Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 40

Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 40
■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4 Silfur- og stállitir rammar eru vinsælir í dag. Þessir eru í Uniku. Speglar sýna okkur hvernig við lítum út og þeir gera meira en það. Þeir setja glæsi- legan svip á heimilin og gefa þeim hallar- yfirbragð. Þessu hefur nútímamaðurinn áttað sig á og eru speglar í tísku um þessar mundir. Það staðfestir Erlingur Ó. Ólafsson, sem hefur unnið við speglagerð í áratugi og hefur rekið eigið fyrirtæki frá 1990. Gleriðja hans er á horni Laug- arnesvegar og Sundlaugavegar og þar unir hann sér vel enda nóg að gera við að skera niður gler og ramma inn eftir óskum hvers og eins, auk þess sem hann selur tilbúna spegla. „Það er orðið algengara en áður var að fólk hafi spegla inni í stofu, til dæmis yfir sófa eða borð- stofuskáp. Svo eru þeir alveg sjálfsagðir í forstofur og ganga,“ segir hann. Það fer eftir smekk hvort og hvernig ramma fólk velur en silfur og stállíki er vinsælt rammaefni ekki síst á baðherbergin. Brúnir rammar eru sígildir utan um spegla. Þessi fæst í Rúmfatalagernum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Hægt er að velja sér ramma að vild í Gleriðju Erlings Ó. Verslunin Unika í Fákafeni selur spegla og ýmislegt fleira. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Langir speglar fara vel yfir borðstofuskáp eða sófa. Þessir fást í Rúmfatalagernum. Spegill með voldugum við- arramma í Uniku, Fákafeni. Speglar í öllum hornum Á hverju heimil verður að vera spegill. Speglar með höggnum brúnum er sérgrein Erlings Ó. Speglagerð Erlings Ó. býður upp á úrval af speglum, bæði sérsmíðuðum og tilbúnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.