Fréttablaðið - 07.03.2006, Side 10

Fréttablaðið - 07.03.2006, Side 10
10 7. mars 2006 ÞRIÐJUDAGUR SNJÓR Í KAUPMANNAHÖFN Enn er langt til vors í Danmörku og spá veðurfræðingar áframhaldandi vetrarhörkum þar í landi. Danir láta þó ekki bugast og halda áfram að hjóla í snjókomunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Norðmaður fórst í skriðu Norskur ferðamaður lést á sunnudag á Norður- Ítalíu þegar snjóskriða féll á hann. Mikill snjór á norðanverðri Ítalíu undanfarna daga hefur valdið fjölda skriða og snjóflóða og hafa ferðamenn oft verið hætt komnir. ÍTALÍA JERÚSALEM, AP Ehud Olmert, starf- andi forsætisráðherra Ísraels, sagði við Vladimír Pútín Rússa- forseta um helgina að viðræður Rússa við leiðtoga Hamas-samtak- anna hefðu verið mistök. Leiðtogar Hamas voru í Moskvu um helgina og ræddu meðal ann- ars við utanríkisráðherra Rúss- lands. Vladimír Pútín samþykkti þó ekki að hitta þá. Stefna Rússa er að ræða við alla hlutaðeigandi en í yfirlýsingu sagðist Olmert vera ósammála þeirri stefnu. Samskipti Rússa við Hamas yrðu aðeins til þess að letja Hamas til breytinga sem alþjóða- samfélagið krefðist. ■ Olmert ósáttur við Rússa: Viðræður við Hamas mistök Nýr formaður BSRB, Garðar Hilmarsson, var kjörinn formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar á aðalfundi félagsins síðastliðinn laugardag, 4. mars. Hann tekur við af Sjöfn Ingólfsdóttur en henni var þakkað gott starf í þágu félagsins. Félagið er áttatíu ára um þessar mundir. FÉLAGSMÁL FUGLAFLENSA, AP Yfirmaður mat- væla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, Jacques Diouf, ásakaði Vesturlönd í gær um seinagang í viðbrögðum við fuglaflensu. Ráðamönnum á Vest- urlöndum hefðu að hans sögn fundist upphaf síðasta faraldurs- ins, í Asíu árið 2003, vera langt í burtu og því hefðu þeir trassað að grípa til viðeigandi ráðstafana vegna yfirvofandi faraldurs. Diouf lét þessi ummæli falla í við- tali við franska blaðið Liberation. Flensan hefur haft áhrif á líf yfir 300 milljón bænda og hefur kostað landbúnað í þeim löndum þar sem hún hefur fundist gríðar- legar fjárhæðir. Þetta kom fram í máli Margaret Chan, yfirmanns fuglaflensuviðbragða Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar, WHO, á ráðstefnu sérfræðinga í Genf í gær. Fuglaflensa er fyrst og fremst fuglasjúkdómur en óttast er að veiran sem veldur honum stökk- breytist og geti þá smitast frá manni til manns og valdið heims- faraldri, en þeir ganga yfir nokkrum sinnum á öld. Á 20. öld- inni urðu heimsfaraldrar árin 1918, 1957 og 1968. Þetta er í fyrsta sinn sem reynt er að sporna við faraldri áður en hann hefst. Samkvæmt tölum WHO hafa 94 manns látist úr H5N1-veirunni síðan árið 2003, allir í Asíu eða Tyrklandi. Á sama tíma hefur milljónum fugla verið slátrað víða um heim vegna flensunnar. Að sögn talsmanna WHO er ekkert bóluefni til við vírusnum, en vísindamenn víða um heim keppast nú við að þróa virkt bólu- efni. Heilbrigðisyfirvöld í Banda- ríkjunum tilkynntu í gær að þau hefðu samþykkt þróun annars bóluefnis en þess sem rannsókn- armenn þar í landi hafa unnið að síðan árið 2004. Þau telja sig eiga nokkrar milljónir