Fréttablaðið - 11.03.2006, Síða 10

Fréttablaðið - 11.03.2006, Síða 10
 11. mars 2006 LAUGARDAGUR10 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 6.194 -1,23% Fjöldi viðskipta: 1468 Velta: 9.019 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 57,80 -1,20% ... Alfesca 3,60 -5,26%... Atorka % ... Bakkavör % ... Dagsbrún % ... FL Group 25,50 +0,00% ... Flaga 3,42 -2,29% ... Íslandsbanki 19,20 +0,00% ... KB banki 890,00 -1,11% ... Kögun 65,50 +0,00% ... Landsbank- inn 26,80 -1,11% ... Marel 69,00 +0,29% ... Mosaic Fashions 17,00 -3,96% ... Straumur-Burðarás 17,70 -2,75% ... Össur 111,50 -0,45% MESTA HÆKKUN Avion +0,48% Dagsbrún +0,44% Marel +0,29% MESTA LÆKKUN Alfesca -5,26% Vinnslustöðin -4,75% Mosaic -3,96% Grandagarði 2, sími 580 8500 H im in n o g h a f /S ÍA Óvenjuhagstæð vagnalán í boði. Opið laugardag 10–16, sunnudag 12–16 Sýnum Upplýsingar hjá sölumönnum í síma 580 8528 og 580 8529 allt það nýjasta um helgina Njóttu þess besta frá Ellingsen Evró – þar sem gæðin eiga heima Verðbólga milli febrúar og mars jókst um 1,12 prósent samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands. Verð- bólga síðustu 12 mánuði nemur 4,5 prósentum og er hátt yfir mörkum Seðlabankans um 2,5 prósenta verð- bólgu. Í fyrri mánuði var verð- bólgan 4,1 prósent. Síðustu þrjá mánuði hefur verð- bólga aukist um 1,4 prósent, en það segir Hagstofan jafngilda 5,6 prósenta verðbólgu á ári. Verðbólga án hús- næðis hækkaði um 1,17 prósent frá því í febrúar. Verðbólgan er heldur meiri en þau 0,7 til 0,9 prósent sem greining- ardeildir bankanna höfðu spáð. Meiri hækkun er einkum rakin til áhrifa af útsölulokum og þá hækk- aði húsnæðisverð umfram það sem spáð hafði verið. Matarverð hélst nánast óbreytt. Hagstofan segir að við lok vetrarútsala hafi verð á fötum og skóm hækkað um 16,9 prósent. Verð á eigin hús- næði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,1 prósent. „Vísitala neysluverðs í mars 2006, sem er 252,3 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir láns- kjaravísitölu, er 4.982 stig fyrir apríl 2006,“ segir Hagstofan. „Ljóst er að verðbólgan er nú mjög fjarri markmiði Seðlabankans um 2,5 prósenta verðbólgu og fátt bendir til þess að hún muni minnka á næstu mánuðum. Spá okkar um 0,25 prósentustiga hækkun stýri- vaxta 30. mars er óbreytt en líkurn- ar á meiri hækkun, svo sem um 0,5 prósentustig, hafa aukist umtals- vert síðustu vikurnar,“ segir grein- ingardeild Íslandsbanka. „Veiking krónunnar upp á síðkastið, auk kerfisbreytinga sem urðu á útreikn- ingum vísitölu neysluverðs fyrir um ári síðan og leiddu til snöggrar lækkunar verðbólgu í kjölfarið, mun hafa neikvæð áhrif á þróun verðbólgunnar á næstu mánuðum og mun verðbólguhraðinn að öllum líkindum fara vaxandi,“ segir grein- ingardeild KB banka. Stýrivextir Seðlabankans eru nú 10,75 prósent, en næsti vaxta- ákvörðunardagur bankans er fimmtudagurinn 30. mars. - óká Meiri verðbólga en búist var við FL Group skilaði 17,2 milljarða hagnaði árið 2005 samanborið við 3,6 milljarða hagnað árið 2004. „Við erum mjög ánægðir með afkomu síðasta árs sem er sú lang- besta í sögu félagsins. Við sjáum að hagnaður fyrir skatta var yfir 20 milljarðar króna og þetta ár byrjar mjög vel,“ segir Hannes Smárason, forstjóri FL Group, en afkoman var í takt við væntingar markaðarins. Hagnaður af fjárfestingastarf- semi bar uppi að mestu afkomu síðasta árs en hann nam 15,4 millj- örðum króna. Afkoma af flug- rekstri og ferðaþjónustu var 1.846 milljónir króna og nam rekstrar- hagnaður fyrir afskriftir (EBIT- DA) 4.781 milljónum sem er eins prósents aukning. Hannes er ánægður með hvað þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í flug- rekstrinum hafa skilað sér vel og bendir á að þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður hafi framlegðin hækkað lítillega á milli ára. Það vekur athygli að frá ára- mótum hefur FL Group stóraukið fjárfestingar sínar í erlendum verðbréfum. Um áramót námu þær 26 