Fréttablaðið - 07.03.2006, Síða 29

Fréttablaðið - 07.03.2006, Síða 29
11 FASTEIGNIR ÞRIÐJUDAGUR 7. mars 2006 KÓPAVOGSBÆR AUGLÝSING UM AFGREIÐSLU BÆJARSTJÓRNAR KÓPAVOGS Á AUGLÝSTRI TILLÖGU AÐ DEILISKIPULAGI. Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst afgreiðsla bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi deiliskipulagstillögu: Kópavogstún. Deiliskipulag. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 8. nóvember 2005 tillögu að deiliskipulagi Kópavogstúns. Þann 24. maí 2005 samþykkti bæjarstjórnin að kynna tillögu að deiliskipulagi Kópavogstúns. Var tillagan auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá 13. júlí til 10. ágúst 2005. Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum rann út 24. ágúst 2005. Athugasemdir og ábendingar bárust. Í hinni auglýstu tillögu að deiliskipulagi Kópavogstúns var miðað við að aðrar byggingar en gamli Kópavogsbærinn, Hressingarhælið, leikskólinn Urðarholt og byggingar Sunnuhlíðar yrðu fjarlægðar og í þeirra stað myndi rísa ný byggð,- einbýlishús, parhús og fjölbýlishús alls 325 íbúðir auk 57 þjónustuíbúða. Að lokinni kynningu var tillagan lögð fyrir skipulagsnefnd að nýju 4. október 2005 ásamt framkomnum athugasemdum og ábendingum. Nefndin samþykkti, með tilvísan í framkomnar athugasemdir að fresta skipulagi á ì miðjusvæði Kópavogstúns. Frestunin nær til 4,3 ha lands þar sem fyrirhugaðar voru 122 íbúðir í fjölbýli og 6 einbýlishús eða samtals 128 íbúðir af þeim 325 íbúðum auk 57 þjónustuíbúða sem fyrirhugaðar voru á skipulagssvæðinu. Var jafnframt samþykkt að afmörkun þess svæðis sem frestunin nær til verði færð inn á deiliskipulagsuppdrátt tillögunnar. Þá samþykkti nefndin að: • Kópavogsbraut 19 (Stubbasel) verði ekki rifið og fyrirkomulagi bílastæða við Leikskólann Urðarholt breytt. • Þjónustuíbúðir fyrir aldraða við D-götu verði skilgreindar á deiliskipulagsuppdrætti (e, f og g). • Mörk landareigna Kópavogsbæjar og ríkisins færð inn á deiliskipulagsuppdrátt. Breytingartillaga skipulagsnefndar er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð, skýringarmyndum og skipulagsskilmálum dags. 29. apríl 2005 og breytt 4. október 2005 var lögð fram til síðari umræðu og samþykkt í bæjarstjórn 8. nóvember 2005 eins og að ofan greinir. Í henni er gert ráð fyrir 197 nýjum íbúðum í 1-2 hæða einbýlishúsum og parhúsum svo og í fjöl- býlishúsum sem verða annars vegar 2 hæðir auk kjallara og hins vegar 4 og 5 hæða auk kjallara. Á hluta fjölbýlishúsanna er jafnframt ráðgerð þakhæð. Þá er í tillögunni miðað við að reistar verði 57 nýjar þjónustuíbúðir sem auðkenndar eru á deiliskipulagsuppdrættinum eins og að ofan greinir. Miðað við um 10 ha nýbyggingar- svæði (14,0 ha - 4,3 ha sem frestunin nær til) verður þéttleiki byggðarinnar um 20 íbúðir á ha (25 íbúðir á ha ef þjónustuíbúðirnar eru með- taldar) og áætlaður íbúafjöldi á svæðinu miðað við 3 íbúa á íbúð og 1,5 íbúa í þjónustuíbúð er um 690 íbúar. Þá er í tillögunni gert ráð fyrir að aðkoma að svæðinu verði frá Urðarbraut og Kópavogsbraut jafnframt því sem gert er ráð fyrir nýju hringtorgi á Kópavogsbraut norðan Sunnuhlíðar og breytingu á vegtengingu að hringtorgi á Digranesvegi/Borgarholtsbraut í miðbæ Kópavogs með akreinum bæði til suðurs og norðurs. Enn fremur hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar á framlögðum gögnum: • Í skipulagsskilmálum hefur umfjöllun um hljóðvist verið endurbætt og gerð ítarlegri bæði í almennum ákvæðum og í sérákvæðum. Þá hefur greinargerð Almennu verkfræðistofunnar Hljóðvist í nýju hverfi á Kópavogstúni, verið bætt við skilmálahefti. • Texti greinargerðar yfirfarinn. • Helgunarsvæði Hafnarfjarðarvegar sýnt. • Leiksvæði sýnd á uppdrætti. • Byggingarreitir í sérskilmálum sérbýlishúsa og fjölbýlishús hafa verið yfirfarðir. • Lóðamörk Sunnuhlíðar og leikskólans yfirfarin. • Bílastæði fyrir lóð Hressingarhælisins auðkennd. