Fréttablaðið - 02.03.2006, Page 10
10 2. mars 2006 FIMMTUDAGUR
MANNFJÖLDI Athygli vekur að á
árinu 2005 fækkaði íbúum með
íslenskt ríkisfang á Austurlandi
en hlutfall erlendra ríkisborgara
er þar áberandi hæst á landsvísu
eða 17,6 prósent. Þetta kemur
fram í tölum frá Hagstofu
Íslands.
Mikill fjöldi farandverka-
manna sem eru við störf við
virkjunar- og álversframkvæmd-
ir skýrir fjölda erlendra ríkis-
borgara á Austurlandi. Sést það
vel á kynjahlutföllum því fjórð-
ungur allra karlmanna á Austur-
landi er erlendur ríkisborgari en
6,7 prósent kvenna.
Undanfarinn áratug hefur
fjöldi erlendra ríkisborgara hér á
landi nær þrefaldast. Þeir voru
1,8 prósent þjóðarinnar árið 1996
en eru nú 4,6 prósent heildar-
mannfjöldans. Hinn 31. desem-
ber 2005 voru 13.778 erlendir rík-
isborgarar með lögheimili hér á
landi. Á sama tíma árið 2004 nam
þessi tala 10.636 og því hefur
erlendum ríkisborgurum með
lögheimili á Íslandi fjölgað um
eitt prósent á milli ára.
Mikill munur er á fjölda
erlendra ríkisborgara eftir land-
svæðum. Hlutfall erlendra ríkis-
borgara er næsthæst á Vestfjörð-
um eða 6,2 prósent en lægst á
Norðurlandi eystra, 2,3 prósent.
Hlutfallið er 4,7 prósent í Reykja-
vík. - shá
Erlendum ríkisborgurum á Íslandi fjölgar hratt:
Íslendingar flytja að austan
VIÐ KÁRAHNJÚKA Fjórðungur allra karl-
manna á Austurlandi er erlendur ríkisborg-
ari. Íbúum með íslenskt ríkisfang fækkaði
fyrir austan á liðnu ári.
TOLLAEFTIRLIT „Það eru fluttir hing-
að um 200 þúsund gámar árlega og
af þeim er aðeins um eitt prósent
skoðað,“ segir Guðmundur Hall-
varðsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, sem kom með fyrir-
spurn til fjármálaráðherra á
síðasta vorþingi um það hvort til
stæði að kaupa eða leigja gegnum-
lýsingarbíl. Þessi bíll röntgenskoð-
ar gáma, flutningabíla, húsbíla og
stóra hluti. Ráðherra svaraði því
til að ekki væri búið að taka
ákvörðun um þetta mál en fylgst
væri með þróuninni í nágranna-
löndunum.
„Tollurinn hefur yfir að ráða
tveimur litlum sendibílum með
tækjum í og þegar skoða þarf gám
verður að losa hann og handlanga
alla pakkana í gegnum litla skoð-
unarvél sem er í bílunum. Það
myndi því breyta miklu fyrir toll-
gæsluna ef hún fengi svona bíl
sem getur skoðað heilan gám á um
þremur mínútum,“ segir Guð-
mundur.
„Menn sem eru að smygla inn
fíkniefnum í gámum yrðu ansi
taugaveiklaðir ef þeir sæju svona
gegnumlýsingarbíl á hafnarbakk-
anum,“ segir Bjarni Ágústsson,
framkvæmdastjóri Icetronica.
Það fyrirtæki sérhæfir sig í
sölu öryggisbúnaðar og hafa for-
svarsmenn þess komið að máli við
þingmenn og tollstjóra til að fá því
framgengt að slíkur bíll verði
keyptur hingað til lands. „Það
besta við þetta er þó það að þetta
er ekki eitt risa leitartæki sem er
fast við eina höfn heldur gæti toll-
stjóri fært þetta hvert sem er með
stuttum fyrirvara svo smyglarar
vissu aldrei hvar hann yrði,“ segir
Bjarni.
Hann segir bílinn kosta um 80
milljónir króna. „Hann hefur
reynst afskaplega vel í Svíþjóð en
þar fer hann á milli hafna,“ bætir
hann við.
