Fréttablaðið - 02.03.2006, Qupperneq 52
■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■16
Parkett og gólf er sérvöruversl-
un sem leggur áherslu á hurðir og
gólf- og veggefni. Meðal þess sem
verslunin selur er veggir sem koma
grunnaðir. Þeir eru tilbúnir til mál-
unar og minnka þannig allt umstang
er fólk er að byggja. Hurðirnar þar
einnig vakið mikla lukku.
„Við leggjum mikið upp úr
þjónustu og gæðum,“ segir Óskar
Alfreðsson, eigandi verslunarinar
Parket og gólf. „Verslunin er orðin
meira en tuttugu ára gömul og á
þeim tíma höfum við alltaf lagt
mikla áherslu á að vera fyrstir með
nýjungar,“ segir Óskar og tekur fram
að verslunin hafi stækkað mikið á
þessum tuttugu árum.
Parket og gólf er til húsa í Ármúla
23 og síminn er 568-1888.
Parkett, hurðir og
grunnaðir veggir
Parket og gólf býður úrval gólfefna og þá
sérstaklega parket. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hurðirnar í Parket og gólf eru fjölbreyttar
og meðal annars hægt að fá þær með
gleri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Einfaldleikinn getur verið glæsilegur, eins
og á þessari hvítlökkuðu hurð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elín Kjartansdóttir, arkitekt á Arki-
tektur.is á Hverfisgötu, segist verða
vör við breyttar áherslur og auknar
kröfur hjá viðskiptavinum sínum.
„Það er mjög einstaklingsbundið
hvað fólk vill en það eru ákveðnir
hlutir sem er meira beðið um núna
en áður,“ segir Elín. Hún segist sjálf
ekki verða mikið vör við að fólk
vilji innbyggt ryksugukerfi en hins
vegar vilji fólk hafa sjónvörp og
tölvur í nánast öllum herbergjum.
„Það þarf að vera möguleiki á að
geta tengt þess tæki hvort sem það
er í hjónaherbergjum eða barnaher-
bergjum. Það er því áberandi hvað
þarf miklu meira af raflögnum og
tölvulögnum, vegna lýsingar, sjón-
varpa og alls kyns tækja heldur en
fyrir nokkrum árum.“
Elín segir að þróunin hafi líka
verið í þá átt að stækka barnaher-
bergin. „Fleiri tæki og meira dót
fylgir börnum en áður og þetta
rúmast ekki lengur inni í einhverj-
um sjö fermetrum.“
Elín segir að ein af þeim breyt-
ingum sem hún hefur tekið eftir
sé að fólk vilji hafa eldhús, stofu
og borðstofu í hálfgerðu alrými.
„Fólk hefur áttað sig á því að
börnin vilja læra inni í borðstofu
eða einhvers staðar nálægt foreldr-
um sínum þegar þeir eru að elda.
Þetta er því ekki eins og áður þegar
að allt var lokað af. Fólk vill líka
hafa eldhúsin flottari þar sem þau
tengjast stofunum og eldhúsin eru
að stækka á kostnað stofanna.“
Elín segir að það sé fólki mikil-
vægt að baðherbergi séu góð. „Fólk
vill hafa bæði baðkar og sturtu,
upphengt klósett sem er auðvelt
að þrífa undir og handklæðaofn.
Margir vilja ekki lausan sturtuklefa
með sturtubotni heldur innbyggð-
an sturtuklefa og hitalagnir í gólfi
eru orðnar mjög algengar á bað-
herbergjum.“
Elín segir að hitalagnir í gólf-
um takmarkist reyndar ekki bara
við baðherbergi. „Margir vilja hafa
hitalagnir í öllum gólfum og ef að
fólk fer til dæmis út í að flísaleggja
stofur þá vill það fá hitalögn undir
flísarnar. Þeir sem eru með parkett
eru kannski með hluta af húsinu
með hitalögnum í gólfi og hluta
með venjulegum ofnum. Það er
orðið algengt að hús séu með stór-
um gluggum sem ná alveg niður í
gólf og þá er erfitt að koma hefð-
bundnum ofnum fyrir.“
Að lokum segir Elín segir að öll
lýsing sé orðin fólki mjög mikil-
væg. „Það er ekki nóg að vera bara
með einn ljósakúpul í loftinu því
lýsing er orðin hönnunaratriði.
Það er verið að fella ljós ofan í
gólfið og inn í veggi og fólk notar
lýsingu til þess að skapa ákveðna
stemningu.“
Ný hús með nýjum áherslum
Kröfur þeirra sem byggja sér hús hafa breyst töluvert síðustu ár og áratugi. Alls kyns
nýjungar eins og innbyggt ryksugukerfi og hiti í öllum gólfum verða sífellt algengari.
Elín Kjartansdóttir arkitekt á Arkitektur.is. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Brasilísku bræð-
urnir Fernando
og Humberto
Campana eru
meðal athyglis-
verðustu vöru-
hönnuða okkar
tíma. Þeir hafa
notið mikillar hylli
fyrir hönnun sína,
sem þeir byggja
að miklu leyti á
arfleið brasilískra
f á tæk r ahve r f a .
Campanas-bræð-
urnir hafa safnað
saman og nýtt efni eins
og smáspýtur og rusl af
götum og úr gámum til
þess að búa til glæsileg húsgögn. Þess vegna verða húsgögn þeirra
mjög gróf og þeim mun áhugaverðari. Campanas-bræður halda úti
skemmtilegri heimasíðu á campanas.com.br þar sem hægt er að kynna
sér hönnun þessara brasilísku frumkvöðla.
Með fátækt Brasilíu að
leiðarljósi
Stóll eftir Campanas bræður.
ævintýralega hönnun
Tord Boontje. Dádýr
og blóm sem aðeins
gætu átt heima í
ævintýrum verða
að veruleika í
fallegri og leik-
andi hönnun.
Midsummer
light fæst í
Iðu en frek-
ari hönnun
eftir Tord
er hægt að
sjá á www.
tordboontje.
com
Við elskum...
F
í
t
o
n
/
S
Í
A