Fréttablaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 38
2
Í Grafarvogi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Framboð og fjölbreytileiki lána til
íbúðakaupa hefur aldrei verið hér
meiri. Haustið 2004 hóf KB banki
að bjóða íbúðalán á betri kjörum en
Íbúðalánasjóður, auk þess að lána
hærra hlutfall af íbúðarverðinu
og aðrar fjármálastofnanir fylgdu
í kjölfarið. Núna bjóða fjármála-
stofnanir upp á nokkrar tegundir
lána, sum með föstum vöxtum allan
lánstímann, önnur með endurskoð-
un vaxta á ákveðnu tímabili, þá eru
til óverðtryggð lán með breytileg-
um vöxtum og í flestum tilvikum er
gerð krafa um frekari viðskipti við
viðkomandi fjármálastofnun.
Íbúðakaup eru hins vegar í flest-
um tilvikum þau hin mestu kaup
sem fólk gerir á ævinni og borgar
sig að vanda til verksins. Þá rýkur
heldur enginn slyppur og snauður
út í næsta banka og fær 100 pró-
senta lán fyrir íbúð. Oftar en ekki
er gerð krafa um ákveðin viðskipti
við viðkomandi fjármálastofnun og
jafnvel að þau hafi staðið í einhvern
tíma. Þá þarf fólk að gangast undir
greiðslumat og komast ekki allir í
gegnum þá síu. Þó eru til undan-
tekningar frá reglunni um frekari
viðskipti tengd lánveitingum, líkt
og hjá Frjálsa fjárfestingarbank-
anum, sem á móti gerir ráð fyrir 2
prósenta uppgreiðslugjaldi. Algeng-
ustu vextir sem fjármálastofnanir
bjóða um þessar mundir eru 4,35
prósent þar sem lánuð eru 80 pró-
sent af kaupverði íbúðar til 25 til 40
ára. Svo er hægt að fá viðbótarlán
til skemmri tíma fyrir því sem upp
á vantar. Reyndar eru vextirnir hjá
Landsbanka og Íbúðalánasjóði 4,45
prósent. KB banki býður svo lægstu
vextina 4,15 prósent, en fólk bind-
ur þá lánstímann, 25 eða 40 ár og
greiðir 2 prósenta uppgreiðslugjald
kjósi það að greiða upp lánið. Þá
er misjafnt eftir bankastofnunum
hvort einhver hámarksupphæð er
á láni eftir lánshlutfalli íbúðar.
Íslandsbanki veitir til að mynda
ekki 100 prósenta íbúðalán nema
upp að 20 milljónum króna.
Ragnheiður Jóhannesdóttir, hjá
útlánaþjónustu Íslandsbanka, seg-
ist frekar vilja kenna húsnæðislán
við fjölbreytileika en frumskóg þótt
vissulega sé fjöldi kosta í boði og
bendir á að hennar banki sé með
fimm tegundir húsnæðislána. „En
þau lán sem sem helst er verið að
taka í dag eru þessi verðtryggðu
húsnæðislán,“ segir hún og bætir
við að tekið sé á móti fólki gögnum
safnað og því hjálpað að meta stöð-
una í hverju tilviki fyrir sig. „Þetta
er mjög oft góður tímapunktur til
að staldra við og átta sig á eigin
stöðu, skuldum og hversu háa fjár-
hæð maður treystir sér til að leggja
mánaðarlega í afborgun af eigin
húsnæði.“
Frumskógur eða fjölbreytt lánakjör
Í boði er fjöldi leiða til að fjármagna íbúðarhúsnæðiskaup með lánum. Bankarnir bjóða lán á kostakjörum gegn frekari viðskiptum, líkt og spari-
sjóðirnir í samstarfi við íbúðalánasjóð.
Séð yfir Sóltún í Reykjavík þar sem í gangi voru byggingarframkvæmdir. Bankastofnanir hér
bjóða upp á marga kosti þegar kemur að fjármögnun íbúðarhúsnæðis og borgar sig að
skoða málin vel. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
■■■■ { húsnæði } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
KB banki býður upp á nýjungina KB
byggingalán en í því felst að búið
er að skeyta saman lóðakaupaláni,
framkvæmdaláni og KB íbúðaláni.
„Með þessu móti er verið að brúa
bilið frá því að hafist er handa við
nýbyggingu íbúðarhúsnæðis þar til
það er orðið veðhæft. Ekki er um
að ræða nýja vöru heldur er búið
að taka þrjár vörur og skella þeim
saman í eina til að gera ferlið allt
þægilegra og aðgengilegra fyrir
viðskiptavininn,“ segir Pétur Blön-
dal, sölustjóri í sölu- og markaðs-
deild KB banka. Pétur segir nýju
byggingalánin hafa mælst mjög vel
fyrir enda færist það í aukana að
fólk vilji byggja sjálft frá grunni.
Miðað við undirtektirnar sé líklegt
að sú þróun haldi áfram.
KB byggingalán býðst öllum ein-
staklingum sem eru að byggja til
eigin nota og standast útlánareglur
bankans, óháð búsetu þeirra. Lán til
lóðakaupa bera fimm prósent verð-
tryggða vexti og er lánað til fimm
ára en fyrsta greiðsla fer fram 2,5
árum frá töku lánsins. Lán til fram-
kvæmda ber breytilega og óverð-
tryggða vexti sem greiðast upp við
lok framkvæmda eða fokheldi. KB
íbúðalán bera svo 4,15 prósenta
verðtryggða vexti til viðskiptavina
KB banka og fæst hluti lánsins
þegar hús er fokhelt og afgangurinn
þegar eignin er fullbúin.
Pétur Blöndal, sölustjóri í sölu- og mark-
aðsdeild KB banka. Í KB byggingaláni er
búið að einfalda það ferli að byggja frá
grunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Þremur lánum skeytt saman
KB BANKI BÝÐUR NÚ UPP Á SÉRSTAKT LÁN FYRIR ÞÁ SEM
VILJA BYGGJA FRÁ GRUNNI.
Mest lesna
viðskiptablaðið
AUGLÝSINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA
Sa
m
kv
æ
m
t
fj
ö
lm
ið
la
kö
n
n
u
n
G
al
lu
p
o
kt
ó
b
er
2
00
5.