Fréttablaðið - 02.03.2006, Page 34

Fréttablaðið - 02.03.2006, Page 34
[ ]Kaffikönnur verða oft svartar að innan af mikilli notkun. Með því að láta klórblandað vatn standa í þeim í stutta stund má auðveldlega losna við allan lit úr þeim en mikilvægt er að þvo þær vel á eftir. Sigrún Þorgrímsdóttir fram- kvæmdastjóri spáir mikið í hús. Hún á sér eftirlætisstað heima. „Ég kann best við mig við eldhús- borðið. Það er ekki bara vegna þess að ég innbyrði þar matinn minn heldur ekki síður af því að þar nýt ég þess að lesa blöðin,“ segir Sigrún og bætir við bros- andi: „Ég gef mér alltaf góðan tíma í blaðalesturinn á morgnana og les þá allt sem hönd á festir.“ Sigrún býr í snotru húsi á fallegum stað í Hafnarfirði, rétt við klaustrið. Hún hefur líka sér- stakan áhuga á húsum því hún er framkvæmdastjóri fyrirtækis sem var stofnað fyrir rúmu ári kringum byggingu fjögurra fjöl- býlishúsa við Lækinn í Hafnar- firði. Nú hefur fyrirtækið vaxið og starfsemin víkkað út. Í tilefni af því breytti það um nafn og heitir nú Hanza. Það segir Sigrún vera til marks um stórhuginn sem einkenni starfsemina. „Nafn- ið tengist lítillega Hansakaup- mönnunum sem ráku umfangs- mikil viðskipti hér á landi á 15. og 16. öld. Það var áræðni og kraftur sem fylgdi þeim en höf og fjöll voru þeim engin hindrun á neinn hátt því þeir tengdust 169 borg- um í Evrópu.“ Greinilegt er að Sigrún hygg- ur á landvinninga í víðri merk- ingu orðsins og það er auðvelt að sjá hana fyrir sér kortleggja heiminn þar sem hún situr við eldhúsborðið sitt í Hafnarfirðin- um. gun@frettabladid.is Eldhúsborðið er langbest Sigrún tekur sér góðan tíma í að lesa blöðin á degi hverjum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Allt frá árinu 1909 hefur hið sænska Höganäs keramik framleitt hentugan og vinalegan borðbúnað. Hann fæst í Duka. Enda þótt margt hafi breyst á tæpum hundrað árum í framleiðslu Höganäs gildir enn það sama og í upphafi, steinleirsborðbúnaðurinn sameinar það að vera alltaf bæði nútímalegur og notendavænn. Nýir litir bætast við og aðrir detta út. Formin taka líka breytingum en þó ekki svo stórum að hin eldri verði hallærisleg, allt getur gengið hvað með öðru og allir ættu að geta fund- ið lit og form við hæfi. Steinleirinn er flottur bæði hversdags og spari, hvort sem er í fínu stofunni, eld- húskróknum eða úti í garði. Litaflóran er fjölbreytt. Brúnn og blágrænn eru nýjustu litirnir. Höganäs-steinleirinn fæst með ferköntuðu lagi, sporöskjulagi og kringlóttu. BORÐ FYR IR TVO K R I N G L A N ÚTSALA ENN MEIRI AFSLÁTTUR Kringlunni - sími : 533 1322 Vandaðar heimilis- og gjafavörur 20% afsláttur af stálpottum Vandaðar og gjaf PÍANÓSTILLINGAR Skjót og fagmannleg þjónusta • Verð frá 12.500 m/vsk Kristinn Leifsson S. 661-7909 • netfang: kristinn@pianostilling.is STELLIÐ – HÖGANÄS 1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9 1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.