Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 18
11. mars 2006 LAUGARDAGUR18
stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
Óraunhæf evra...
Skyndilega skipast veður í lofti. Embættismenn biðja um aukið samstarf
við Evrópusambandið um viðbrögð við fjármálaáföllum og Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hefur ótrú á krónunni og vill athuga upp-
töku evrunnar, þó án aðildar að sambandinu. Lengra er nú varla hægt
að ætlast til að gengið sé í einu skrefi af hálfu ráðherra í ríkisstjórn
sem hefur ekki á dagskrá að ræða Evrópusamband-
ið. Þó er þess að geta að Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra spáði nýlega aðild þjóðarinnar að ESB
eftir tíu ár eða svo. Geir H. Haarde utanríkisráðherra
og Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra
brugðust ákveðið við útspili Valgerðar og sögðu
óraunhæft að taka upp evru hér á landi án
aðildar að Evrópusambandinu. Slógu málið
kalt. Hér töldu ýmsir sjálfgefið að Samfylkingin
mundi fagna útspilinu og ausa viðskiptaráð-
herra lofi fyrir djörfung og embættismennina
fyrir framsýni. Guð láti gott á vita og sama
hvaðan gott kemur. Samfylkingin er nú einu
sinni flokkurinn sem hefur aðildarumsókn að
Evrópusambandinu sérstaklega á stefnuskrá sinni. Og aftur hlyti Samfylk-
ingin að hafa fagnað þegar kvisaðist að sendiherra ESB á landinu ætlaði
að láta kanna evrumálið nánar í Brussel.
... og rödd skynseminnar
En ónei. Á Alþingi sté í ræðustól Össur Skarphéðinsson og
kvað Valgerði viðskiptaráðherra hafa farið á taugum yfir
sviptingum í fjármálalífinu. Össur hallaðist að því að
Sigríður Anna hefði rétt fyrir sér; upptaka evru væri
óframkvæmanleg án aðildar að Evrópusambandinu.
„Hún á hrós skilið fyrir að sjá þetta með köldum og
yfirveguðum hætti,“ sagði hann. Sigríður Anna svaraði
að málið væri hápólitískt og skiptar skoðanir gætu verið
um það innan flokkanna. Hér má spyrja hvort skiptar
skoðanir séu ekki einmitt um málið innan Samfylk-
ingarinnar. Hvort flokkurinn, sem látlaust er sakaður
um stefnuleysi af stjórnarliðum, hafi ekki misst
stefnufestuna og skýrleikann í Evrópumálunum
sem löngum hafa þótt skapa honum pólítíska
sérstöðu í miðjustjórnmálum samtímans.
Úr bakherberginu...
Því betur sem skýrsla nefndar á
vegum Evrópuráðsins um spillingu og
mútuþægni á Íslandi er lesin, því for-
vitnilegri verður hún. Skýrslan er frá
árinu 2004 og byggist á því sem sér-
fræðingar GRECO-nefndarinnar urðu
vísari í heimsókn sinni hingað til lands.
Skýrslan skiptir einnig máli varðandi
fjármál stjórnmálaflokka hér á landi
sem eina ferðina enn voru til umræðu á Alþingi í vikunni.
Þar var forsætisráherra spurður hvað liði störfum nefndar
sem hann skipaði til verka síðastliðið sumar og skipuð er
fulltrúum allra stjórnmálaflokkanna. Nefndin átti að skila
niðurstöðum og tillögum um áramótin en hefur fengið
frest til frekari gagnaöflunar og úrvinnslu. Jóhanna Sig-
urðardóttir, Samfylkingunni, beindi fyrirspurn sinni í vik-
unni til Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra og sagði
efnislega að óþarft væri að leggjast undir feld önnur tíu
ár eða svo, því allar nauðsynlegar upplýsingar lægju þegar
fyrir, meðal annars í gögnum sem nefnd á vegum Davíðs
Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, skilaði af sér um
miðjan síðasta áratug.