prósentum af eignarsafni félagsins en eru nú komnar í 45 prósent eða úr 29,3 milljörðum króna í 67,7. „Það var meðvituð ákvörðun sem við tókum í upphafi árs að auka vægi fjárfestinga erlendis. Við töldum að það væri skynsamlegt,“ segir Hannes. Frá áramótum er afkoma félagsins af fjárfestingastarfsemi jákvæð um 17,6 milljarða króna. Þrennt skýrir þann mikla hagnað sem hefur orðið á árinu. Í fyrsta lagi hækkun á hlutabréfamörkuð- um, í öðru lagi sala á rekstrarein- ingum á borð við Ferðaskrifstofu Íslands og Bílaleigu Flugleiða og í þriðja lagi veiking á krónunni sem hefur komið sér vel fyrir FL Group. FL Group hefur aukið hlut sinn í easyJet í 16,9 prósent. Markaðs- virði hlutarins nam í gær tæpum 31 milljarði króna. Með þessu er FL Group orðinn stærsti hluthafi easyJet en stofnandinn, Stelios Haji-Ioannou, á 16,5 prósent. Hannes gat ekki tjáð sig um hvort FL Group hygðist auka hlut sinn frekar. Auk easyJet eru hlutabréf í Íslandsbanka og KB banka stærstu eignir félagsins um þessar mund- ir. eggert@frettabladid.is Erlendar fjárfest- ingar stórauknar Methagnaður á síðasta ári. Yfir 17 milljarða hagnað- ur af fjárfestingum frá áramótum. FL Group bætir hlut sinn í easyJet og er stærsti hluthafinn. ÁNÆGÐUR MEÐ UPPRJÖRIÐ Hannes Smárason, forstjóri FL Group, er ánægður með uppgjör félagsins. Hagnaðurinn var rúmir sautján milljarðar og afkoman það sem af er ári nálgast afkomu ársins í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ / HARI STÆRSTU EIGNIR FL GROUP ÞANN 9. MARS 2006 Innlend hlutabréf - 55% af eignasafni Félag Markaðsvirði Eignarhl. í % Íslandsbanki 43.792 16,1% KB banki 33.400 5,6% Önnur (auk skuldabréfa) 5.443 Samtals 82.635 Erlend hlutabréF - 45% af eignasafni Félag Markaðsvirði Eignarhl. í % easyJet 30.933 16,9% Bang & Olufsen 10.650 10,5% Finnair 8.572 9,5% Royal Unibrew 7.878 17,0% Aktiv Kapital 5.484 10,3% Önnur 4.200 Samtals 67.717 tölur í milljónum króna Börsen í angist Danska blaðið Börsen hefur hingað til haldið ró sinni yfir fjárfestingagleði Íslendinga í Danmörku. Hefur blaðið haldið mun skynsamlegar á umræðu um íslenskt viðskiptalíf, en Berlingske Tidende svo nefndir séu fjölmiðlar utan Íslands. Eitthvað virðist samt Börsen titra yfir umsvifunum því blaðið birti í gær grein þar sem taldir eru upp þeir fjölmörgu Íslendingar sem sitja í stjórnum danskra fyrirtækja. Blaðið telur að með þessum miklu umsvifum muni það bitna á mörgum dönskum fyrirtækjum ef illa fer. Áhyggur Dana virðast vera mestar yfir krosseignarhaldi í íslensku viðskiptalífi. Umfang þess er mun minna en hin lífseigi misskilningur norrænna fjölmiðla og jafnvel greiningardeilda fjármálafyrirtæka segir til um. Yaris í Straumi Það hefur ekki farið á milli mála að Magnús Kristinsson, eigandi Toyota á Íslandi, var afar ósáttur við val á Eggert Magnússyni í varaformanns- sæti í Straumi. Eggert var kynntur á stjórnarfundi sem fulltrúi litla hluthafans, en almennt er hann af þeim sem þekkja til í viðskiptalíf- inu talinn fulltrúi Björgólfs- feðga í stjórninni. Magnús mun hins vegar ekki hafa gert sér grein fyrir því að slagorð sem passar vel við veru Eggerts í stjórn Straums er í eigu Toyota. Það er orðið risasmár, sem er slagorð fyrir Toyota Yaris. Peningaskápurinn MARKAÐSPUNKTARSamkvæmt tölum Seðlabankans var gjaldeyrisstaða bankanna jákvæð upp á tæpa 83 milljarða króna í lok febrúar, en það er um 21,7 milljarða króna hækkun milli mánaða. Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors Corp. ætar að innkalla 900.000 pallbíla vegna galla í festingum sem styður við lok á palli bílanna. Bílarnir voru allir settir á markað á árunum 1999 til 2000. Atvinnuleysi mældist 4,8 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði og er það 1,1 prósentustigs aukning frá janúarmánuði. Þrátt fyrir þetta urðu 243.000 ný störf til í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Sérfræðingar höfðu spáð óbreyttu atvinnuleysi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.