Fréttablaðið - 11.03.2006, Qupperneq 8
11. mars 2006 LAUGARDAGUR
NISSAN PATHFINDER
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16
Breyting frá Arctic Trucks Ver›i› á Nissan Pathfinder hefur líklega aldrei veri›
hagstæ›ara. Me› 35" sérhönnu›um breytingum eru gæ›i
flessa skemmtilega jeppa einfaldlega or›in enn meiri. Hann
er áfram jafn og flægilegur í akstri og nú ævint‡ri líkastur.
Líttu inn og ber›u hetjuna augum!
ÆVINT†RI
LÍKASTUR
Ver›i› á breyttum Nissan Pathfinder er frá 4.379.000 kr.
Tyrkland
Marmaris og Içmeler sumarið 2006
Fagurt og framandi - fyrir þig!
Vinsælir gististaðir
að seljast upp.Bókaðu strax!
Upplifðu hið fullkomna
sumarfrí fjölskyldunnar:
• Glæsilegir gististaðir
• Vikulegt leiguflug frá 23. maí
• Ótrúlegt verðlag
• Iðandi mannlíf
• Einstök gestrisni
• Stórkostleg náttúrufegurð
• Óteljandi menningarperlur
• Spennandi skoðunarferðir
Faber
Nýtt og notalegt
íbúðahótel
42.600*
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2ja-11 ára, í íbúð m/1 svefn-
herbergi í 7 nætur, 18. júlí.
Stórar, glæsilegar
íbúðir með 2 svefnherb.
39.800*
Netverð á mann m.v. 3 fullorðna og
2 börn, 2ja-11 ára, í íbúð m/2 svefn-
herbergjum í 7 nætur, 27. júní.
Forum
*Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.
www.urvalutsyn.is
Fáðu ferðatilh
ögun og nána
ri upplýsingar
hjá Úrval-Úts
ýn, Lágmúla 4
, sími 585 40
00
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
17
53
03
/2
00
6
FISKVINNSLA Sendinefnd frá Hjalt-
landi hefur nýlokið við að skoða
aðbúnað og starfsemi fiskimjöls-
verksmiðja í Helguvík og í Nes-
kaupstað.
Markmiðið með Íslandsferð-
inni var að ganga úr skugga um að
fiskimjölsverksmiðjur séu ekki
illa lyktandi mengunarvaldar eins
og haldið hefur verið fram í
umræðunni um starfsleyfi fyrir
verksmiðju sem Síldarvinnslan
hyggst reisa á Hjaltlandi. Niður-
staða nefndarinnar er sú að engin
lykt eða óþefur hefði borist frá
verksmiðjunum tveimur og eng-
inn reykur hefði borist frá þeim.
Fiskifréttir sögðu frá. - shá
Fiskimjölsverksmiðjur ekki mengunarvaldar:
Lykta alls ekki illa
LOÐNA Engin ólykt berst lengur frá loðnubræðslum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVEITARSTJÓRNARMÁL Ólafur F.
Magnússon borgarfulltrúi skipar
efsta sæti F-lista Frjálslyndra og
óháðra til borgarstjórnarkosning-
anna í vor. Annað sætið skipar
Margrét K. Sverrisdóttir vara-
borgarfulltrúi og skipa konur fjög-
ur af fimm efstu sætum listans.
Ólafur telur að Framsóknar-
flokkurinn muni verða aðalkeppi-
nautur F-listans um að komast í
oddastöðu í borgarstjórn og stillir
flokkunum upp sem skýrum and-
stæðum. F-listi sem umhverfis-
sinnaður flokkur, laus við spill-
ingu og með mjög lítið fjármagn
meðan Framsóknarflokkurinn sé
mjög andsnúinn umhverfisvernd,
afar spilltur og með gnótt fjár-
muna.
Ólafur gagnrýnir vinstri-græna
einnig fyrir að standa ekki undir
nafni sem umhverfissinnaður
flokkur og nefnir dæmi um slæ-
lega framgöngu þeirra vera húsa-
friðunarmál, strætómál og að til-
laga Ólafs gegn jarðvarmavirkjun
í Kerlingarfjöllum hafi verið felld.
,,F-listinn er eina græna framboð-
ið í Reykjavík og á skilið atkvæði
umhverfissinna,“ segir Ólafur.
Ólafur telur að F-listi muni taka
fylgi af Sjálfstæðisflokknum
vegna flugvallamálsins en F-list-
inn vill einn flokka halda flugvell-
inum í Vatnsmýrinni.
Umhyggja, hreinskilni og rétt-
læti verða kjörorð F-listans sem
setur velferðarmál á oddinn.
Einnig er mikil áhersla lögð á
skipulagsmál og umhverfisvernd.
- sdg
EFSTU MENN F-LISTANS Frá vinstri: Kjartan Eggertsson, Ásta Þorleifsdóttir, Margrét Sverris-
dóttir, Ólafur F. Magnússon, Guðrún Ásmundsdóttir og Anna Sigríður Ólafsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR
Frjálslyndir og óháðir kynna framboðslista:
Segja Framsókn
aðalkeppinautinn
EFNAHAGSMÁL Verðbólgan eykst
enn, að því er fram kemur á frétta-
vef ASÍ. Vísitala neysluverðs var
252,3 stig í mars og hækkaði um
1,12 prósent frá fyrra mánuði.
Verðbólgan hefur verið 4,5 pró-
sent síðustu tólf mánuði.
Verðbólgan er langt yfir 2,5
prósenta verðbólgumarkmiði
Seðlabanka Íslands, segir á vefn-
um, og hefur hún verið það í rúm
tvö ár. Verðbólgan er yfir efri vik-
mörkum verðbólgumarkmiðsins
sjöunda mánuðinn í röð.
Vísitala neysluverðs án hús-
næðis hækkar meira nú en vísital-
an með húsnæði, en það
hefur ekki gerst í
nokkurn tíma.
Skýringin á
aukinni verð-
bólgu er talin
sú að útsölu
á fötum og
skóm er
lokið. Þá
hefur hús-
næðisliður
vísitölunnar
hækkað auk ýmissa
vöru- og þjónustuliða. ASÍ telur
margt benda til að undirliggjandi
verðbólguþrýstingur sé að auk-
ast.
„Veiking krónunnar að undan-
förnu mun mögulega skila sér út í
verðlagið á næstunni. Það er því
útlit fyrir að verðbólguhorfur
verði áfram óviðunandi,“ segir á
fréttavef ASÍ.
„Þessi staða hlýtur að vekja
spurningar um efnahagsstjórnina.
Er það viðunandi árangur í stjórn
efnahagsmála að mati ríkisstjórn-
arinnar að verðbólgan sé langt
yfir verðbólgumarkmiðinu 25
mánuði í röð og verðbólguhorfur
framundan dökkar?“
- ghs
VERÐBÓLGAN EYKST
Alþýðusamband
Íslands telur að
undirliggjandi
verðbólgu-
þrýstingur sé
að aukast og
verðbólguhorfur
verði óviðunandi.
ASÍ bendir á að verðbólgan sé enn að aukast:
Horfur óviðunandi