Fréttablaðið - 11.03.2006, Síða 30
[ ]
Ferðamenn sækja helst í tvo
staði innan landamæra Kamb-
ódíu. Þeir eru Morðakrarnir,
þar sem Rauðu Kmerarnir
frömdu mörg af verstu illvirkj-
um sínum, og Angkor, sem er
stærsta trúarlega minnismerki
jarðar.
Angkor var áður fyrr mannmörg
borg þar sem flókið og fullkomið
veitukerfi gerði íbúum kleift að
rækta hrísgrjón í miklu magni. Í
dag standa eftir fjölmörg hof hind-
úa og búddatrúarmanna sem
dreifð eru yfir rúmlega 100 fer-
kílómetra svæði. Hofin voru
byggð frá 8. öld og fram á 13. öld
og geyma þau minningar siðmenn-
ingar sem blómstraði á sama tíma
og veldi víkinganna var sem víð-
feðmast. Konungar kepptust við
að reisa grafhýsi og minnismerki,
sjálfum sér og guði til dýrðar. Svo
dundu hörmungarnar yfir og borg-
in hefur í gegnum tíðina orðið
fyrir ómetanlegu tjóni vegna óbil-
girni frumskógarins, skemmdar-
verka erlendra herja og voða-
verka Rauðu Kmerana.
Siem Riep
Það er tiltölulega auðvelt að ferð-
ast til Kambódíu og Angkor. Hægt
er að fljúga frá nágrannalöndun-
um til annað hvort Phnom Penh
eða Siem Riep. Frá flugvellinum í
Siem Riep liggur beinn vegur til
Angkor og meðfram honum hefur
risið hvert glæsihótelið á fætur
öðru. Öll eru þau full af Banda-
ríkjamönnum, Japönum og Kóreu-
búum sem komnir eru í stuttar
lúxusferðir. Sé hins vegar farið
inn í miðborg Siem Riep blasir
raunveruleikinn við og auðséð að
lífsbaráttan er hörð. Bílar eru ekki
margir en þeim mun fleiri mótor-
hjól og skellinöðrur. Bensínstöðv-
ar eru á hverju horni, en þær bjóða
upp á fjöldann allan af notuðum
gos- og bjórflöskum fullum af
bensíni. Á markaðnum er hægt að
fá ávexti og krydd sem aldrei ber-
ast norður í höf og sértu heppinn
býðst þér að veiða engisprettur í
húsasundi með götustrákum. Ef
þú ert enn heppnari er þér boðið í
mat þar sem aðalrétturinn er ein-
mitt engispretturnar sem veiddar
voru fyrr um daginn.
Það er hlægilega ódýrt að lifa í
Kambódíu. Ef þú átt nokkra doll-
ara eru þér allir vegir færir. Þú
getur leigt þér tuktuk (vélknúið
þríhjól) með bílstjóra og haldið
sem leið liggur til Angkor. Ferðin
tekur um tuttugu mínútur og þá
ertu kominn að fyrsta hliði borg-
arinnar. Þriggja daga passi að
Angkor kostar fimmtíu dollara.
Kambódísk stjórnvöld hafa farið
þá leið að leigja út rekstur, viðhald
og endurbyggingu Angkor til jap-
ansks einkafyrirtækis. Hvort
þetta fyrirkomulag er hagsælt
fyrir kambódísku þjóðina skal
ósagt látið en það verður að viður-
kennast að undirritaður setur
spurningamerki við slíkt fyrir-
komulag, sérstaklega þar sem
sama leið var farin með morða-
krana.
Hvað er að sjá?
Stærsta hofið og höfuðdjásn Ang-
kor, sem sómir sér vel sem níunda
undur veraldar, er Angkor Wat.
Margir leggja leið sína þangað við
sólarupprás, en svæðið er opnað
klukkan fimm árla dags. Það er
vissulega ólýsanlegt að sjá sólina
rísa bak við hofið og brjóta sér
leið gegnum laufþykknið í frum-
skóginum allt í kring. Einn og einn
api skýst út úr skóginum og inn í
hann aftur en enginn hættir sér
nær forviða ferðamönnum sem
fylgjast með gegnum myndavéla-
linsurnar.
Eins og áður kom fram er Ang-
kor gríðarstór. Best er því að
leiga tuktuk allan daginn og leyfa
bílstjóranum að blunda á meðan
hofin eru skoðuð. Það tekur að
minnsta kosti þrjá daga að skoða
allar rústirnar en þeim tíma er
vel varið vegna þess að engin tvö
hofanna eru eins. Þegar menn
þyrstir eða svengir er ávallt stutt
í næsta veitingastað, sem í raun
er lítið annað en skýli með borð-
um og stólum hulið dúkum
erlendra stórfyrirtækja. Allan
liðlangan daginn er þér boðin
hressing og minjagripir á einn
dollara og ef þú skilur ekki ensku
þarftu ekki að örvænta því ein-
Frumskógurinn eirir engu.
FRÉTTABLAÐIÐ/TRYGGVI
Angkor Wat er gríðarlegt mannvirki.
NORDIC PHOTO/GETTY IMAGES
Á markaðnum í Siem Riep leggja allir sitt á
vogarskálarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/TRYGGVI
Borgin sem frumskógurinn gleypti
Angkor er heilagur staður í augum búddamunka. NORDIC PHOTO/GETTY IMAGES
Gönguskór geta komið sér vel í öllum ferðum innanlands. Til dæmis er
mjög gott að taka gönguskóna með sér í sumarbústaðinn eða útileguna.
Glæsilegar
sérferðir
Heimsferða
í apríl, maí og júní
(síðustu sætin)
Kína 23. apríl - 7. maí
Einstök upplifun á fallegum tíma –
örfá sæti
Shanghai – Peking - Stíflurnar
miklu - Sigling um gljúfrin þrjú.
Fararstjóri: Héðinn Björnsson
Ítalska rivíeran
31. maí - 7. júní
Rómantískasta svæði Ítalíu um
hvítasunnuna.
Fararstjóri: Una Sigurðardóttir
Fjallaperlan Bled
17. - 24. maí.
Fáir standast fegurðina í Slóveníu.
Fararstjóri:
Gunnhildur Gunnarsdóttir
Austurríki – Ítalía
(Sumar í Tírol) 22. júní - 5. júlí
Hin sívinsæla ferð "Sumar í Tírol"
með Feneyjum í kaupbæti.
Fararstjóri: Gunnhildur
Gunnarsdóttir
Ævintýrasigling
14. apríl – 5. maí
Miðjarðarhaf – Atlantshaf
- Karíbahaf
19 daga páskaferð
– aðeins 9 vinnudagar – örfá sæti
Vorsigling um
Miðjarðarhaf
17. – 31. maí
Róm - Sikiley – Malta - Túnis
– Líbýa
Glæsisigling
um Eyjahaf
7. - 21. júní
Slóvenía – Ítalía – Grikkland
– Króatía