Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 20
 11. mars 2006 LAUGARDAGUR Símennt HR býður upp á hagnýtt námskeið á vorönn 2006 sem er metið til þriggja eininga á háskólastigi: Alþjóðaviðskipti Á námskeiðinu er farið yfi r þróun hnattvæðingar, áhrif menningar á alþjóðleg viðskipti, viðskiptahindranir og bandalög, útrás íslenskra fyrirtækja, þróunarstarf, inn- og útfl utning og ýmislegt annað sem tengist viðskiptum á alþjóðavísu. - Námskeiðið er sniðið fyrir þá sem hafa hug á að byrja í háskólanámi en vilja ekki skrá sig í fullt nám. Kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík við Ofanleiti 2. Námskeiðið byrjar 27. mars og stendur til 3. maí 2006, kennt er frá kl. 16:15 - 19:15. Verð: 65.000,- Þátttökuskilyrði er stúdentspróf. Frekari upplýsingar veitir: Þórunn Sigurðardóttir Beinn sími: 599 63 53 thorunns@ru.is www.ru.is/simennt Alþjóðaviðskipti SÍMENNT HR www.ru.is/simennt Leiðbeinendur: Jón Ormur Halldórsson Ph.D. og Þorgeir Pálsson, ráðgjafi hjá IMG og stundakennari í HR. ■ LAUGARDAGUR, 4. MARS Fjórar milljónir dollara Það hljóp heldur betur á snærið fyrir mér í dag. Ég fékk tölvupóst frá Abu nokkrum Savimbi sem seg- ist vera nákominn ættingi Jónasar sáluga Savimbi sem var leiðtogi Samfylkingar um algjört sjálfstæði handa Angólu, en Jónas féll í orustu við stjórnar- herinn í febrúar 2002. Abu þessi segir að fyrr- um aðstoðar- maður Jónas- ar frænda síns, einn vondur skratti Dembo að nafni, sitji nú um að myrða sig. Það kærir Abu sig ekki um og því hafi hann laumast burt frá Angólu og eigi nú í vandræðum með 20 milljónir dollara sem hann eignaðist með því að selja demanta sem Jónas heitinn var svo forsjáll að ánafna honum í erfðaskrá sinni. En Abu segir að kálið sé ekki sopið þótt í ausuna sé komið, því að þessar 20 milljónir séu nú munaðar- lausar á vergangi milli bankastofnana og biður mig um að koma til aðstoðar í þessu máli og býður mér 4 milljónir dala í þóknun fyrir ómakið. Ég veit því miður ekkert um pen- ingamál og frek- ar en gera ekki neitt benti ég Abu þessum á netfang Péturs Blöndals alþingismanns en hann hefur oftar en einu sinni tjáð opinberlega áhuga sinn á því að taka munaðarlausa peninga í fóstur. Við Sólveig fórum í bíó að sjá Hroka og hleypidóma. Þetta var fyrirtaksmynd og sýningarmannin- um tókst að skapa mikla stemmingu og eftirvæntingu í bíóinu með því að byrja að sýna kolvitlausa filmu þar til einhver hljóp upp í sýningar- klefann og bað um að fá að sjá rétta spólu. Þegar sýningarmaðurinn átt- aði sig iðraðist hann greinilega mistakanna og sýndi okkur sem nokkurs konar kaupbæti aftur öll myndasýnishornin sem hann hafði rennt í gegn áður og gerðu bíógestir góðan róm að þessu örlæti. ■ SUNNUDAGUR, 5. MARS Sunnudagssamviska Sunnudagar eru kærkomnir. Þetta eru einu dagarnir sem ég fæ ekki samviskubit af því hvað ég er afkastalítill við skriftir. Í dag nennti ég engu nema elda mat og horfa svo á Kröníkuna dönsku. Það eru miklir afbragðsþættir og furðulegt að íslenskar sjónvarpsstöðvar skuli ekki vilja gera skemmtilegt leikið efni sem fólk nennir að horfa á. ■ MÁNUDAGUR, 6. MARS Með köldu blóði Ég hitti endurskoðandann minn í morgun. Einyrkjar eru alltaf undir smásjánni hjá skattinum og þurfa að hafa bókhaldið sitt í fullkomnu lagi svo að Skatt- mann fari ekki að halda því fram að í staðinn fyrir að kaupa bréfa- klemmur hafi maður í raun og veru keypt lysti- snekkju í Flórída og sé þar að þamba kampavín nema þegar maður kemur við á Íslandi til að svíkja meiri peninga undan skatti. Endurskoðandanum tókst að róa mig niður og fullvissaði mig um að með sama áframhaldi sé töluvert langt þangað til að skatturinn