Fréttablaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 30
MARKAÐURINN 22. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR6
Ú T L Ö N D
Afríkuríki tapa á hverju ári rúmum níu þúsund
milljörðum íslenskra króna vegna spillingar, segir
Olusegun Obasanjo forseti Nígeríu. Samkvæmt
því fer rúmlega fjórðungur tekna Afríkuríkja
beint í vasa spilltra embættismanna.
Þetta kom fram í ræðu forsetans á ráðstefnu
Sambands Afríkuríkja, þar sem Nígería er í
forsæti. Obasanjo sagði olíuiðnað og náma-
gröft verða verst úti en benti á að
Vesturlönd gætu ekki þvegið
hendur sínar af spillingu.
„Vesturlönd eiga ekki
minnstan þátt í þessu.
Þar valsa glæpa-
menn inn og út úr
fjármálastofn-
unum með illa
fengið fé undir
h ö n d u m .
Yfirvöld gera
ekki nokkra
tilraun til
að grípa í
taumana.“
Obasanjo lofaði jafnframt
að berjast gegn spillingu í
heimalandi sínu, Nígeríu,
sem margsinnis hefur
orðið í efsta sæti á list-
um alþjóðastofnana yfir
spilltustu lönd veraldar.
„Þessir menn eru ekki beinlín-
is innblásnir af samfélagsanda
og náungakærleik; þeir stinga
undan fé og lifa í vellysting-
um meðan landar þeirra
hafa hvorki aðgang að
heilbrigðisþjónustu né
menntun.“ -jsk
Níu milljarðar í súginn
Fjórðungur tekna Afríkuríkja fer í vasa spilltra embættis-
manna. Vestrænir bankar spila með segir Nígeríuforseti.
OLUSEGUN OBASANJO
N Í G E R Í U F O R S E T I
Forsetinn hefur skorið
upp herör gegn spill-
ingu. Hann segir ríki
Afríku tapa níu millj-
örðum króna árlega
vegna spillingar.
Líklegt er að heimsmarkaðs-
verð á súkkulaði komi til með
að hækka á næstunni vegna
aukinnar eftirspurnar frá Asíu.
Eftirspurn eftir súkkulaði
hefur aukist um þrjátíu pró-
sent í Kína síðasta árið og um
rúm tuttugu og fimm prósent í
Indlandi og Indónesíu. Markaðir
í Bandaríkjunum og Evrópu eru
hins vegar mettir.
„Ef fram heldur sem horfir
og eftirspurn í Asíu og Austur-
Evrópu heldur áfram að aukast,
má reikna með að eftirpurn eftir
súkkulaði verði mun meiri en
framboð eftir tíu til fimmtán
ár,“ sagði Patrick de Maeseniere,
forstjóri svissneska framleið-
andans Barry Callebaut, í viðtali
við Financial Times.
Verð á helstu hráefnum til
súkkulaðigerðar hefur hækk-
að hratt undanfarin misseri.
Kílóverð á heslihnetum hefur til
að mynda þrefaldast á tveimur
árum. Mestu munar þó um kakó-
ið sem tekið er upp á fimm ára
fresti og því erfitt að bregðast
við skorti. -jsk
Súkkulaði vinsælt í Asíu
Eftirspurn eftir súkkulaði í Asíu hefur aukist
gríðarlega. Evrópumenn eru mettir.
SÚKKULAÐI FRÁ HAFLIÐA RAGNARSSYNI SÚKKULAÐIMEISTARA Ef fram heldur
sem horfir verður skortur á súkkulaði eftir tíu til fimmtán ár.
Olíuverð hækkaði snarlega um
rúman bandaríkjadal á fat eftir
að fréttir bárust af truflunum á
framleiðslu í Nígeríu. Nígería
er áttundi stærsti útflytjandi
olíu í heiminum.
Hækkanirnar urðu í kjöl-
far þess að níu olíuverkamenn
voru teknir í gíslingu eftir árás
á olíuframleiðslustöð við árósa
Níger. Í yfirlýsingu frá MEND-
Skæruliðahreyfingunni, sem
berst fyrir að svæði við bakka
Níger verði gert að sjálf-
stjórnarsvæði, tók hreyfingin
fulla ábyrgð á gíslatökunni.
Jafnframt kom fram að hreyf-
ingin hygði á eldflaugaárásir á
helstu olíuvinnslustöðvar.
