Fréttablaðið - 07.03.2006, Page 40
Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. Fax 554 4102.
rafport@rafport.is www.rafport.is
Umboðsmenn um land allt
• Miðar á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
• Á CD/DVD diska, miðar úr plasti
• Prentar miða úr Word-, Excel- og Outlook
• Prentar merkiborða bæði á pappír og plast,
stærðir eftir vali, allt að eins meters langa
• Allt að 62mm breidd
• 50 miðar á mínútu*
• USB tenging
• Windows hugbúnaður
• Sjálfvirk klipping
• Heilar lengjur eða staðlaðar
*Staðlaðir póstfangamiðar
Fljótvirkasti miðaprentarinn
Umboðsaðili:
QL-550
Ti lboðsverð 12.999 kr. Augl. Þórhildar 1390.43
Sendu SMS skeytið
BT 3XF á númerið 1900
og þú gætir unnið!
Við sendum þér spurningu. Þú svarar með því að sendaSMS skeytið BT A, B eða C
á númerið 1900.*Aðalvinningur er 50” SONY Plasma sjónvarpað verðmæti 1.500.000 kr.Rosalegir aukavinningar : Panasonic heimabíó • GSM símar • 32” JDV LCD sjónvarp • PSP tölvur • SONY myndavélar •TOSHIBA fartölvur • PS2 tölvur • Gjafabréf á Tónlist.is • SONY MP3 spilarar • MEDION tölvur + 19” skjár • Bíómiðar á myndina Yours, mine and ours • Kippur af Pepsi • Enn meira afDVD, CD´s, VHS, tölvuleikjum og fleirra!
-00K00GED
Frumsýnd 10. mars
2 foreldrar, 18 krakkar!
Fjörið er endalaust!
000
1.500
50”
Sjónvarp
AÐAL-
VINNINGUR!
TAK
TU
ÞÁ
TT!
SMS
LEIK
UR �������
VINNUR!
*Aðalvinningur verður dreginn út úr öllum innsendum SMS skeytum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
FRÉTTIR AF FÓLKI
David Beckham sagðist í götublað-inu The Sun finna fyrir nærveru
yfirnáttúrulegs krafts. Fyrirliði enska
landsliðsins í knattspyrnu finnur fyrir
einhverju afli sem fylgist með hverju
skrefi jarðarbúa. „Þessi tilfinning
veitir mér stuðning,“ sagði Beckham og
dásamaði líferni knattspyrnumannsins.
„Ég er mjög þakklátur því líf
atvinnumannsins er
það besta og falleg-
asta sem til er,“
útskýrði hann.
Beckham-hjónin
eru sögð vera
ákafir fylgjendur
Kabbalah-safnaðarins
og deila þeim áhuga
með poppdrottning-
unum Madonnu og
Britney Spears.
Pete Doherty er enn og aftur kominn í meðferð. Nú er það reyndar ekki
vegna fíkniefnamála heldur
segir The Sun söngvarann
þjást af þunglyndi.
Doherty hefur ekki
átt sjö dagana sæla
en gula pressan tók
fantatökum eftir
nokkur velvalin
mistök. Snerist
breska þjóðin
gegn Doherty eftir
að hann skildi
Kate Moss eftir í
vondum málum
þegar blöðin birtu myndir af henni
með kókaín. Doherty mætir í tíma hjá
Homerton-spítalanum og segist The Sun
hafa heimildir fyrir því að hann kenni
ströngu uppeldi föður síns um öll sín
mistök en sá er foringi í breska hernum.
Tom Hanks, Bono og Brad Pitt eru meðal þeirra stjarna sem ætla að
veita baráttunni gegn alnæmi stuðning.
Ætla stjörnurnar að klæðast hvítu fyrir
nýja heimasíðu sem hleypt verður af
stokkunum undir nafninu one.org.