fari að halda því fram að ég eigi lysti- snekkju í Flórída. Í kvöld fórum við Sól- veig aftur í bíó. Við sáum myndina Capote. Ég lærði tvennt: Í fyrsta lagi er Capote borið fram Kapót-e en ekki Kapót. Skrýtið, því að Al Capone lúskraði á mönnum ef þeir báru fram e-ið í nafninu hans. En honum var nú víst líka fremur laus höndin. Í öðru lagi komst ég að því að Harper Lee sem skrifaði eina fræg- ustu bók tuttugustu aldar, To Kill a Mockingbird (Að granda söngfugli) var aðstoðarkona Capotes við gagnasöfnun. Capote sló nýjan tón þegar hann gaf út bók sem hét „Með köldu blóði: sönn frásögn af fjöldamorði og afleiðingum þess“, heimilda- skáldsögu um hryllileg ránmorð í friðsælu umhverfi í Kansas. Þá bók las ég á jólanótt árið 1966 og var svo bergnuminn að þegar ég lauk við bókina byrjaði ég strax á henni aftur. Myndin var fín. Merkileg pæling um tilfinningatengsl listamanns við viðfangsefni sitt og siðferðileg og listræn lögmál. ■ ÞRIÐJUDAGUR, 7. MARS Löggan og reglugerð nr. 933/1999 Í kvöld þegar við vorum að reyna að svæfa barnabörnin hófust miklir skruðningar við Hlaðvarpabygging- una hérna hinum megin við Fischer- sundið. Klukkan tíu fóru ýmsir íbúar í Grjótaþorpi að hafa samband við lögreglu og beiðast þess að fá svefn- frið, enda er það yfirleitt ekki til siðs að steypuvinna fari fram í íbúðahverfum að kvöld- og nætur- lagi. Eitthvað voru undirtektir lög- reglu í síma misjafnar og einni nágrannakonu minni var til að mynda tjáð að nýlegar breytingar á reglugerð um mengunarvarnir heimiluðu allt að ótakmarkaðan hávaða í íbúðahverfum til klukkan 23.30. (Ég hef reynt að fletta þess- um breytingum upp en ekki fundið þær). Alla vega eru hugmyndir sím- svarenda Reykjavíkurlögreglunnar á reiki þegar kemur að því að þagga niður í hávaðabelgjum eins og lög gera ráð fyrir og kveðið er á um í reglugerð um heilsuvernd og meng- unarvarnir nr. 933/1999 með viðauk- um. Þrátt fyrir mjög dræmar undir- tektir í síma komu tveir lögreglu- menn úr umferðardeild lög- reglunnar á vettvang. Þeir sögðust heita Vignir og Baldvin og buðu af sér góðan þokka og komu vingjarn- lega fram við þá íbúa sem gáfu sig á tal við þá. Vignir dró upp gemsann sinn og mældi hávaða við glugga á Fischer- sundi 3 klukkan hálfellefu Hávað- inn mældist þá 80-82 db. Mesti leyfi- legi hávaði í íbúðahverfi er 40db. Annars er þetta skrýtinn mæli- kvarði því að 50db eru helmingi meiri hávaði en 40db og 80db því fimm sinnum meiri hávaði en leyfi- legur er. Við 85db er hætta á heyrn- arskemmdum. Ekki sögðust lögreglumennirnir vera svo vel inni í reglum um leyfi- legan hávaða í íbúðabyggð að þeir treystu sér til að grípa inn í og stöðva gauraganginn. Hins vegar veittu þeir því athygli að steypubíll lokaði Fischersundinu fyrir bílaum- ferð, án þess að farið hefði verið farið fram á leyfi til slíks. Lögreglu- mennirnir fóru þá fram á að steypu- menn hættu að steypa og opnuðu fyrir umferð um götuna. Djöflaganginum lauk síðan kl. 23.15. Það var soldið skrýtið að eiga við lögguna. Piltarnir sem komu voru afskaplega elskulegir og sögðust ekki þurfa mælitæki til að heyra að hér væri ekki húsfriður, en þeir sem svara í símann á Löggustöðinni virðast hafa tilhneigingu til að halda að venjulegir borgarar séu að Munaðarlaus auðæfi og völsadýrkun í Viðey E N N E M M / S ÍA / N M 2 0 6 5 9 Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá tilboði um að ættleiða munaðarlausa doll- ara, sagt frá snekkju sem Skattmann heldur að Þráinn eigi í Flórída, hringt á lög- regluna og fjallað um völsadýrkun í Viðey, álver í Kolbeinsey og reglugerð nr. 933/1999 með viðaukum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.