Fréttablaðið - 11.03.2006, Side 29
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Risaútsala verður um helgina
hjá Bílaþingi Heklu, Kletthálsi, á
notuðum bílum. Útsalan verður
á sama tíma hjá söluumboðum
Heklu í Reykjanesbæ, á Selfossi
og Höldi Akureyri. Bílaþing Heklu
á Laugavegi 174 verður lokað
laugardaginn 11. mars vegna
útsölunnar.
Spennandi ferð til Kosta Ríka er
nú á boðstólum hjá Icelandair.
Ferðin verður frá
27. október til 7.
nóvember. Hægt
er að nálgast
allar nánari upp-
lýsingar á heima-
síðu Icelandair,
icelandair.is.
Raðganga Útivistar um Reykja-
veginn heldur áfram á á sunnu-
dag eftir viku. Síðast tóku um
sjötíu manns þátt í göngunni.
Að þessu sinni verður gengið frá
Stóru-Sandvík að Þorbjarnarfelli.
Nánari upplýsingar má nálgast
hjá Útivist.
ALLT HITT
[BÍLAR OG FERÐIR]
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
11. mars, 70. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.01 13.38 19.16
Akureyri 7.47 13.22 18.59
Valdimar Ágúst Emilsson hefur
það öfundsverða hlutverk að keyra
langstærsta eðalvagn landsins. Í
grunninn segir Valdimar að akstri
bílsins megi líkja við akstur venjulegrar
fólksbifreiðar.
Eðalvagninn var fenginn til landsins fyrir
síðustu áramót og hefur Valdimar rúntað
með fólk um borg og bæi síðan þá. Valdi-
mar segir að ástæða komu bílsins til lands-
ins hafi verið hrein og bein ævintýra-
mennska. ,,Að gera eitthvað nýtt og
skemmtilegt var ástæðan fyrir komu
hans.“
Að sögn Valdimars er eðalvagninn, sem
er af Hummer-gerð, með 325 hestöfl í húdd-
inu. Vélin er átta strokka og sex lítra. ,,Þetta
er náttúrlega jeppi. Hann er reyndar meiri
um sig og lengri og þarf þess vegna meira
pláss. Þú skýst ekki á honum í Kringluna að
kíkja á kaffihús. Annars er þetta eins og að
keyra venjulegan bíl,“ segir Valdimar
spurður um hvernig sé að keyra bílinn. Far-
þegar sem Valdimar hefur keyrt láta mjög
vel af bílnum. Hann segist hafa hlotið mikið
þakklæti frá farþegum eðalvagnsins fyrir
öruggan akstur og þægindi. Valdimar segir
að hann hafi vanist bílnum fljótt og þess
vegna eigi hann auðvelt með að keyra hann
nokkuð mjúklega.
Valdimar segir að afar þægilegt sé að
keyra bílinn. ,,Bíllinn er þægilegur bæði
fyrir farþega og bílstjóra. Hann getur hins
vegar verið erfiður niðri í bæ, getur verið
þungur í beygjum og svona.“ Valdimar seg-
ist hins vegar ekki hafa lent í neinum telj-
andi vandræðum né tjóni og á vonandi
aldrei eftir að lenda í slíku.
Valdimar er nokkuð viss um að betra
vinnutæki sé vart hægt að finna. ,,Þetta
gerist ekki mikið betra.“ Valdimar væri
meira að segja frekar til í að fá aðeins
lengri bíl en styttri. Spurður hvort verið sé
að vinna að því að fá inn stærri bíl játar
Valdimar því. ,,Við sjáum hvað framtíðin
ber í skauti sér.“
steinthor@frettabladid.is
Til í enn lengri bíl
Valdimar Ágúst við hinn ógnvænlega eðalvagn sem er í eigu Gold Limo. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
FÍB HLEYPIR AF STOKKUNUM ALÞJÓÐLEGU
UMFERÐARÖRYGGISVERKEFNI Á ÍSLANDI.
FÍB tekur þátt í alþjóðlegu umferðaröryggisverkefni sem á
íslensku nefnist „Hugsaðu áður en þú heldur af stað“. Verkefnið
hófst að frumkvæði FIA, alþjóðasamtaka bifreiðaeigendafélaga.
Framkvæmd þess í hverju landi fyrir sig er í höndum bifreiða-
eigendafélaganna.
Verkefnið „Hugsaðu
áður en þú heldur
af stað“ er þegar
hafið hér á Íslandi
með birtingu fyrsta
kafla myndasögu
í nýútkomnu FÍB-
blaði og á næstunni
fer í dreifingu
bæklingur á vegum
átaksins. Í honum
eru nokkrar einfaldar meginreglur sem allir sem aka bílum ættu
að fara eftir og geta skipt sköpum ef slys verður. Bæklingnum
verður dreift inn á hvert einasta heimili á Íslandi.
Markmið verkefnisins er að styrkja ábyrga og örugga
aksturshegðun og biðja ökumenn að framkvæma fáeinar einfaldar
aðgerðir áður en haldið er af stað. Einfaldar aðgerðir sem geta
bjargað mannslífum. (Af www.fib.is)
Áhersla á belti og hjólbarða
SMART SMÁBÍLAR
Ýmsir smábílar voru
kynntir til sögunnar
á bílasýningunni í
Genf.
BÍLAR 4
BORGIN SEM
FRUMSKÓGUR-
INN GLEYPTI
Angkor í Kambódíu er
stærsta trúarlega
minnismerki jarðar.
FERÐIR 2