Fréttablaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 54
■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■18
Hver gæti lifað á heimili án ryk-
sugu? Reyndar væri hægt að komast
af með sóp en það væri aðeins gert
með miklum herkjum, eitthvað sem
nútímasamfélag er ekki mikið fyrir.
Hér fyrr á árum var inni á nær hverju
heimili ein stöðluð ryksuga, oftast hin
goðsagnakennda Nilfisk. Gömlu ryk-
sugurnar voru ekki flóknar verkfræð-
ismíð en í dag hefur bæst við fjöld-
inn allur af aukabúnaði. Mismunandi
hraðastillingar og fjölbreyttir hausar,
sem maður skilur stundum ekkert
í hvernig á að nota, eru nú orðn-
ir að staðalbúnaði með nýkeyptum
ryksugum. Hálfdán Guðmundsson,
starfsmaður heimilistækjaverslunar-
innar Eirvík, segir að mikilvægt sé
að velja góðan haus eftir því hvernig
gólfbúnað er verið að ryksuga yfir.
Hálfán segir að mikið vatn sé
runnið til sjávar síðan að gömlu
Nilfisk-vélarnar voru og hétu. Sem
dæmi hafi kraftur ryksuga aukist
um allt að 300 prósent. Hann bendir
þó á að fólk megi ekki láta glepjast
af háum tölum. ,,Hversu mörg vött
ryksugan er segir ekki alveg alla
söguna. Það vantar almennilegan
mælikvarða á hvað ryksugur eru að
sjúga upp marga rúmmetra á klukku-
stund. Vöttinn segja í raun bara hvað
ryksugan eyðir miklu rafmagni,“
segir Hálfdán og bendir á að fyrir
ári síðan hafi verið gerð óháð rann-
sókn í Þýskalandi þar sem ryksugum
hafi verið gefin einkunn eftir hæfni
þeirra. Þar kom best út eina ryksug-
an sem var 1600 vött á meðan hinar
voru allar 1800 og 2000 vött.
Hálfdán telur að það sé mun mik-
ilvægari kostur í ryksugum að mótor
þeirra sé endingargóður. ,,Einnig eru
komnir á markað nýir pokar. Gömlu
bréfpokarnir byggðu á um 30 ára
gamallri hefð og þeir einfaldlega
rifnuðu of mikið. Nýju pokarnir eru
úr hálfgerðu tauefni sem rifnar ekki.“
Hálfdán segir að nýju pokarnir hafi
betri loftsíur sem koma í veg fyrir að
ryksugan spúi fínustu rykögnunum
aftur út.
Hálfdán bendir fólki á að marg-
ar auglýsingar seu mjög villandi.
,,Oft er til dæmis talað um sexfalt
filter-lag en slík mælieining er ekki
til. Af hverju er ekki einfaldlega sagt
nákvæmlega hvað loftsían er stór í
míkrómetrum? Það er oft verið að
búa til eitthvað flott á pappírum
sem stenst síðan ekki. Það bylur oft
hæst í tómri tunnu.“ Að lokum segir
Hálfdán að mikilvægast sé endingin,
áreiðanleikinn og krafturinn í ryk-
sugum og eins og með annað er oft
betra að eyða örlítið meiri pening í
meiri gæði.
Ryksugan á fullu
Ryksugur eru ekki flókið fyrirbæri. Hins vegar vekur fátt upp jafn óþægilegar tilfinn-
ingar og lélegar ryksugur.
Að finna húsgögn fyrir heimilið getur stundum verið mikil kvöl. Hér á hinu
litla Íslandi getur maður nefnilega alltaf átt það á hættu að kaupa húsgagn sem
nágranni eða besti vinur manns á kannski líka. Svo einfaldlega finnur maður
ekki alltaf það sem maður leitar að, í annars
ágætri flóru íslenskra húsgagnaverslana.
Engum til undrunar er hægt að kaupa fjöl-
breytt húsgögn, fyrir til dæmis eldhúsið, á net-
inu. Þar er flóran slík að enginn maður gæti
nokkurn tíman skoðað allt það sem í boði
er. Dæmi um skemmtilegar heimasíður
þar sem hægt er að kaupa marg-
vísleg húsgögn eru buy.com,
amazon.com, kitchenshop.com,
rivvo.com og margar aðrar. Hér
eru dæmi um húsgögn sem hægt
er að kaupa á netinu og setja í eldhús-
krókinn.
Hannaðu eldhúsið á netinu
Ryksugur eru mikilvægt heimilis-
tæki sem hjálpa til við að glæða
heimilið.Falleg ljósakróna er að sjálfsögðu
nauðsynleg yfir nýja eldhúsborðið.
Þessi ljósakróna er með kertaljósa-
perum sem gefa fallega birtu. Fæst
á heimasíðunni onlineusashop.
com
Þægilegur og flottur eldhússtóll. Fæst á
heimasíðunni williams-sonoma.com.
Fín ávaxtaskál sem
nota má að nýja fína
eldhúsborðið. Fæst á
amazon.com
Borð og stóll í stíl. Hægt að fá hjá
buy.com
voru það þessir mynstruðu púðar
eftir ameríska hönnuðinn Thom-
as Paul, sem vöktu athygli okkar.
Nýtískulegir og alveg í anda
mynsturbylgjunnar sem gengur
yfir í heimilistískunni um þessar
mundir. Hann notar
fallega bjarta liti, og
sérstök mynstur sem
eru í senn gamaldags
og nýtískuleg. Ásamt
flottri línu af púðum,
hannar hann diska
sem eru það flottir
að varla er hægt að
borða af þeim, enda
myndu þeir sóma sér
betur á fallegum vegg.
Til stendur að víkka út
vörulínuna og hanna
lampa, rúmföt og teppi.
Hægt er að nálgast
vörur Thomas Paul á net-
inu. Sjá www.thomaspaul.com eða
www.heals.co.uk.
Á netinu...
Lecco-hillueiningarnar í Habitat.
Hægt er að raða þeim á ótal vegu.
Láta þær snúa hvernig sem er, upp
við vegg eða út á mitt gólf, en
þannig eru þær flottastar. Frá-
bærar undir bækur, skrautmuni,
eða einfaldlega smart sem skil-
rúm í herbergi. Lecco-hilluein-
ingar fást í svörtu og eik.
Við elskum....