Fréttablaðið - 02.03.2006, Síða 44
■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■8
Borðstofuborðið sem þær mæðgur sitja við
er beintengt eldhúsinu.
Það sem einkennir eldhúsið hjá
Helgu og Jóhannesi er að frá því er
opið í allar áttir. Það er því mið-
depillinn í húsinu og hjarta heimil-
isins eins og Helga lýsir. „Eldhúsið
er mikið notað enda er áhugamál
okkar hjóna að elda mat. Við erum
því alltaf í eldhúsinu og borðstof-
unni meðan verið er að elda, borða
og spjalla eftir matinn. Mér finnst
það algerlega æðislegt. Það er svo
gott að sitja við borðstofuborðið
og þar virðist öllum líða vel,“ segir
Helga og bætir við: „Það hefur eig-
inlega orðið þannig að við notum
ekki stofuna nema á jólunum!“
Helga lýkur miklu lofsorði á
gasvélina, sem er eina eldunartækið
á heimilinu. „Við höfum verið með
gas frá því við fluttum hér inn og
ég mundi ekki skipta því út fyrir
nokkuð annað. Mér finnst það bara
meiriháttar,“ segir hún en viður-
kennir að sig langi í stærri eldavél.
„Þegar við vorum að koma þessu
eldhúsi upp fengust ekki stórar gas-
eldavélar en þær eru komnar núna.
Það er draumur að skipta út elda-
vélinni.“ segir hún.
Innréttingin í eldhúsinu er tólf
ára og er frá fyrirtækinu Eldhús og
bað sem Ármannsfell átti á þeim
tíma sem þau hjón keyptu hana. Hún
var teiknuð eftir þeirra óskum. „Ef
við værum að byggja í dag mundi
ég hafa eldhúsið tvisvar til þrisvar
sinnum stærra en þetta. Þó svo það
sé opið inn í borðstofuna finnst mér
vanta rými í eldhúsinu,“ segir Helga
en bætir svo við brosandi: „En við
erum ekki að fara að byggja.“ Hún
kveðst stundum fá ævintýralegar
hugmyndir og hafa orðað það við
manninn sinn að taka þvottahús-
ið undir eldhús. „Honum finnst ég
galin! Samt er aldrei að vita hvað
við gerum!“
Eldhúsið er miðdepill og hjarta heimilisins
Margt er mallað og brallað í eldhúsinu hjá Helgu Jóhannesdóttur og Jóhannesi Davíðssyni í Rimahverfinu í Grafarvogi.
Stólarnir við eldhúsborðið bjóða upp á
notalega stemningu.
Eldhúsinnréttingin var keypt hjá Eldhúsi og
baði fyrir tólf árum.
Kaffikannan tónar vel við granítið í borð-
plötunum.
Helga og heimasætan Katrín Birna sem er níu ára. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BestLite-lampinn var hannaður
árið 1930 af enskum hönnuði,
Robert Dudley Best, sem þykir
einn af merkari hönnuðum 20.
aldarinnar.
Lampinn hefur verið í fram-
leiðslu allt frá því að hann var
hannaður og telst tímalaus hönn-
un. Jafnframt er hann talinn
fyrsti hluturinn sem hannaður
var á Englandi í anda Bauhaus.
Upphaflega var hann notaður á
verkstæðum, og seinna af arki-
tektum, en náði frægð þegar
Winston Churchill sagðist sér-
stakur aðdáandi gripsins.
Lampinn er mikið notaður á
hótelum og skrifstofum víða um
heim, einnig á heimilum fólks
og á síðustu árum hafa vinsæld-
ir hans vaxið mikið í Skandin-
avíu. Lampinn er framleiddur
í nokkrum útgáfum, sem borð-
lampi, vegglampi, standlampi
eða loftljós. Epal selur BestLite á
Íslandi.
Sígild hönnun }