Fréttablaðið - 22.02.2006, Side 73

Fréttablaðið - 22.02.2006, Side 73
Forsala aðgöngumiða á tónleika belgísku rokksveitarinnar Deus hefst á fimmtudag. Eins og Frétta- blaðið greindi frá þann 3. febrúar mun sveitin halda tónleika á Nasa 6. apríl. Eru tónleikarnir liður í tónleikaferð sveitarinnar í tilefni af fjórðu plötu hennar, Pocket Revolution. Eftir tónleikana á Íslandi mun sveitin spila í Frakklandi 21. apríl. Deus sló í gegn með fyrstu plötu sinni, Worst Case Scenar- io, sem kom út árið 1994. Þar var meðal annars að finna lögin Suds & Soda og Hotellounge (Be the Death of Me), sem bæði nutu mikilla vinsælda. Næsta plata, In a Bar Under the Sea, kom út tveimur árum síðar og þótti held- ur myrkari en frumburðurinn. Á plötunni The Ideal Crash kvað síðan við léttari og poppaðri tón en áður. Kom hún út fyrir sex árum og allar götur síðan hafa aðdáendur Deus beðið spenntir eftir nýju efni frá þessari virtu rokksveit. Miðaverð á tónleikana er 2.500 krónur auk 200 kr. miðagjalds og fer miðasala fram í verslunum Skífunnar og á midi.is. ■ Miðasala að hefjast DEUS Rokksveitin Deus frá Belgíu heldur tónleika á Nasa 6. apríl. Getspakur gestur á visir.is vann ferð til San Francisco í Veð- bankaleik Vísis á dögunum. Efnt var til þessa skemmtilega leiks í tengslum við Íslensku tónlistar- verðlaunin sem Fréttablaðið var helsti styrktaraðilinn að. Í Veð- bankaleiknum var hægt að veðja á úrslitin. Sá getspakasti af öllum reyndist vera Birgir Aðalsteins- son en hann veðjaði á réttu úrslit- in í 11 verðlaunaflokkum af 17. Sem fyrr segir fékk Birgir að launum ferð til San Francisco, flug með Icelandair og 400 dali í farareyri frá Landsbankanum. Vann ferð til San Francisco HAPPASÆLL Viggó Ásgeirsson, forstöðumaður markaðs- og vefdeildar Landsbankans, afhenti Birgi Aðalsteinssyni verðlaunin. [ KVIKMYNDIR ] UMFJÖLLUN „Rauða hættan“ svokallaða tröll- reið bandarísku samfélagi á sjötta áratug síðustu aldar. Fremstur í flokki fór öldungardeildarþing- maðurinn Joseph McCarthy, sem lét fá tækifæri framhjá sér fara til að ausa olíu á eld vænisýki og tortryggni í garð náungans. Good Night, and Good Luck er byggð á sannri sögu Edwards Murrow og samstarfsmanna hans á frétta- stofu CBS sem spyrna við fótum og leyfa sér að draga áróðurinn í efa, þrátt fyrir þrýsting manna í æðstu stöðum sjónvarpsstöðvar- innnar sem óttast að missa bak- hjarl sinn (sem merkilegt nokk er álfyrirtæki að nafni Alcoa). Það er ekki tilviljun að tímabil sem kallað hefur verið „gullöld lýðskrumar- anna“, þar sem vegið var harka- lega að borgaralegum réttindum fólks og tjáningarfrelsi, er George Clooney yrkisefni á þessum tímum, til dæmis í ljósi Ættjarðar- laganna bandarísku (e. Patriot act) og þeirrar staðreyndar að sumir af áhrifamestu fjölmiðlum Banda- ríkjanna hafa viðurkennt að hafa gagnrýnislaust étið upp upplýsing- ar frá stjórnvöldum í aðdraganda Íraksstríðsins. Clooney sýnir, rétt eins og í fyrstu mynd sinni í leikstjórastól, Confessions of a dangerous mind, að hann hefur næmt auga fyrir uppbyggingu og formi. Myndin er stutt á mælikvarða nútímans (að minnsta kosti þeirra mynda sem yfirleitt eru tilnefndar til Óskars- verðlauna), en frásögnin er að sama skapi þétt. Myndin gerist svo til öll inni á fréttastofunni, en gömlum fréttamyndum - flestum þar sem McCarthy sjálfur kemur við sögu - er fléttað haganlega inn á milli til að skyggnast út fyrir hljóðverið. Svarthvítur liturinn skapar trú- verðuga stemmningu tíðarandans, sem snjöll notkun ljóss og skugga skerpir enn frekar á. Framvindan er allt að því mónótónísk, en reglu- lega brotin upp með frábærum djasstónlistaratriðum. David Strathairn er sem skap- aður í hlutverk Edward Murrow; meitlaðir andlitsdrættir og fumlaus hrynjandin í rödd hans leggjast á eitt og skapa eftirminni- lega persónu, sem þó er ekki kafað sérstaklega djúpt í. Clooney, sem eins og Strathairn er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt, er ágætur en er helst til eins- leitur leikari og hefur sýnt að það býr mun meira í honum sem leik- stjóra. Teymið úr fréttastofunni er vel úr garði gert en einna eftir- minnilegastur er Frank Langella í hlutverki sjónvarpsstjórans Willi- am Paley, sem hefur öðru fremur áhyggjur af áhorfi og að styggja ekki bakhjarlana. Það fer ekki á milli mála að Clooney er að ávarpa samtíma sinn. Skilaboð hans eru skýr og ná langt út fyrir Bandaríkin: Fjölmiðlar mega aldrei sofna á verðinum. En myndin er líka áfellisdómur yfir fjölmiðlum, sérstaklega sjónvarpi. Sagan er römmuð inn af ræðu sem Murrow flytur samstarfsmönnum sínum árið 1958, þar sem hann lýsir áhyggjum sínum yfir þróun sjónvarpsins og vannýttum mögu- leikum þess. Sé það til lítils eða einskis annars nýtt en að sýna for- heimskandi froðu er sjónvarp ekk- ert nema „vírar og ljós í kassa.