Fréttablaðið - 11.03.2006, Page 16
11. mars 2006 LAUGARDAGUR
Rúna í Stígamótum er ein þeirra
sem þora, vilja og geta. Þeir sem
gerst þekkja hana tala um sterkar
hugsjónir og ríka réttlætiskennd
sem einkenni hana. Einnig að hún
sé ósérhlífin og fylgin sér en líka
mikil fjölskyldumanneskja og hið
mesta tryggða-
tröll.
Á alþjóðleg-
um baráttudegi
kvenna nú í vik-
unni fögnuðu
Stígamót 16 ára
afmæli sínu og
birtu um leið
skýrslu um
starfsemina á
liðnu ári um leið
og þau opnuðu
hús sitt gestum
og gangandi. Á
hátíðafundi Brí-
etar, ungra fem-
ínista um kvöld-
ið var Rúna ein
nokkurra kvenna
sem stigu á svið
og fluttu gjörn-
ing við mikinn
fögnuð áhorf-
enda. Þar flettu
þær meðal ann-
ars upp peysun-
um sínum
örstutta stund til
að sýna hvernig
brjóst venju-
legra kvenna líta
út ef einhver
skyldi hafa
gleymt því í
silíkonæði og
útlitsdýrkun
nútímans.
Rúna heitir
réttu nafni Guð-
rún og er Jóns-
dóttir. Rúnu-
nafnið er til
komið vegna
þess að þegar
hún fór að vinna
fyrir Stígamót
var þar fyrir
skörungur með
sama nafni og
því þurfti
aðgreiningar
við.
Rúna er fædd og uppalin í
Reykjavík og er næstelst í sex
systkina hópi. Sem barn og ungl-
ingur dvaldi hún mörg sumur á
Húsafelli í Borgarfirði hjá Krist-
leifi bónda og hans fólki, passaði
börnin á bænum og tók þátt í leik
og starfi með heimafólki en á
þeim tíma var stundaður þar hefð-
bundinn búskapur á fjölmennum
heimilum. Hún þótti dugnaðar-
stelpa í sveitinni, lífleg og
skemmtileg og laus við hyskni og
matvendni. Þarna kynntist hún
náttúrubörnum og lærði að lesa í
landið. Eflaust hefur sveitadvölin
mótað hana á margan hátt og
meðal annars orðið kveikjan að
líffræðiáhuga hennar því þegar
að því kom að velja sér háskóla-
grein þá varð líffræðin fyrir val-
inu.
Rúna hefur alla tíð verið náms-
hestur. Vogaskólinn var hennar
skóli framan af og eitt árið var
hún með hæstu einkunn allra
nemenda. Kvennaskólinn og
Menntaskólinn við Tjörnina voru
næstu viðkomustaðir hennar á
menntabrautinni. Í þeim báðum
var hún í stelpnabekkjum og þar
hélt hún áfram að brillera á próf-
um.
Að loknu námi í líffræði í
Háskóla Íslands aðstoðaði hún
einn prófessorinn við kennslu um
tíma en síðan réðist hún sem kenn-
ari við Laugabakkaskóla í Mið-
firði, ásamt manni sínum Tómasi
Jónssyni. Eftir tveggja ára dvöl í
Húnaþingi héldu þau í uppsveitir
Árnessýslu og þar kenndi hún
nemendum Reykholtsskóla í Bisk-
upstungum meðan hann lauk námi
við íþróttakennaraskólann.
Kvenfrelsishugsjónir Rúnu
fundu sér farveg innan Kvenna-
listans. Hún gerðist dyggur liðs-
maður þeirra samtaka og starfaði
um tíma á skrif-
stofu þeirra.
Áhuginn fyrir
bættum hag
kvenna skilaði
henni inn í
Kvennaathvarfið
þar sem krafta
hennar var þörf
og þegar eigin-
maðurinn hélt til
náms í Noregi sá
hún sér leik á
borði að fylgja
honum og sér-
mennta sig í
félagsráðgjöf.
Heimkomin lagð-
ist hún á sveif
með nöfnu sinni í
Stígamótum að
berjast fyrir mál-
efnum kvenna
sem hafa orðið
fyrir kynferðis-
legu ofbeldi og
þar tók hún for-
ystu fyrir
nokkrum árum
sem kunnugt er.
Rúna er ávallt
tilbúin að berjast
fyrir sínum mál-
stað og fyrir sína
skjólstæðinga og
af fjölmiðlavið-
tölum við hana
mætti ætla að þar
færi hinn mesti
vargur. Það er þó
ekki álit þeirra
sem mest um-
gangast hana.
Þeir lýsa henni
sem glaðlyndri
og ljúfri konu
sem hafi gaman
af að elda góðan
mat og vera
meðal fjölskyldu
og vina. Dætur á
hún þrjár og þær
hafa fundið góða fyrirmynd í
móður sinni. Útivist og göngur
eru meðal áhugamála Rúnu en ef
frá er talin skíðaiðkun sem hún
hefur lítillega kynnst þá er hún
einhver minnsta íþróttakona sem
sögur fara af. Eitt sinn ætlaði hún
þó að taka sér tak. Dreif sig í
Laugardalinn og eftir sundsprett
skellti hún sér í jogginggallann og
skokkaði út á braut. Skildi ekkert
í öllum áhorfendaskaranum í
stúkunni og vissi ekki að hún var
stödd í miðri keppni á Íslandsmóti
í frjálsum íþróttum. Er hún áttaði
sig á því var hún studd út af braut-
inni af öðrum keppendum en
áhorfendur höfðu gaman af.
MAÐUR VIKUNNAR
Ósérhlífin
og fylgin sér
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
FORSTÖÐUMAÐUR STÍGAMÓTA
MAÐUR VIKUNNAR
Farsæll að eðlisfari
EYJÓLFUR SVERRISSON
LANDSLIÐSÞJÁLFARI Í FÓTBOLTA
H blaelgar ›
Hefurflúsé›
DV í dag?
með
EINAR OG
REGÍNA
Helgarblað
LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 60. TBL. – 96. ÁRG. – VERÐ KR. 295
TÖFFARAR FARA
Á CADILLAC ÞVERT
YFIR BANDARÍKIN
EINAR KÁ, ÓIAFUR OG JÓHANN PÁLL
BERGLIND BYRJAÐIELLEFU ÁRA
AÐ DREKKA
ÚR DÓPHEIMUM
Les í sálarlíf
og himintugl
FLOTTUSTU
PÍURNAR
ARNAR GRANT
HEIMSÆKIR ÖLL
VEITINGAHÚSIN
UNDIRBÚA
SIG FYRIR
VORIÐ
SORGLEGUSTU DÆGUR-LAGATEXTARNIR
„VIÐ TRÚUM ÞESSU VARLA ENN“Anna Þór Auðunsdóttir og Hanna Rún Þór eru lesbí-ur sem þráðu að eignast barn. Þær fóru sínar eiginleiðir til þess að æðsti draumur þeirra gæti ræst –að vera fjölskylda. Þær útveguðu sér sæði, komuþví sjálfar fyrir og úr varð barnið, sem þær þráðu.Þær áttu engan annan kost því á Íslandi geta lesbí-ur ekki farið í tæknifrjóvgun.
Vinur
okkar
GAF
OKKUR
SÆÐI
XXX
SLOPPIN
ÚR HEIMI
VÍMUEFNA
helgar augl 10.3.2006 21:35 Page 3