Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 87
KVIKMYNDIR
[UMFJÖLLUN]
Þótt ekki liggi mörg verk eftir
Truman Capote er hann einn róm-
aðasti rithöfundur Bandaríkjanna
og á það ekki síst að þakka bókinni
Með köldu blóði (In Cold Blood),
sem kom út árið 1966, en nýstár-
leg efnistökin ollu straumhvörf-
um. Bókin fjallar um morð á fjöl-
skyldu í smábæ í Kansas-ríki í
Bandaríkjunum árið 1959. Capote
fór í félagi við Harper Lee, vin-
konu sína og rithöfund, á vettvang
morðanna í þeim tilgangi að skrifa
blaðagrein um þau og áhrif þeirra
á bæinn, en eftir að hafa hitt ódæð-
ismennina ákvað hann að skrifa
heila bók. Verkið tók hann nokkur
ár og á þeim tíma bast hann öðrum
morðingjanum, Perry Smith,
nánum böndum.
Um þetta fjallar myndin Capote
og er skemmst frá því að segja að
árangurinn er tilkomumikill. Philip
Seymour Hoffman er óaðfinnan-
legur í hlutverki titilpersónunnar,
sem myndin varpar fyrst og fremst
ljósi á. Sú mynd sem dregin er upp
af Capote er af einstaklega sjálf-
hverfum manni, sem líður hvergi
betur en sem miðpunkti athyglinn-
ar og talar um fátt nema sjálfan
sig. Þrátt fyrir að virka allt að því
fyrirlitlegur í sérhyggju sinni er
Capote áhugaverð persóna. Vin-
átta hans við morðingjana togast
sannarlega á við bókarskrifin, en
kvölin og meðaumkunin sem
Capote finnur fyrir innra með sér
lýtur fyrst og fremst að honum
sjálfum. Þá hikar hann ekki við að
beita óvönduðum meðölum til að
komast nær viðfangsefni sínu. Það
er kannski einmitt vegna – ekki
þrátt fyrir – þessara skapgerðar-
bresta, sem Capote verður merki-
lega sympatískur karakter.
Myndin er hæg og látlaus en
keyrð áfram af undirliggjandi
þunga; litaáferðin er fallega hrá
og viðeigandi, myndmálið sterkt
sem og áhrifamiklar þagnir sem
einkennast af til dæmis andvarpi
eða skrjáfi í blaðsíðum sem flett
er. Flestir leikararnir standa sig
með prýði; Catherine Keener er
góð sem „hjálparhellan“ Harper
Lee, sem ber móðurlega umhyggju
fyrir Truman en veit sem er að á
sumum sviðum er honum ekki við-
bjargandi; Chris Cooper er traust-
ur að vanda, en Bruce Greenwood
fær svo sem úr litlu að moða sem
Jack Dunphy, ástmaður Capotes.
Clifton Collins er greinilega leik-
ari sem heilmikið býr í og er eftir-
minnilegur sem Perry Smith, en
samband hans og Capotes er
undirstaða myndarinnar.
Bennett Miller, leikstjóri mynd-
arinnar, hefur stimplað sig ræki-
lega inn með sérlega áhrifamikilli
og líklega eftirminnilegri mynd. Á
hið síðarnefnda á eftir að reyna.
Bergsteinn Sigurðsson
Að vera sjálfum sér næstur
CAPOTE
LEIKSTJÓRI: BENNETT MILLER
Aðalhlutverk: Philip Seymour Hoffman,
Catherine Keener, Bruce Greenwood, Clifton
Collins og Chris Cooper.
Philip Seymour Hoffman er óaðfinnanlegur
í áhrifamikilli mynd, sem þrátt fyrir hægláta
frásögn er keyrð áfram af miklum undirliggj-
andi þunga.
Önnur plata hljómsveitarinnar
Ghostigital, In Cod We Trust, er
komin út hér á landi á vegum
Smekkleysu.
Hinn 7. mars kemur hún út í
Bretlandi og Frakklandi hjá
útgáfufyrirtæki Damon Albarn,
Honest Jon´s, en í Bandaríkjunum
hjá Ipecac sem er rekið af Mike
Patton, fyrrum söngvara Faith No
More.
„Við kláruðum þessa plötu í
október en ákváðum að samstilla
útgáfudaginn þannig að hún kæmi
út hjá öllum plötufyrirtækjunum
á sama tíma,“ segir Curver Thor-
oddsen, annar meðlima Ghostigi-
tal ásamt Einari Erni Benedikts-
syni. Kemur platan jafnframt út
með þremur mismunandi umslög-
um eftir því um hvaða plötufyrir-
tæki er að ræða.