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 7. mars 2006. Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreinda deiliskipulagsáætlun og afgreiðslu hennar er hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:00 og 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:00 til 14:00. Skipulagsstjóri Kópavogs. Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni, LBVRN Aðalfundur í Norræna húsinu, fimmtudaginn 9. mars 2006 kl. 17:00 - 20:00 Fundarstjóri Þór Vilhjálmsson, f.v hæstaréttardómari Dagskrá 17:00 - 17:10 Fundarsetning - Kosning fundarritara 17:10 - 17:20 Skýrsla stjórnar og umræður 17:20 - 17:30 Reikningar ársins 2005 17:30 - 17:35 Ákvörðun árgjalds 17:35 - 17:45 Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna 17:45 - 17:50 Starf landssamtakanna Sveinn Á. Jónsson, varaform. Landsbyggðin lifi 17:50 - 18:10 Hlé 18:10 - 18:20 Ávarp ráðherra byggðamála Valgerðar Sverrisdóttur 18:20 - 18:30 Borgin og landsbyggðin Guðmundur St. Ragnarsson, hdl. 18:30 - 18:40 Verkefnið, Unglingalýðræði í sveit og bæ Fríða Vala Ásbjörnsdóttir 18:40 - 18:45 Aðkoma HÍ að verkefninu, Unglingalýðræði í sveit og bæ Sigurlína Davíðsdóttir, dósent 18:45 - 19:05 Verðlaunaafhending Valgerður Sverrisdóttir, ráðherra, og Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fegurðardrottning, og verndari verkefnisins, Unglingalýðræði í sveit og bæ 19:05 - 19:10 Ávarp formanns LBVRN - Stefnumótun og starfsáætlun á nýju ári 19:10 - 19:15 Kosning fulltrúa á Aðalfund LBL (20. júní 2006) Önnur mál Bifreiðastjóri Hollt og Gott ehf. óskar eftir að ráða bifreiðastjóra til starfa. Nánari upplýsingar veitir Ægir Kópsson í síma 862-9106. Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara. Viljum ráða til okkar aðstoðarmanneskju sjúkraþjálfara. Við- komandi þarf að vera fær í mannlegum samskiptum. Starfs- reynsla er æskileg. Starfið veitist frá 1.maí. Vilt þú bætast í okkar góða hóp starfsmanna? Við óskum eftir fólki í aðhlynningu á hinar ýmsu vaktir, bæði heilsdags- og hlutastörf. Sveigjanlegur vinnutími. Einnig vantar starfsmann á næturvaktir. Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 530-6100 virka daga kl. 9:00 til 12:00. Ármúli 15 - Sími: 515 0500 - www.fasteignakaup.is OPIÐ HÚS Sólvallagata 54, Reykjavík Falleg nýstandsett 2ja herbergja íbúð við Sólvallargötu í Reykjavík. Íbúðin sem er endurnýjuð og hafa lagnir og ofnar verið endur- nýjað. Allur frágang- ur er til fyrirmyndar og er hiti í stétt og sérinngangur. Kom- ið er inní forsofu með flísum á gólfi . Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og er með sturtuklefa. Stigi er á efrihæð er með kókosteppi á . Rúmgóð stofa með parketi og er með fulningalistum og rósettum afar smekklegt. Eldhús er með nýrri innréttingu. Svefnherbergi er með parketi á gólfi . Sérgeymsla í íbúð. Sameignlegt þvottahús . Stór og fallegur garður. Falleg eign sem er tilbúin til afhendingar. Lyklar á skrifstofu. Íbúðin er laus við kaupsamning. Páll Höskuldsson tekur á móti gestum milli kl. 18 - 19 í dag. Sveinn Skúlason hdl. lögg. fasteigansali Fr um TILKYNNINGAR TILKYNNINGAR ATVINNA 24-29 smáar 6.3.2006 16:12 Page 7

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.