Heimsmarkaðsverð á olíu
stendur nú í rúmum 61 dal á
fatið. -jsk
Skæruliðar
hækka
olíuverð
PAUL WOLFOWITZ HEIMSÆKIR
OLÍUVINNSLUSTÖÐ Í NÍGERÍA Mikil
ólga hefur verið kringum olíuvinnslu-
stöðvar í Nígeríu og truflanir á fram-
leiðslu tíðar. Árásir skæruliða ollu snörp-
um hækkunum á heimsmarkaðsverði á
mánudag.
MacDonalds-hamborgararisinn á
yfir höfði sér þrjár lögsóknir hið
minnsta, eftir að í ljós kom að
franskar kartöflur fyrirtækisins
innihéldu hveiti- og mjólkurvörur.
MacDonalds-sam-
steypan tilkynnti þann
þrettánda febrúar síð-
astliðinn að komið hefði
í ljós við efnagrein-
ingu að frönskurnar
innihéldu áðurnefndar
matvörur. Áður höfðu
þær verið taldar
herramannsmat-
ur fyrir
fólk með
h v e i t i o f -
næmi og
mjólkuróþol.
Hamborgararisanum hefur
meðal annars verið stefnt fyrir
rétt í Cook-sýslu í Illinois-fylki
og fer Debra nokkur Moffatt þar
fram á bætur vegna vítaverðs
gáleysis MacDonalds. „Debra
át frönskurnar í þeirri
trú að þær innihéldu
ekkert glúten. Annað
átti eftir að koma í
ljós,“ sagði lögfræð-
ingur Moffatt.
Glúten er prótín
sem finna má í
hveiti.
MacDonalds í lagaflækju
Franskar kartöflur frá MacDonalds innihalda
vörur sem valdið geta ofnæmisviðbrögðum.
MACDONALDSHAMBORG-
ARAKEÐJAN LÁTIN FINNA
FYRIR ÞVÍ Hamborgari í kassa.
Evrópski flugvélarisinn Airbus
og indverska ríkisflugfélagið
Indian hafa komist að sam-
komulagi um kaup Indian á
fjörutíu og þremur Airbus-
flugvélum. Kaupverð er tæpir
hundrað fimmtíu og fimm
milljarðar íslenskra
króna.
Airbus er að
áttatíu prósenta
hluta í eigu hins
franska EADS en
breska fyrirtækið
BEA á þau tuttugu prósent sem
eftir standa. Indian bar áður
nafnið Indian Airlines og hefur
um þrjátíu og þriggja prósenta
markaðshlutdeild í innanlands-
flugi í Indlandi.
Þetta verða fyrstu vélar sem
Indian kaupir í rúm fimmtán ár.
Samningaviðræður stóðu yfir í
um þrjú ár og munu Jacques
Chirac, forseti Frakklands, og
indverski forsætisráðherrann,
Manmohal Singh, undirrita
samningana. -jsk
Risastór flugvélasamningur
Indverska ríkisflugfélagið hyggst endurnýja flugvélaflota sinn.
Airbus hreppti hnossið.
AIRBUS A380 FLUGVÉL Airbus og Indian
hafa gert með sér risasamning. Indian
mun kaupa fjörutíu og þrjár Airbus-flug-
vélar á rúma hundrað og fimmtíu milljarða
íslenskra króna.
Evrópusambandið (ESB) íhugar
nú að beita refsitollum á skó
sem framleiddir eru í Kína og
Víetnam og fluttir til landa sam-
bandsins. Talsmenn sambands-
ins segja skóna selda á undir-
verði í Evrópu.
Innflutningur á skóm frá
Víetnam til landa ESB jókst
um sjö hundruð prósent
á síðasta ári, um helm-
ingi minni aukning varð
á innflutningi frá Kína.
„Framleiðendurnir njóta
óhóflegra ríkisstyrkja og
geta af þeim sökum selt skó í
Evrópu á fáránlegu verði,“ sagði
Peter Power talsmaður ESB.
Líklegt þykir að tollar á inn-
flutta skó frá Kína og Víetnam
verði hækkaðir um tuttugu pró-
sent grípi yfirvöld í löndunum
ekki í taumana. -jsk
Asískir skór á undirverði
������������
������������������������������ ����������������������
���
�����
����
�����������������������������
����������� � ���������
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
SÍ
A
AR
G
U
S
06
-0
05
2
Við leggjum áherslu á
langtímasamband og
sérhæfðar lausnir sem taka
mið af sérstökum
aðstæðum og starfsumhverfi
viðskiptavina okkar.
SPH – fyrir þig og fyrirtækið!
Vildarþjónusta fyrirtækja
Greiðsluþjónusta – frí fyrsta árið
Hærri innlánsvextir
SPH innkaupakort þér að kostnaðarlausu