Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 94
2. mars 2006 FIMMTUDAGUR54
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HRÓSIÐ
...fær Yoko Ono fyrir að vilja reisa
friðarsúlu úr gleri í Viðey.
LÁRÉTT
2 taug 6 klaki 8 þjófnaður 9 gæfa 11
skóli 12 morðs 14 teygjudýr 16 málmur
17 blóm 18 hækkar 20 2 eins 21 velta.
LÓÐRÉTT
1 fiskur 3 kind 4 kennslubók 5 líða vel 7
sárabindi 10 lærdómur 13 samstæða 15
sót 16 tímabils 19 gylta.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 mænu, 6 ís, 8 rán, 9 lán, 11 ma,
12 dráps, 14 amaba, 16 ál, 17 rós, 18 rís,
20 kk, 21 snúa.
LÓÐRÉTT: 1 síld, 3 ær, 4 námsbók, 5 una,
7 sáralín, 10 nám, 13 par, 15 aska, 16 árs,
19 sú.
TÓNLIST
Ég tek svona rispur í því að hlusta á
tónlist, því stundum finnst mér þögnin
mjög fín. Ég eignaðist um daginn disk
með franskri hljómsveit sem heitir
„Stereo Total“ og geymir stórfurðulega
músík, en að sama skapi stórfína og
skemmtilega.
BÓK
Ég les bæði allt of lítið og allt of sjaldan.
Er þó reyndar að lesa mig í gegnum
skáldsögu eftir Jón Atla Jónasson sem
kom út fyrir jólin og heitir „Í frostinu“.
Þetta er falleg og persónuleg saga og ég
hlakka mikið til að klára hana... best ég
geri það bara í kvöld.
BÍÓMYND
Síðasta mynd sem virkilega hreif mig
var „Brokeback Mountain“. Ég hef verið
aðdáandi Ang Lee síðan ég sá „The Ice
Storm“ sem hann gerði fyrir nokkrum
árum. Þessi nýja mynd Lee er einstök
fyrir margra hluta sakir og þegar ég gekk
út úr bíóinu rifjaðist allt í einu upp fyrir
mér hvers vegna ég vil gera kvikmyndir.
Þær geta nefnilega, þegar vel tekst til,
brotið niður múra, unnið gegn hleypi-
dómum og minnt okkur á það sem
mestu máli skiptir.
BORG
Mín uppáhaldsborg er Kraká í suður-
hluta Póllands. Hún er svona lítil Prag
og þar af leiðandi minni troðningur og
auðveldara að slaka á. Góður matur,
mikil menning, gullfalleg byggingarlist
og hjartahlýtt fólk.
BÚÐ
Ég er nú ekki mikill búðarápari, en dett-
ur einna helst í hug Virgin Megastore í
Lundúnum. Sú góða verslun er reyndar
stórhættuleg fyrir visa-kortið því þar
kemst maður yfir fágætar kvikmynda-
perlur á DVD, sem því miður eru alls
ófáanlegar hér heima.
VERKEFNI
Mér finnst gaman að fylgja „Blóðbönd-
um“ eftir og fylgjast með því hvað allt
það trausta fólk sem vann myndina
með mér er að fá það hrós sem það
á svo sannarlega skilið. Án þess væri
myndin ekkert annað en hálfbökuð
hugmynd í hausnum á mér.
AÐ MÍNU SKAPI ÁRNI ÓLAFUR ÁSGEIRSSON LEIKSTJÓRI
Stereo Total, Ang Lee, Kraká og Virgin Megastore
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á síðu 8
1 Alfreð Þorsteinsson.
2 1986.
3 Sean Lennon.
Fyrir liðlega mánuði var einleikur-
inn Naglinn eftir Jón Gnarr frum-
sýndur á Litla sviði Borgarleik-
hússins. „Gunnar Sigurðsson bað
mig að skrifa fyrir sig leikrit og
þetta varð úr,“ svaraði leikskáldið
þegar hann var inntur eftir því af
hverju hann hefði sest niður og
skrifað þennan einleik. Naglinn er
broslegur harmleikur um karl-
mennskuna og í tengslum við sýn-
inguna var hleypt af stað kosningu
hver væri Nagli ársins. Hlustend-
ur Gulla Helga á Bylgjunni gátu
hringt inn og kosið hver þeim
þætti hafa skarað fram úr í hlut-
verki karlmannsins og sýnt fram á
karlmennsku þannig að eftir því
hefði verið tekið. Voru eiginleikar
á borð við heiðarleika, hreinskilni,
virðingu og vináttu í hávegum
hafðir sem og dugnaður og fram-
sýni auk hógværðar.
Margir voru tilkallaðir en
aðeins einn útvalinn. Fjölmargir
nefndu þekkt heljarmenni á borð
við Sigurð ísmann sem handrotar
hákarla og lifir meðal hættulegra
villidýra á Grænlandi. Íslendingar
voru þó ekki í miklum vafa hver
væri Nagli ársins 2006 og kusu
Sigurð G. Guðjónsson, hæstarétt-
arlögmann og stjórnarformann
Árs & Dags sem gefur út Blaðið.
Útgefandi sýndi að hann er full-
sæmdur af nafnbótinni, hafði
engan tíma til að ræða við Frétta-
blaðið um þessa útnefningu. „Ég
er á fundi sem stendur til sjö,“
sagði hann og viðurkenndi að hafa
heyrt af henni en þar með var
samtalinu líka lokið. Sigurður fær
forláta verðlaunagrip, nagla á
tréstauti, afhentan við hátíðlega
athöfn á Múlakaffi í dag klukkan
fimm.