“ Ef hann bara vissi. George Clooney spyr stórra spurninga og slær varla feilnótu í frábærri mynd um krefjandi og aðkallandi efni. Bergsteinn Sigurðsson Vírar og ljós í kassa GOOD NIGHT, AND GOOD LUCK (GÓÐA NÓTT, OG GANGI YKKUR VEL) LEIKSTJÓRI: George Clooney AÐALHLUTVERK: David Strathairn, George Clooney, Robert Downey jr., Patricia Clark- son og Frank Langella. Niðurstaða: Studdur af frábærum leikurum slær George Clooney varla feilnótu í mynd um krefjandi og aðkallandi efni. Hljómsveitin Benni Hemm Hemm heldur tónleika á Grand Rokk á fimmtudag. Þetta eru fyrstu tónleikar sveitarinnar eftir tveggja mánaða hlé. Frá því sveitin lék síðast á tónleikum hefur hún verið valin bjartasta vonin á Íslensku tón- listarverðlaununum, auk þess sem breiðskífa sveitarinnar var valin plata ársins í flokknum Ýmis tónlist. Benna Hemm Hemm til halds og trausts verður húsvíski trúba- dorinn Þórir, sem gaf nýverið út plötuna Anarchists are Hopeless Romantics. Miðaverð á tónleik- ana er 1.000 krónur og húsið verður opnað klukkan 22.00. Benni Hemm Hemm á Grand Rokk BENNI HEMM HEMM Hljómsveitin Benni Hemm Hemm heldur tónleika á Grand Rokk á fimmtudag. ����� - L.I.B. Topp5.com ����� - L.I.B. Topp5.com ����� - S.K. DV ����� - S.V. MBL ����� - M.M.J. Kvikmyndir.com VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM YKKUR HENTAR ZATHURA kl. 6 B.I. 12 ÁRA WALK THE LINE kl. 5.40 B.I. 12 ÁRA UNDERWORLD kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA FINAL DESTINATION kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA TRANSAMERICA kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 14 ÁRA MRS. HENDERSON kl. 5.45, 8 og 10.15 WALK THE LINE kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Tilnefningar til Óskarsverðlauna2 VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI 2 VIKUR Í RÖÐ UNDERWORLD kl. 5.45, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA ZATHURA m/íslensku tali kl. 3.40 og 5.50 B.I. 10 ÁRA ZATHURA m/ensku tali kl. 5.45 og 8 B.I. 10 ÁRA WALK THE LINE kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA SÝND Í Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.40, 8 og 10.10 BROKEBACK MOUNTAIN kl. 10.15 B.I. 12 ÁRA CHEAPER BY TE DOZEN 2 kl. 3.45 - LIB, Topp5.is - SV, MBL - ÓÖH DV ÆVINTÝRIÐ ER RÉTT AÐ BYRJA! FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI „...Zathura er frábær fjölskylduskemmtun, skemmtileg ekki aðeins fyrir börn og unglinga heldur einnig fyrir foreldra“ - DÖJ - kvikmyndir.com „..Zathura fínasta fjölskylduskemmtun sem býður eldri áhorfendum upp á ágætis afþreyingu og þeim yngri upp á saklausa ævintýra- og spennumynd“ -VJV Topp5.is S. S  Ó. MARGVERÐLAUNUÐ OG MÖGNUÐ MYND MEÐ FELICITY HUFFMAN ÚR DESPERATE HOUSEWIVES HLAUT GOLDEN GLOBE SEM BESTA MYND ÁRSINS, BESTI LEIKARI OG LEIKKONA ÁRSINS tilnefningar til Óskarsverðlauna M.A. BESTI LEIKARI OG BESTA LEIKKONA ÁRSINS5 „... Walk the Line er eins og klettur, sterk ástarsaga og mannlífsdrama sem lætur engan ósnortinn.“ - SV MBL - MMJ Kvikmyndir.com „Enginn ætti að láta Walk the Line framhjá sér fara því myndin er auðgandi fyrir augun, eyrun og hjartað.“ - VJV topp5.is 3 tilnefningar til Óskarsverðlauna M.A. BESTA LEIKKONA ÁRSINS 2 GOLDEN GLOBE BESTA LEIKKONA ÁRSINS „Transamerica er óvenju áhugaverð og einstök mannlífs- skoðun sem rís í hæðir í túlkin Huffman“ - SV, MBL „Afskaplega falleg mynd, skemmtileg og hlý sem kemur manni til þess að hugsa. Mæli með að fólk kíki á þessa“ - ÓÖH, DV MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI YNDISLEGU MYND

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.