skammta af bóluefni gegn fuglaflensuvírus sem fannst í Víetnam árið 2004, en vísindamenn telja veiruna hafa þróast síðan svo það bóluefni myndi hvort sem er ekki virka, kæmi til þess að það yrði notað. Þar af leiðandi hafa milljónir doll- ara verið eyrnamerktar til rann- sókna og þróunar á bóluefni gegn þessum breytta vírus. smk@frettabladid.is Ríki heims bæti viðbúnað Fuglaflensan breiðir enn úr sér og finnst í sífellt fleiri Evrópuríkjum. Seinagangur ríkari landa heimsins varð yfirmanni matvæla- og landbúnaðar- stofnunar Sameinuðu þjóðanna að ádeiluefni í gær. KJÚKLINGAR Alifuglabændur færa nú fugla sína inn fyrir hússins dyr víða um Evrópu, af ótta við fuglaflensu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LUNDÚNUM, AP Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, lýsti fullu trausti til menningarmálaráð- herrans Tessu Jowell í gær, er þrýstingur fór vaxandi á að hún segði af sér vegna rannsóknar sem stendur yfir á fjár- málaviðskiptum eigin- manns hennar. Eiginmaðurinn, lög- maðurinn David Mills, er flæktur í rannsókn ítalskra sak- sóknara sem gæti leitt til spilling- arákæru á hendur ítalska ríkisstjórnarleiðtoganum og auðkýfingnum Silvio Berlusconi. Mills er sak- aður um að þiggja mútur frá Berlusconi. Jowell og Mills skildu að borði og sæng um helgina. Jowell mætti í fyrir- spurnatíma á breska þinginu í gær og fékk þar óáreitt að svara spurn- ingum sem til hennar var beint sem fagráðherra menning- armála. - aa Mál Tessu Jowell: Blair ítrekar stuðning TESSA JOWELL Berst fyrir pólitísku lífi sínu. HÚSNÆÐISMÁL Þorfinnur Her- mannsson, sem rekur gisti- og veit- ingahús í Neskaupstað, gagnrýnir bæjaryfirvöld fyrir að leigja félags- heimilið Egilsbúð á rúmlega fimm- tíu krónur á hvern fermetra til áþekks rekstrar og hann stundar. Þorfinnur og kona hans gerðu upp gamalt hús undir rekstur sinn- og lögðu í þá framkvæmd um tut- tugu milljónir króna. Þorfinni finnst blóðugt að reka fyrirtæki í sam- keppnisumhverfi „þegar einhver getur gengið inn í Egilsbúð fyrir sama og ekki neitt. Það væri eðli- legt að borga 800 til 1000 krónur á fermetrann.“ Þorfinnur segir að allt lífsstarf þeirra hjóna sé bundið í fyrirtækinu og ef þau neyðist til að hætta rekstri missi þau aleiguna enda mjög erfitt að selja reksturinn eins og staðan sé núna. Smári Geirsson, forseti bæjar- stjórnar í Fjarðabyggð, segir að félagsheimilin í sveitarfélaginu séu leigð út samkvæmt gildandi lögum og reglum. Reksturinn sé boðinn út en alltaf sé hægt að deila um leigugjaldið sjálft. Hann segir að leigugjaldið ráðist af framboði og eftirspurn. Smári segir það mjög miður ef Þorfinnur neyðist til að hætta rekstri en jafnframt að það sé mikil krafa til sveitarfé- lagsins um að fasteignir þess séu nýttar í þágu samfélagsins. - shá Leiga félagsheimilis undir veitingarekstur í Fjarðabyggð gagnrýnd: Fimmtíu kall á fermetrann EGILSBÚÐ Í NESKAUPSTAÐ Leigan á Egils- búð er 50 krónur á fermetrann. Veitinga- maður á staðnum segir erfitt að keppa við forskotið sem gefið er af bæjaryfirvöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN KNÚTUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.