Fréttablaðið - 02.03.2006, Page 38
2
Einn morguninn fyrir þremur árum
fékk Guðmundur Ingi Þorvaldsson,
leikari og leikstjóri, nóg af fínu, flottu
og jafnframt rándýru íbúðinni sinni
í Neshaga. Íbúðin hafði þá kostað
hann fúlgur fjár, og það sem meira
var, svefn og sálarró. Hann seldi
íbúðina og flutti út á Öldugranda
þar sem hann keypti litla og hlýja
íbúð fyrir lítinn pening.
Eldhúsið heima hjá Guðmundi er
hvorki stórt né hlaðið nýjustu græj-
um. Því fylgir hins vegar einhver
hlýja sem erfitt er að henda reiður
á. „Þetta er bara einfalt eldhús, en
oft kemur vondur matur úr góðu
eldhúsi,“ segir Guðmundur. „Leynd-
armálið við gott eldhús er fyrst og
fremst hráefnið og ég bý svo vel að
eiga foreldra sem eru bændur og ég
fæ reglulega sent ferskt hráefni úr
sveitinni.“
Guðmundur er góður kokkur
og að sögn sérfræðingur í innmat.
„Þegar ég var fimmtán ára veikt-
ist amma mín og þurfti að fara á
spítala. Þá var ég settur í eldhúsið.
Afi valdi hráefnið, fór bara í frysti-
kistuna og tók eitthvað upp og svo
átti ég að elda það. Það var alveg
magnað að það var sama hvað ég
gerði, það var alltaf étið. Smám
saman lærði maður og varð góður,“
segir Guðmundur.
Mikil tilraunamennska með
íslenskt hráefni fer fram í eldhús-
inu hjá Guðmundi. „Sumum rétt-
um á ekki að hrófla við, kjötsúpa
er til dæmis best daginn eftir. Svo
eru réttir sem ég hef þróað. Ég nota
aldrei uppskriftabækur því þetta á
að vera sköpun. Allar uppskrifta-
bækurnar sem ég hef fengið gefins
frá vinunum eru enn í plastinu,“
segir Guðmundur og glottir. „Þetta
lærði ég af pabba mínum. Hann var
vanur að opna ísskápinn, horfa á
hann í fimm mínútur, taka svo út
hráefni og úr varð matur.“
Tveir hlutir skera sig úr í eldhús-
inu. Annar þeirra er forláta kaffivél
og hinn er gítar sem staðsettur er
við eldhúsborðið.
Gítarinn fékk Guðmundur frá
ömmu sinni og afa þegar hann
útskrifaðist úr Menntaskólan-
um á Akureyri. „Maður verður að
spila fyrir matinn og gefa honum
jákvæðar jónir,“ segir Guðmund-
ur og hlær. „Það er fínt að setjast
niður og glamra á gítarinn þegar
maður bíður eftir að suðan komi
upp og þannig lagað.“
Kaffivélin er hins vegar gjöf frá
tengdaforeldrunum. „Þau keyptu
vélina á Ítalíu í Mílanó og höfðu
heilmikið fyrir því að koma henni
heim. Hún fór meira að segja með
þeim í flugið í handfarangrinum,“
segir Guðmundur og hlær. „Hún er
alveg nauðsynleg því í henni bý ég
til besta kaffið.“
Eftir að hafa spjallað í hartnær
tvo tíma um eldhús og leiklist þarf
Guðmundur að sinna vinnunni.
„Ég er nýbúinn að frumsýna verk-
ið Hungur sem fjallar meðal annars
um anorexíu og ofát,“ segir Guð-
mundur. „Svo leik ég líka í Glæp
gegn diskóinu en bæði verkin hafa
gengið vel og fengið fína dóma.“
Leyndarmálið í eldhúsinu er hráefnið
Guðmundur Ingi Þorvaldsson á einfalt eldhús, sem er hvorki stórt né hlaðið nýjustu græjum.
Kjötsúpa er alltaf best daginn eftir.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Kaffivélin sem kom með handfarangri frá Ítalíu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Guðmundur spilar fyrir
matinn en gítarinn á
sinn sess og sæti við
eldhúsborðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
.. af Sjöunni hans Arne
Jacobsen. Felstir vilja
hana svarta eða hvíta.
Af hverju ekki að prófa
appelsínugula, bleika
eða græna? Ekkert mál
að láta sprautalakka
hana í öðrum lit þegar
maður fær leið á litn-
um.
Við fáum ekki nóg ...
Rýmingarsala
Rýmum fyrir nýjum vörum í nokkra daga
15-50 % afsláttur
Gólfdúkar – Stök teppi – Keramikflísar - Dreglar - Plastparket
Málning – Veggfóður - Skrautlistar
Litaver – Teppabúðin Grensásveg 18 Sími 581-2444
Eikarhúsgögn geta verið viðkvæm og að
ýmsu verður að gæta þegar kemur að slík-
um mublum.
Þar sem eikin hefur djúpt æðakerfi er
ráðlagt að hlífa viðnum við vatni. Mikið
vatn eyðileggur lakkhúðina.
Gætið þess að ljós eik mun dökkna á
fyrstu vikunum. Forðist því að hafa vasa og
skálar á sama staðnum mánuðum saman því
hætt er við því að dökkt far myndist undir
þeim. Heitt og þurrt loft veldur þenslu eða
samdrætti í viðnum sem getur orsakað það
að límið losnar og því er mikilvægt að loft-
ræsta rýmið sem húsgögnin standa í.
Mjög mikilvægt er að nota aldrei kemísk
efni á eik því þau skaða lakkið og
skilja eftir ljóta bletti. Ágætt
er að vaxbera húsgögn með
glansandi yfirborð en ekki
er ráðlagt að vaxbera matt-
lakkað yfirborð. Auðvitað
skal forðast að setja heita
hluti eða hluti sem geta
rispað á yfirborð eikar-
húsgagna. Þegar þurkað
er af eikarhúsgögnum er
gott að nota rakan klút
og strjúka honum langs-
um eftir legu viðarins.
Góð ráð varðandi eikarhúsgögn