Sérfræðingar GRECO stöldruðu í einum lið við það
sem kalla mætti hagsmunaárekstra en athugun leiddi í
ljós að engar reglur eða leiðbeiningar giltu hér á landi
um gjafir sem kunna að vera gefnar opinberum emb-
ættismönnum eða stjórnmálamönnum. Í skýrslunni er
einnig vakin athygli á að engar reglur gilda hér á landi
um meðferð embættis- eða stjórnmálamanna á upplýs-
ingum eða þekkingu sem þeir kunna að flytja með sér
þegar þeir hætta störfum í almannaþágu og hefja störf
hjá einkafyrirtækjum. Í raun hafi borgararnir engar trygg-
ingar fyrir því að slíkar upplýsingar séu ekki notaðar þeim
í óhag. Sérfræðingum GRECO þykir sérstök ástæða til að
huga að þessu atriði á tímum einkavæðingar þegar verk-
efni eru í stríðum straumi flutt úr opinberum rekstri til
einkafyrirtækja.
Þegar grannt er lesið er sem sérfræðingum GRECO
þyki íslenska þjóðin vera heldur bláeyg og sjálfsánægð
og sannfærð um að allt sé í besta lagi. Þjóð sem vilji ekki
vita af spillingu og mútuþægni sé ekki líkleg til að reyna
að uppræta hana.
VIKA Í PÓLITÍK
JÓHANN HAUKSSON
Spilling og mútuþægni
Er hægt að slá eign á vatn?
Ef svo er, á vatn að vera
þjóðareign eða í einkaeign?
Á Alþingi er nú til annarrar
umræðu stjórnarfrumvarp
til vatnalaga. Stjórnarand-
staðan er tortryggin og telur
stjórnvöld ætla að tryggja
einkaeignarrétt á vatni. Iðn-
aðarráðherra segir frum-
varpið fela að mestu í sér
formbreytingar frá gildandi
lögum.
Karl Axelsson, lektor við lagadeild
Háskóla Íslands, var formaður
þeirrar nefndar sem samdi frum-
varpið, en það hefur verið til
umræðu nær sleitulaust á Alþingi
undanfarna þrjá daga. Karl hélt
opinn fyrirlestur um fyrirhugaðar
lagabreytingar fyrir fullum sal í
Lögbergi í gær.
Á öndverðri síðustu öld bauð ný
tækni og verkkunnátta að unnt væri
að vinna raforku úr fallvötnum.
Selja átti fossa, jafnvel úr landi. Þá
þegar voru áleitnar spurningar aug-
ljósar. Áttu menn að fylgja allsherj-
arstefnu og setja þjóðareign á vatni
ofar öðrum rétti? Átti að fylgja sér-
eignarstefnu eða var vatn hreint út
sagt ekki eignarhæft?
Lögin eru barn síns tíma
Karl sagði frá því að svonefnd
fossanefnd hefði klofnað varanlega
um þetta atriði og hefði minnihlut-
inn fylgt séreignarstefnunni en
meirihlutinn allsherjarstefnunni.
Gat hann þess til fróðleiks að Jón
Þorláksson, stofnandi Sjálfstæðis-
flokksins, hefði fylgt meirihluta
nefndarinnar og þar með allsherjar-
stefnunni.
Um þetta var síðan gerður grein-
armunur á meiriháttar vötnum og
minniháttar og er svo gert í gild-
andi lögum. Þau fjalla fyrst og
fremst um fyrrnefndu vötnin.
Hagnýting vatns lýtur forgangs-
röðun. Heimilisþarfir standa ofar
öðrum þörfum, síðan hagnýting til
búsþarfa og neðstur á blaði er orku-
nýtingarrétturinn. Hann er þó lög-
bundinn og getur eigandi landar-
eignar, sem vatnsréttindi fylgja,
unnið orku úr vatninu. Í frumvarp-
inu er í raun ekki talin þörf á þess-
háttar forgangsröð utan þess sem
vatn til heimilisnota hefur áfram
forgang.