Sigurður Skúli Bergsson, for-
stöðumaður tollgæslusviðs hjá
Tollstjóranum í Reykjavík, segir
að aðrðar Norðurlandaþjóðir hafi
fest kaup á gegnumlýsingarbíl en
síðast festu Danir kaup á einum
slíkum í síðasta mánuði. „Við fylgj-
umst með þessari þróun en eigum
ekki til peninga til að kaupa bíl af
þessu tagi eins og er svo það þyrftu
að koma til fjárveitingar. En það
myndi henta okkar afskaplega vel
að hafa svona leitarbúnað sem við
gætum fært hafna á milli,“ segir
Sigurður Skúli. se@frettabladid.is
Tollurinn skoðar aðeins
einn gám af hundrað
Um 99 prósent gáma sem fluttir eru til landsins eru ekki skoðaðir af tollayfirvöldum. Þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins segir þörf á gegnumlýsingarbíl fyrir tollayfirvöld sem hægt væri að færa milli hafna. Slíkur bíll
kostar um 80 milljónir króna en hann getur gegnumlýst heilan gám á um þremur mínútum.
GEGNUMLÝSINGARBÍLL Þessi gegnumlýsingarbíll skoðar gáma á þremur mínútum en eins
og aðstaða tollayfirvalda er í dag verður að handlanga innhald gáma í gegnum eftirlitstæki.
VINNUMARKAÐUR Grunur leikur á
um að fjórar til fimm starfs-
mannaleigur séu starfandi á höf-
uðborgarsvæðinu án þess að vera
skráðar hjá Vinnumálastofnun.
Þær eru því ólöglegar.
Talið er að þessar leigur séu
með allt frá tveimur og upp í um
30 starfsmenn hver. Þetta er mat
Guðmundar Hilmarssonar, starfs-
manns í átaksverkefninu Einn
réttur - ekkert svindl hjá ASÍ.
Jón Sigurður Karlsson, verk-
efnisstjóri hjá Vinnumálastofnun,
segir að í dag séu 13 leigur skráð-
ar og von á skráningu þriggja til
viðbótar. Skráðir starfsmenn séu
81 talsins en ljóst að enn eigi eftir
að skrá marga og þrýst verði á að
það verði gert.
„Við byrjum á því að koma
okkur upp gagnagrunni og svo eru
göngur og réttir. Hópurinn sem er
í kringum þetta hittist og við
ráðum ráðum okkar,“ segir hann.
Talið er að starfsmenn á vegum
starfsmannaleiga séu að minnsta
kosti yfir eitt hundrað. - ghs
STARFSMANNALEIGUR Sextán starfsmannaleigur hafa skráð sig eða eru í þann veginn að
gera það. Fjórar til fimm eru taldar starfa ólöglega í landinu.
Skráðar starfsmannaleigur orðnar sextán:
Talið að fjórar til
fimm séu ólöglegar
FÉLAGSSTÖRF Jóhannes Gunnarsson
gefur einn kost á sér í embætti
formanns Neytendasamtakanna
en framboðsfrestur rann út á
þriðjudag. Er hann því sjálfkrafa
valinn formaður og gegnir starf-
inu næsta kjörtímabil en það
stendur í tvö ár.
Jóhannes hefur verið formaður
Neytendasamtakanna síðan 1984,
að undanskildum tveimur árum,
þegar hann var framkvæmda-
stjóri þeirra.
Þing Neytendasamtakanna
verður haldið í haust og þá verður
kosið um menn í önnur stjórnar-
sæti. - bþs
Neytendasamtökin:
Jóhannes einn
í framboði
JÓHANNES GUNNARSSON Gefur einn kost á
sér í embætti formanns Neytendasamtak-
anna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
PAKISTAN, AP Pakistanskar her-
sveitir gerðu árás á felustað
skæruliða í fjöllunum við landa-
mærin að Afganistan í gærmorg-
un. Að minnsta kosti 25 skæru-
liðar féllu eða særðust, að sögn
talsmanns hersins.
Von er á George W. Bush
Bandaríkjaforseta í opinbera
heimsókn til Pakistans og er
árásin sett í samhengi við hana.
Pakistanstjórn vilji sýna að hún
sé ekki að slá slöku við í barátt-
unni gegn al-Kaída og talibönum,
en vitað er að liðsmenn þeirra
leynast margir í fjöllunum á
landamærum Pakistans og
Afganistans. ■
Baráttan gegn hryðjuverkum:
Árás á skæru-
liða í Pakistan
PYGMÍAR Í VÖRN Drengir af ættbálki pyg-
mía vopnaðir bogum og örvum fyrir anti-
lópu- og villisvínaveiðar nærri Nzali-Kenga
í Kongó. Pygmíar eiga mjög undir högg að
sækja eftir því sem meira er höggvið af
skógarheimkynnum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP