount, Egils Gull, Tuborg, Brennivín,
Smirnoff, Gatorade og Doritos.
Danól og Ölgerðin til sölu
Danól hefur verið sett í sölu ásamt Ölgerðinni Agli Skalla-
grímssyni. MP Fjárfestingarbanki sér um söluna sem taka á
einn og hálfan mánuð.
Kögun skilaði 636 milljóna króna
hagnaði á síðasta ári. Uppgjörið
er heldur undir væntingum
markaðarins sem hafði reiknað
með 270 milljóna króna hagnaði
á fjórða ársfjórðungi en raunin
varð 202 milljónir.
Félagið óx gríðarlega á
nýliðnu ári í tengslum við yfir-
tökur. Þannig hækkuðu rekstr-
artekjur um 253 prósent og
voru um 12,5 milljarðar króna.
Reksturinn einkenndist af góðri
arðsemi af hugbúnaðarhlutanum
sem sýndi 17,3 prósenta fram-
legð. Velta vélbúnaðarhlutans
var hins vegar undir vænting-
um stjórnenda Kögunar og sýndi
aðeins 3,3 prósenta framlegð.
Arðsemi Kögunarsamstæðunnar
á Íslandi er mun betri en á
Norðurlöndunum.
Jafnframt hefur verið greint
frá því að dótturfélag Exista hafi
keypt tíu prósenta hlut í Kögun
af KB banka. Kaupverðið var um
1.264 milljónir króna. Síminn,
sem er stærsti hluthafinn í Kögun
með um 27 prósenta hlut, er að
stærstum hluta í eigu Exista. - eþa
Kögun heldur
undir væntingum
Við annan tón kveður í nýlegri
skýrslu JP Morgan um stöðu
íslensku bankanna en heyrst
hefur frá öðrum erlendum grein-
ingaraðilum á borð við Credit
Sights og Barclays Capital að
undanförnu.
JP Morgan álítur að fjárfest-
ar hafi ofmetið áhættuþætti í
rekstri viðskiptabankanna og
því sé álag á skuldabréf bank-
anna of hátt samanborið við
ríkissjóð. Kauptækifæri liggi í
skuldabréfum íslenskra banka
eftir að fjárfestar hafi losað sig
við þau bréf sem hafi leitt til
hækkandi ávöxtunarkröfu.
Í skýrslunni segir að fjár-
festar hafi velt gaumgæfilega
fyrir sér innbyggða áhættu
innan íslensku bankanna, hraðri
útþenslu og stöðugleika í rekstr-
inum til lengri tíma. JP Morgan
telur að þótt eðlilegt sé að velta
vöngum yfir þessum þáttum
hafi fjárfestar ofmetið þá og
gert það að verkum að lang-
tímasjónarmið hafi haft of mikil
áhrif á verðmyndun skuldabréfa
til skemmri tíma.
Skýrsluhöfundar segja að
núverandi staða geti ekki staðist
til lengdar nema ef aðstæður til
skemmri tíma breytist til verri
vegar. - eþa
Áhættuþættir í rekstri
bankanna ofmetnir
Hagnaður Frjálsa fjárfestingar-
bankans var 573 milljónir króna
á síðasta ári og jókst um tíu pró-
sent á milli ára. Arðsemi eigin
fjár var um sautján prósent.
Hreinar vaxtatekjur drógust
saman um tæp 27 prósent, þrátt
fyrir að útlán hafi tvöfaldast,
og námu 644 milljónum króna.
Skýrist það af minnkandi vaxta-
mun sem lækkaði í 2,4 prósent úr
4,3 prósentum. Gengishagnaður
af fjármálastarfsemi og
góð afkoma dótturfélagsins
Fasteignafélagsins Hlíðar juku
mjög aðrar rekstrartekjur.
Framlag í afskriftarreikning
dróst saman um fimmtung á milli
ára og nam 82 milljónum króna.
Efnahagsreikningur Frjálsa,
sem er dótturfélag SPRON, þand-
ist út um 112 prósent og voru
eignir metnar á 37,5 milljarða í
árslok. - eþa
Útlán Frjálsa fjárfestingar-
bankans tvöfölduðust
Vaxtatekjur drógust saman um tæp 27 prósent
þrátt fyrir að útlán hafi tvöfaldast.
HÖFUÐSTÖÐVAR LANDSBANKANS
Íslandsbanki hefur gefið út verðmat á
Landsbanka og mælir með því að fjárfestar
haldi í bréf sín til lengri tíma.
Landsbankinn 312
milljarða króna virði