Nafngiftin er varla tilviljun því írsku
risarnir í U2 sungu samnefnt
lag um sjúkdóminn
sem flestir héldu
vafalaust að
væri ljúfsár
ástarballaða.
Stjörnurnar
smella fingrum á
þriggja sekúndna
fresti en þá deyr
einhver úr alnæmi.
KVIKMYNDIR
[UMFJÖLLUN]
Kvikmyndin The Constant Gard-
ener byggir á samnefndri skáld-
sögu John Le Carré og fjallar um
hjónin Justin og Tessu Quayle
(Fiennes og Weisz) sem búa í
Kenýa. Þau eru ólíkt par - jafnvel
ólíklegt; Justin er góðhjartaður
og dagfarsprúður erindreki
bresku utanríkisþjónustunnar og
hefur yndi af garðyrkju. Tessa er
hins vegar skapheitur róttækling-
ur sem ekkert aumt má sjá.
Þegar Tessa finnst myrt á
ferðalagi um óbyggðir Kenýa
bendir margt til þess að sam-
ferðamaður hennar og hugsan-
legur ástmaður hafi verið að
verki. Justin telur hins vegar að
ekki séu öll kurl komin til grafar
og byrjar að rannsaka morðið upp
á eigin spýtur. Eftir því sem hann
hættir sér lengra kemst hann að
því að hann er sjálfur í lífshættu
og flæktur í vef spillingar þar
sem hagsmunir stórra lyfjafyrir-
tækja og háttsettra manna í
breska stjórnkerfinu eru að veði.
Þetta er fyrsta mynd brasil-
íska leikstjórans Fernando
Meirelles á ensku, en hann vakti
rækilega athygli fyrir hina eftir-
minnilegu Borg Guðs fyrir
nokkrum árum. Báðar eiga þess-
ar myndir það sameiginlegt að
gerast í gróðrarstíu örbirgðar og
ömurleika. The Constant Garden-
er er löng mynd og framvindan
að mörgu leyti hæg; hún hefst á
morðinu en dágóðum kafla er
varið í nauðsynlegt endurlit til að
bregða birtu á forsögu málsins.
Sagan er hins vegar hlaðin og
spennan magnast upp eftir því
sem á líður. Meirelles beitir líka
ýmsum meðulum til að keyra sög-
una áfram, til dæmis hröðum
klippingum, og sér til þess að
sagan haldi alltaf dampi.
Í leikhópnum er valinn maður í
hverju rúmi. Þótt Ralph Fiennes
sé fjölhæfur leikari er hann í ess-
inu sínu sem settleg séntilmenni á
borð við breska erindrekann. Það
er ekki allra að ljá slíkum persón-
um dýpt en Fiennes fer létt með
það. Rachel Weisz er yndisleg sem
Tessa - réttlætiskenndin uppmál-
uð með tilheyrandi ákaflyndi - og
vel að Óskarsverðlaununum
komin. Danny Huston er sérlega
ógeðfelldur í hlutverki sínu sem
möppudýr sem horfir í þá átt sem
því er skipað og Bill Nighy er
dæmigerður Bill Nighy, sem er
alls ekki slæmt í sjálfu sér.
Þá er tilkomumikið landslag
Kenýa nýtt út í ystu æsar, án þess
að farið sé yfir strikið. Dregin er
upp mynd af landi hrikalegra and-
stæðna, þar sem morðgátan er
aðeins eitt af nokkrum leiðarstefj-
um, því The Constant Gardener er
ekki síst pólitísk ástandslýsing á
afskiptum heimi. Myndin lýsir
vondri og andstyggilegri veröld
þar sem mannslíf mega missa sín
fyrir rétta - þó endilega ekki háa -
upphæð; þjökuðum heimshluta
sem á sér fáa áhrifamikla mál-
svara nema kannski velmeinandi,
en sinnulausa, diplómata á borð
við Justin Quayle.
