Fréttablaðið - 22.02.2006, Síða 81
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
The pursuit of perfection
FJARLÆGÐINA
Þegar Lexus IS250 ber þig mjúklega eftir veginum og
þú finnur aflið, sem þér er gefið, verður fjarlægðin nálæg.
Fyrr en varir ertu kominn í áfangastað og líður eins og þú
hafir aldrei lagt af stað. Innrétting, munaðarþægindi og
tæknibúnaður, sem tekur öðru fram, eru umgjörð um líf
þeirra sem vilja ná langt. Á Lexus IS250 verður fjarlægur
draumur að veruleika.
Sjáðu, snertu og prófaðu Lexus IS250. Við erum
sannfærðir um að niðurstaðan verður gagnkvæm
virðing. Það mun ef til vill koma þér á óvart en við sáum
það fyrir. Við gerum nefnilega sömu kröfur til lúxusbíla
og þú og og njótum þess að tvinna saman afl og hugvit.
Verð frá 3.800.000 kr.
ÞÚ SNERTIR
Nýbýlavegi 6 Kópavogur Sími 570 5400
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
31
32
5
02
/2
00
6
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
����������
�����������������
Sylvía Nótt verður fulltrúi Íslands í Evróvisjón og
mikið sem það á eftir að verða
gaman að fylgjast með henni
í Grikklandi. Ríkissjónvarpið
hefur sent lög af öllu tagi í
Evróvisjónkeppnina án þess
að Ísland hafi nokkurn tím-
ann unnið en til þess er alltaf
ætlast. Þótt Íslendingar taki
Evróvisjón oft fullalvarlega
er keppnin auðvitað fyrst og
fremst skemmtun og því um
að gera að senda hreinræktað
gamanatriði eins og nú verður
gert.
Þátttaka Sylvíu Nóttar er
í raun ekkert ósvipuð því og
að senda Ladda í gervi Eiríks
Fjalars. Hann hefði örugglega
líka tremmað þetta í hel, enda
þótti þjóðinni óskaplega vænt
um hann. Hann þráði svo
heitt að vera góður tónlistar-
maður en var ekkert sérstak-
lega flinkur á gítarinn. Hann
ruglaðist alltaf og var síðan
svo óöruggur og barnalegur
í viðtölum. Það er lykillinn að
hjarta þjóðarinnar, að vera
barnalegur.
Þannig er Sylvía Nótt líka.
Hún var ekkert að leyna
því hvað hún varð sár þegar
henni var sagt að hún hentaði
ekki til fyrirsætustarfa og
svo fannst henni mun mikil-
vægara að hún sjálf sæist en
viðmælandinn þegar hún tók
sjónvarpsviðtöl. Hún talar
vitlaust, er einföld, athyglis-
sjúk, sjálfhælin og hikar ekki
við að vera klámfengin en
þetta er allt saman bara fynd-
ið – vegna þess að þetta er
hvort sem er allt bara í plati.
Samt er hún svo raunveruleg
að nafn leikkonunnar sem fer
með hlutverkið ber merkilega
sjaldan á góma.
Ástæðan fyrir því hvað
Sylvía er raunveruleg er auð-
vitað sú að hún er samansett
úr svo kunnuglegum eigin-
leikum. Hún er reiðubúin að
gera allt fyrir frægðina og
er sannfærð um eigið ágæti.
En þætti okkur svona vænt
um manneskju sem væri
í alvörunni jafnbreysk og
Sylvía? Myndi þjóðin hylla
hana og senda hana sem full-
trúa sinn í alþjóðlega keppni?
Ég leyfi mér að efast um það.
Þær konur sem hafa hagað
sér í hálfkvisti við Sylvíu hafa
vakið svo mikla hneykslun að
þær hafa horfið fljótara af
sjónarsviðinu en okkur tókst
að temja okkur að nota orðið
„flakatrúss“.
Ég hef aftur á móti trú á
því að Sylvía Nótt eigi eftir
að ná enn lengra en hún hefur
nú þegar gert. Nú finnst mér
nefnilega að hún ætti að róa
að því öllum árum að fá að
vera fjallkonan á 17. júní. Þá
myndi íslenska þjóðin sýna
óþekka kvenmanninum þá
virðingu sem hann nú krefst
og á skilið.
Minnismerki
óþekka
kvenmannsins