Fréttablaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 34
[ ]Kaffikönnur verða oft svartar að innan af mikilli notkun. Með því að láta klórblandað vatn standa í þeim í stutta stund má auðveldlega losna við allan lit úr þeim en mikilvægt er að þvo þær vel á eftir.
Sigrún Þorgrímsdóttir fram-
kvæmdastjóri spáir mikið í
hús. Hún á sér eftirlætisstað
heima.
„Ég kann best við mig við eldhús-
borðið. Það er ekki bara vegna
þess að ég innbyrði þar matinn
minn heldur ekki síður af því að
þar nýt ég þess að lesa blöðin,“
segir Sigrún og bætir við bros-
andi: „Ég gef mér alltaf góðan
tíma í blaðalesturinn á morgnana
og les þá allt sem hönd á festir.“
Sigrún býr í snotru húsi á
fallegum stað í Hafnarfirði, rétt
við klaustrið. Hún hefur líka sér-
stakan áhuga á húsum því hún er
framkvæmdastjóri fyrirtækis
sem var stofnað fyrir rúmu ári
kringum byggingu fjögurra fjöl-
býlishúsa við Lækinn í Hafnar-
firði. Nú hefur fyrirtækið vaxið
og starfsemin víkkað út. Í tilefni
af því breytti það um nafn og
heitir nú Hanza. Það segir Sigrún
vera til marks um stórhuginn
sem einkenni starfsemina. „Nafn-
ið tengist lítillega Hansakaup-
mönnunum sem ráku umfangs-
mikil viðskipti hér á landi á 15. og
16. öld. Það var áræðni og kraftur
sem fylgdi þeim en höf og fjöll
voru þeim engin hindrun á neinn
hátt því þeir tengdust 169 borg-
um í Evrópu.“
Greinilegt er að Sigrún hygg-
ur á landvinninga í víðri merk-
ingu orðsins og það er auðvelt að
sjá hana fyrir sér kortleggja
heiminn þar sem hún situr við
eldhúsborðið sitt í Hafnarfirðin-
um.
gun@frettabladid.is
Eldhúsborðið er langbest
Sigrún tekur sér góðan tíma í að lesa blöðin á degi hverjum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Allt frá árinu 1909 hefur hið
sænska Höganäs keramik
framleitt hentugan og vinalegan
borðbúnað. Hann fæst í Duka.
Enda þótt margt hafi breyst á
tæpum hundrað árum í framleiðslu
Höganäs gildir enn það sama og í
upphafi, steinleirsborðbúnaðurinn
sameinar það að vera alltaf bæði
nútímalegur og notendavænn. Nýir
litir bætast við og aðrir detta út.
Formin taka líka breytingum en þó
ekki svo stórum að hin eldri verði
hallærisleg, allt getur gengið hvað
með öðru og allir ættu að geta fund-
ið lit og form við hæfi. Steinleirinn
er flottur bæði hversdags og spari,
hvort sem er í fínu stofunni, eld-
húskróknum eða úti í garði.
Litaflóran er fjölbreytt.
Brúnn og blágrænn eru nýjustu litirnir.
Höganäs-steinleirinn fæst með ferköntuðu
lagi, sporöskjulagi og kringlóttu.
BORÐ FYR IR TVO
K R I N G L A N
ÚTSALA
ENN MEIRI AFSLÁTTUR
Kringlunni - sími : 533 1322
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
20% afsláttur
af stálpottum
Vandaðar
og gjaf
PÍANÓSTILLINGAR
Skjót og fagmannleg þjónusta • Verð frá 12.500 m/vsk
Kristinn Leifsson
S. 661-7909 • netfang: kristinn@pianostilling.is
STELLIÐ – HÖGANÄS
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9