- fgg
Sigurður Nagli ársins
SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON Var valinn
Nagli ársins í tengslum við sýninguna
Naglinn eftir Jón Gnarr sem nú er á fjölum
Borgarleikhússins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Singapúrútgáfa tímaritsins Tatler
birtir veglega og ríkulega mynd-
skreytta umfjöllun um Dorrit
Moussaieff forsetafrú í svoköll-
uðu „society“-hefti sínu. Þar er
farið yfir rómantískt ástarævin-
týri hennar og Ólafs Ragnars
Grímssonar og hún er sögð hafa
gert lítið fiskimannasamfélag að
eftirsóknarverðum áfangastað á
heimskortinu.
Hjónabandi Ólafs Ragnars og
Dorritar eru gerð skil í greininni
og bakgrunnur þeirra hjóna er
sagður eins ólíkur og hugsast geti
og ástarsaga þeirra ævintýri lík-
ust. Hann sé rakarasonur frá
Íslandi en hún hafi lært að telja
með perlum og rúbínum úr vinnu-
stofu föður síns. Dorrit og Ólafur
komu íslensku þjóðinni skemmti-
lega á óvart þegar þau gengu í
hjónaband á sextugsafmælisdegi
forsetans. Dorrit segir í við-
talinu við Tatler að
hún hafi gefið
honum hönd
sína í
afmælis-
gjöf eftir
að arm-
bandsúr
sem
hún
hafði áður fært honum skilaði ekki
tilætluðum árangri.
„Ég spurði hann hvort hann
langaði í eitthvað annað,“ segir
Dorrit. Forsetinn svaraði að bragði
að hann vildi að hún giftist sér og
síðar þennan sama dag fékk hann
óskina uppfylta.
Er ekki partíljón
Dorrit var á unglingsaldri þegar
foreldrar hennar fluttu með hana
til Englands. Skemmtanalíf Lund-
únaborgar var þá í miklum blóma
og hin unga Dorrit heillaðist af
Lundúnasveiflunni og tók virkan
þátt í samkvæmislífinu. Foreldrar
hennar áttu erfitt með að sætta sig
við skemmtanagleði dótturinnar,
sem brá því á
það ráð að
flytja að
heiman sex-
tán ára
gömul.
„Á þess-
um árum
gerði
fólk
hluti sem ég er viss um að margir
sjá eftir,“ segir Dorrit og bætir
því við að hvað sjálfa sig varði
vilji hún þó ekki tala um eftirsjá.
„En við hugsuðum ekki mikið um
afleiðingar gjörða okkar. Það var
lifað fyrir augnablikið á þessum
tímum.“
Það orð hefur löngum farið af
Dorrit að hún sé mikið sam-
kvæmisljón en hún upplýsir Tatl-
er um að þetta sé byggt á nokkrum
misskilningi. „Þveröfugt við það
sem þú kannt að halda eða hafa
heyrt er ég ekki mikið fyrir sam-
kvæmi. Ég fer sárasjaldan á opn-
anir á sýningum og í stór kvöld-
verðarboð. Ég hef alltaf frekar
kosið að eyða tíma mínum með
fjölskyldunni og nánum vinum.“
Alisia, móðir Dorritar, segir
hana alltaf hafa verið mjög sjálf-
stæða og strax sem barn hafi hún
verið ákveðin og viljað fara sínar
eigin leiðir. Sjálf segist Dorrit
ætíð hafa staðið á eigin fótum og
verið þeirrar gæfu aðnjótandi að
verða aldrei háð neinum. „Þess
vegna er það mér mjög mikilvægt
að halda áfram að sinna skart-
gripaviðskiptum mínum,“ segir
hún og lætur þess jafnframt getið
að það séu engir hagsmuna-
árekstrar fólgnir í því að vera
bæði forsetafrú og skartgripa-
hönnuður. „Þvert á móti og þar
sem ég afla mér tekna sjálf get
ég sinnt hlutverki mínu sem for-
setafrú enn betur.“
Markaðssetning Íslands
Talið berst í framhaldinu að öfl-
ugu landkynningarstarfi Dor-
ritar en blaðamaður segir hana
nota hvert tækifæri til þess að
koma íslenskri menningu á fram-
færi í útlöndum. Dorrit segir að í
þeim heimi sem við búum í sé
markaðssetning lykillinn að
góðum árangri í einu og öllu. Með
þetta að leiðarljósi gerir hún allt
sem hún getur til þess að kynna
sitt heittelskaða Ísland. Dorrit
bætir því svo við að hún hitti vini
sína nánast aldrei þegar hún fer til
London. Þar sinnir hún nær ein-
göngu fjölskyldu sinni og viðskipt-
um þar sem vinir hennar kjósi
miklu frekar að heimsækja hana
til Íslands.
thorarinn@frettabladid.is
SINGAPORE TATLER: BIRTIR VEGLEGA ÚTTEKT Á DORRIT MOUSSAIEFF
Kemur fiskimannasamfélagi á kortið
FORSETAHJÓNIN Koma úr ólíkum
áttum. Hann er rakarasonur frá Ísa-
firði en ætt hennar hefur í um það
bil 800 ár höndlað með skartgripi
og sjálf lærði hún sem barn að telja
með perlum og rúbínum.
FLOTTASTI KJÓLL Tatler segir hina alþýðlegu
Dorrit hafa skyggt á sjö drottningar, tuttugu
og fimm prinsessur og átján barónessur
þegar hún kom í brúðkaup Friðriks krón-
prins og Mary Donaldson í glæsilegasta
kjólnum.
Hefur
sé› DV
í dag?
flú
Ungur maður í
gæsluvarðhaldi
fyrir að ræna
unglingsstúlku
„Öðruvísi en þetta lítur út fyrir að vera
,“
segir faðirinn Snæbjörn Tr. Guðnason
2x10 1.3.2006 20:33 Page 1