Nýja platan fær mun meiri
dreifingu en fyrsta plata sveitar-
innar frá árinu 2003, sem kom
aðeins út hér á landi og í Bret-
landi.
Auk Curvers og Einars Arnar
spila á plötunni Frosti úr Mínus,
Elli úr Jeff Who?, Gísli Galdur,
Hrafn Ásgeirsson og Hrafnkell
Flóki, sonur Einars, sem kallar sig
Kaktus. Allir hafa þeir spilað með
sveitinni á tónleikum. Á meðal
annarra gesta á plötunni eru Mugi-
son, sem syngur í einu lagi,
Ásgerður Júníusdóttir óperusöng-
kona, rapparinn Sensational, sem
einnig var á fyrstu plötunni,
Dälek, Mark E. Smith úr The Fall
og djasspíanóleikarinn Steve
Beresford.
Curver segir að nýja platan sé
poppaðari en sú fyrsta. „Okkur
langaði að gera sterkari plötu en
þá seinustu. Við vildum gera þetta
örlítið aðgengilegra þannig að fólk
myndi dragast frekar inn í þennan
heim en um leið væri þetta skrít-
inn heimur. En fyrir okkur er þetta
bara popp,“ segir hann og hlær.
Ghostigital heldur tónleika í
Berlín 16. mars en ekki hefur enn
verið ákveðið með tónleika í Bret-
landi og Bandaríkjunum. Útgáfu-
tónleikar hér heima eru jafnframt
fyrirhugaðir á næstunni.
freyr@frettabladid.is
Skrítnir en aðgengilegir
GHOSTIGITAL Einar Örn á á tónleikum ásamt syni sínum Hrafnkatli Flóka. Hljómsveitin
Ghostigital er að gefa út sína aðra plötu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Teknótónlistarmaðurinn og plötu-
snúðurinn Marco Bailey þeytir
skífum á Nasa á föstudagskvöld.
Bailey er einn sá virtasti í dans-
tónlistarbransanum. Hann hefur
gefið út rúmlega fimmtíu smáskíf-
ur og átta breiðskífur auk þess
sem hann hefur hljóðblandað tíu
plötur og gert fjörutíu endurhljóð-
blandanir. Bailey hefur spilað úti
um allan heim undanfarin ár og er
m.a. orðinn stærsta númerið á I
Love Techno-hátíðinni.
Exos mun hita upp fyrir Bailey.
Exos hefur verið iðinn við tón-
leikahald að undanförnu auk þess
sem hann sér um þáttinn techno.is
á flass fm 104.5 á fimmtudags-
kvöldum.
Rave-dúettinn Ajax mun koma
aftur saman á Nasa þetta kvöld.
Sveitin er skipuð Þórhalli og Sig-
urbirni og ætla þeir m.a. að spila
sín uppáhaldslög frá Icerave-tíma-
bilinu árið 1992. Ásamt Ajax mun
Aggi Agzilla stíga á stokk. Hann
var einn af umsjónarmönnum B-
hliðarinnar sem var á dagskrá
Útrásar á árunum 1990 til 1992.
Hiphop-plötsnúðarnir Hermi-
gervill, Danni Deluxe, Dj Mezzo
og Dj Paranoya munu trylla lýðinn
á efri hæðinni á Nasa.
Forsala miða fer fram í 12
Tónum og kostar miðinn 1.000
krónur þar en 1.500 krónur við
hurð. ■
Dansveisla Bailey á Nasa
MARCO BAILEY Teknótröllið Marco Bailey er á leiðinni til Íslands.
Nick Mason, fyrrum trommuleikari
Pink Floyd, mun spila með Roger
Waters á tónleikum hans í Frakk-
landi þann 14. júlí.
Ekkert hefur verið rætt um
hvort Mason muni koma með
Waters hingað til lands vegna tón-
leika hans í Egilshöll 12. júní en tón-
leikahaldarar eru að athuga þann
möguleika.
Töluvert hefur verið um fyrir-
spurnir erlendis frá á tónleikana
hér heima enda mun Roger einung-
is halda fimmtán tónleika í þessari
tónleikaferð. Mun hann til að mynda
ekki spila í Bandaríkjunum. ■
Trommar með Waters
PINK FLOYD Hljómsveitin Pink Floyd á Live
8-tónleikunum í London síðasta sumar.
Nick Mason er næstlengst til hægri.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES