Fréttablaðið - 22.02.2006, Page 74
Sýnt á NASA við Austurvöll
Föstudagur 24. febrúar -
Laugardagur 25. febrúar -
Föstudagur 3. mars -
Föstudagur 10. mars -
Föstudagur 17. mars -
Örfá sæti laus
Örfá sæti laus
Örfá sæti laus
Laus sæti
Laus sæti
Miðasala í síma 575 1550,
verslunum Skífunnar og www.midi.is
Sigurveig Stefánsdóttir bar sigur
úr býtum í söngkeppni Nemenda-
félags Menntaskólans á Egilsstöð-
um, Barkanum, sem var haldin í
ellefta sinn síðastliðinn föstudag.
Sigurveig söng lagið The Show
Must Go On eftir Queen, en hún
mun einnig keppa fyrir hönd ME í
söngkeppni framhaldsskólanna.
Sædís Sif Harðardóttir varð
í öðru sæti og Katrín Huld Kára-
dóttir í því þriðja. Kjartan Svan-
ur Hjartarson fékk sérstaka
viðurkenningu sem athyglisverð-
asti keppandinn, en hann flutti
Leaving on a Jetplane eftir John
Denver.
Söngkeppnin á Egilsstöðum er
ein af meginstoðum í skemmtana-
haldi nemendafélagsins og verður
glæsilegri með hverju árinu enda
fátt til sparað. Tuttugu atriði voru
skráð til keppni og var lagavalið
afar fjölbreytt, allt frá íslenskri
þýðingu á Lumberjack Song eftir
Monty Python-hópinn til Stuð-
mannaslagarans Slá í gegn.
Keppnin var fyrst haldin árið
1996 og var keppnin á föstudag
sú ellefta í röðinni. Það var því
við hæfi að Guðmundur Magni
Ásgeirsson úr Á móti sól skyldi
vera formaður dómnefndar, en
hann vann keppnina í fyrstu tvö
skiptin sem hún var haldin. Í hléi
voru sýnd myndskeið með Magna
úr söngkeppni framhaldsskólanna
sem hárprúður ungur maður.
Kynnir keppninnar var Her-
mann Gunnarsson, sem flutti lögin
Einn dans við mig og Út á gólfið
með hljómsveit Barkans. ■
Sigurveig vann
söngkeppni ME
SIGURVEIG Sigurveig Stefánsdóttir söng lagið The Show Must Go On eftir Queen og bar
sigur úr býtum.
Rokksveitin Dimma heldur tónleika á Dillon í
kvöld og aðra tónleika á Gauknum á morgun.
Á tónleikunum mun Dimma leika efni af sam-
nefndri breiðskífu sinni sem kom út fyrir jól og
hefur fengið ágætis viðtökur rokkunnenda. Þar á
meðal mun hún spila lagið Big Bad Mama, en nýju
myndbandi við lagið verður dreift á allar sjón-
varpsstöðvar í vikunni.
Nilfisk spilar með Dimmu í kvöld og á morg-
un hitar Perfect Disorder upp. Báðir tónleikarnir
hefjast klukkan 22.00. ■
Dimma með tónleika
DIMMA Rokksveitin
Dimma heldur tónleika á
Dillon í kvöld.
Hip hop-hljómsveitin The Phar-
cyde frá Los Angeles heldur
tónleika á Gauki á Stöng á laug-
ardaginn.
Hljómsveitin, sem hefur haft
töluverð áhrif á hip hop-jaðar-
senuna í Bandaríkjunum, var
stofnuð af fjórum mönnum árið
1990 og gaf út sína fyrstu plötu,
Bizarre Ride II the Pharcyde,
sem náði gullsölu. Eftir að hafa
hitað upp fyrir De La Soul og
A Tribe Called Quest og komið
fram á Loppalapooza-hátíðinni
árið 1994 gaf The Pharcyde út
sína aðra plötu, Labcabincali-
fornia. Eftir að rólegt hafði verið
yfir sveitinni í nokkur ár kom
út þriðja platan, Plain Rap, árið
2000. Aðeins tveir eru eftir í
sveitinni nú, þeir Imani Wilcox
og Bootie Brown. Gáfu þeir út
plötuna Humboldt Beginnings
árið 2004.
Einn liðsmanna The Pharcyde,
Booty Brown, kemur fram í lagi
Gorillaz, Dirty Harry, og spilaði
einmitt með sveitinni á nýafstað-
inni Brit-verðlaunahátíð.
Arkir, Original Melody,
Hoochie Crew og DJ M.A.T.
munu hita upp á Gauknum. ■
Hiphop á
Gauknum
THE PHARCYDE Hljómsveitin hefur gefið út
fjórar plötur, þá síðustu fyrir tveimur árum.
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �
� ���������
� ��������
��
������������
����������
��� �
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �
� �� � �������
�������
����������
����
���� �������
� �