Meirelles hefur tekist að búa
til áhrifa- og kraftmikla mynd
með hægum en öruggum stíg-
anda. Hann stígur sem betur fer
aldrei í predikunarstólinn en
engu að síður vekur hann áhorf-
andann rækilega til umhugsunar.
Bergsteinn Sigurðsson
Illgresi í Afríku
Hljómsveitin Guns
N´ Roses mun spila á
Hróarskelduhátíðinni í
Danmörku í sumar.
Lítið hefur heyrst til
sveitarinnar á undan-
förnum árum en talið
er að hún muni gefa út
hina langþráðu plötu
Chinese Democracy á
næstunni. Guns N´
Roses ætlaði að spila á
Hróarskeldu 2001 en
hætti við.
Aðrir listamenn sem
hafa boðað komu sína á
hátíðina í ár eru Sigur
Rós, Franz Ferdinand,
Tool, Kanye West,
Deftones, Morrissey,
Placebo, Roger Waters
og The Streets.
Spilar á Hróarskeldu
THE CONSTANT GARDENER
LEIKSTJÓRI: FERNANDO MEIRELLES
Aðalhlutverk: Ralph Fiennes, Rachel Weisz,
Danny Huston og Bill Nighy.
Niðurstaða: Þrátt fyrir hæga framvindu heldur
The Constant Gardener alltaf dampi. Fernando
Meirelles hefur gert spennandi og kraftmikla
mynd sem er til þess fallin að vekja áhorfend-
ur til umhugsunar.
AXL ROSE Söngvari Guns
N´Roses mætir til leiks á
Hróarskelduhátíðina í ár.
MYND/REUTERS
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
FRÁ LEIKSTJÓRA CITY OF GOD
EFTIR METSÖLUBÓK JOHN LE CARRÉ
„...listaverk,
sannkölluð perla“
- DÖJ, kvikmyndir.com
MARGVERÐLAUNUÐ
OG MÖGNUÐ MYND
-MMJ, Kvikmyndir.com
S.
S
Ó.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
FRÁBÆR SKEMMTUN
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
STÓRKOSTLEG VERÐLAUNAMYND
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
- VJV -Topp5.is
- HJ -MBL
- BLAÐIÐ
- G.E. NFS
Ó.H.T. Rás 2
STEVE MARTIN
KEVIN KLINE
JEAN RENO
BEYONCÉ
KNOWLES
PINK PANTHER kl. 6, 8 og 10
NANNY MCPHEE kl. 6
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 8 B.I. 12 ÁRA
CONSTANT GARDENER kl. 10.25 B.I. 16 ÁRA
CAPOTE kl. 5.30, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
TRANSAMERICA kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 14 ÁRA
WALK THE LINE kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
PINK PANTHER kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
CONTANT GARDENER kl. 8 og 10.45 B.I. 16 ÁRA
NANNY MCPHEE kl. 3.40 og 5.50
UNDERWORLD kl. 8 B.I. 16 ÁRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
ZATHURA m/íslensku tali kl. 3.40 og 5.50 B.I. 10 ÁRA
ZATHURA m/ensku tali kl. 5.50 B.I. 10 ÁRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
WALK THE LINE kl. 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.40 og 10.10 SÍÐUSTU SÝNINGAR
Ó.H.T. Rás 2
L.I.B. - topp5.is
- G.E. NFS
M.M.J. Kvikmyndir.com
S.K. DV
„Frábær afþreying...“
S.V. MBL ÓSKARSVERÐLAUNIN
- Besti leikstjóri,
Besta handrit og
Besta tónlist
ÓSKARS-
VERÐLAUNIN
sem besta leik-
kona í aðalhlut-
verki - Reese
Witherspoon
ÓSKARSVERÐLAUNIN
Besta leikkona
í aukahlutverki
Rachel Wisz
ÓSKARSVERÐLAUNIN
sem besti leikari í
aðalhlutverki -
Philip Seymor
Hoffman
TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÍÐUSTU SÝNIN
GAR
SÍÐUSTU SÝNIN
GAR