Að flytja fljót
Álitamálin eru mörg. Í gildandi
lögum er umhverfisréttarákvæði
sem þykir afar merkilegt og á
rætur að rekja til Grágásar: Öll
vötn sem til forna runnu skulu
áfram renna, sem merkir til að
mynda að sá sem nytjar rennandi
vatn efst í dal má ekki með því
skerða rétt þess sem utar býr í
dalnum. Og hvað með atriði eins og
að flytja Jökulsá á Dal úr farvegi
sínum með tilkomu Kárahnjúka-
virkjunar og láta hana renna til
sjávar um farveg Lagarfljóts?
„Miklar vangaveltur og spurningar
hafa þegar vaknað, annars vegar
um réttarstöðu fasteignareigenda
við Jökulsá á Dal sem sviptir verða
vatni og vatnsréttindum og svo hins
vegar um réttarstöðu fasteignar-
eigenda við Jökulsá á Fljótsdal og
Lagarfljót þar sem bæta mun í
vatn. Gildandi löggjöf, þar með
talin vatnalögin, eru einfaldlega
ekki þannig úr garði gerð að hún
ráði fyllilega við eignarréttarlegar
flækjur af þessari stærðargráðu,“
sagði Karl í erindi sínu í gær.
Frumvarpið rætt einnig í dag
Sú breyting sem frumvarpið boðar
og helst virðist fara fyrir brjóstið á
stjórnarandstæðingum er að mati
Karls Axelssonar sú formbreyting
sem felst í 4. grein laganna, en þar
er mælt fyrir um þá meginreglu að
í eignarhaldi að landi felist eignar-
réttur að vatni eins og öllum nátt-
úruauðlindum sem þar kunni að
finnast. Markmið frumvarpsins er
skýrt eignarhald á vatni, skynsam-
leg vatnsnýting og hagkvæm og
sjálfbær nýting vatns. „Við hvers
konar nýtingu vatnsréttinda sam-
kvæmt lögum þessum skal þess
gætt að raska ekki vatni, farvegi
þess, lífríki þess, vistkerfum eða
landslagi umfram það sem nauð-
synlegt er.“
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður vinstri grænna, hlýddi á fyr-
irlestur Karls en hún setur spurn-
ingamerki við matskennd hugtök.
Hún spyr hvað sjálfbærni merki
fyrir rétti. Og hver sé skilningur-
inn á því hvað teljist nauðsynlegt?
Vatnalagafrumvarpið verður
rædd áfram í dag. Stjórnarliðar
saka andstæðinga frumvarpsins
um málþóf. Þeir vilja vísa málinu
frá og engu breyta í bili í lögunum
frá 1923. Auk þess telja þeir rétt að
bíða lagasetningar á grundvelli
vatnatilskipunar Evrópusambands-
ins. johannh@frettabladid.is
Vatn og tími
þingmanna
KARL AXELSSON LEKTOR FLYTUR FYRIRLESTUR Þingmenn, hæstaréttardómarar og aðrir
áhugamenn sóttu fyrirlestur Karls um breytingar á vatnalögum í Háskóla Íslands í gær.
„Hún á hrós skilið fyrir að sjá þetta með köldum og
yfirveguðum hætti,“
Össur Skarphéðinsson, Samfylkingunni, hrósaði
Sigríði Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra fyrir
einarða afstöðu gegn evrutali iðnaðarráðherra.
„Þetta er þörf áminning til þingsins um að fjármála-
heimurinn bíður spenntur efitr því að geta fengið
almannaeignir til ráðstöfunar.“
Kveðja Ögmundar Jónassonar á þingi þegar Árni
Magnússon hvarf til starfa í orkugeira Íslands-
banka.