Fréttablaðið - 11.03.2006, Síða 31
LAUGARDAGUR 11. mars 2006 3
Borgin sem frumskógurinn gleypti
Angkor er heilagur staður í augum búddamunka. NORDIC PHOTO/GETTY IMAGES
hvers staðar eru tvær telpur sem
kunna að segja „viltu kaupa póst-
kort á dollara“ á átta tungumál-
um. Fyrirgefið, þau eru víst orðin
níu því síðasta sumar bættist
íslenska í safnið.
Það síðasta sem hver ferða-
langur í Angkor ætti að sjá er sól-
arlagið séð frá toppi Sólarhofsins.
Frumskógurinn teygir sig svo
langt sem augað eygir og endar í
ávölum hæðum sveipuðum mistri.
Snarbrattur klettastiginn upp að
hofinu, sem höggvinn var fyrir
þúsund árum, er svo sannarlega
ekki fyrir hvern sem er en það
sem uppi bíður er erfiðisins virði.
Jafnvel þó svo að það taki þrjár
tilraunir að sjá sólina setjast. Sum-
arfrí okkar Íslendinga ber nefni-
lega upp á monsúntíma í Suður-
Asíu, sem er ekki besti tíminn til
sóldýrkunar.
Svæðinu er lokað klukkan sex
síðdegis og þá er tilvalið að halda
inn í Siem Riep og gæða sér á
kambódískum mat. Einhverra
hluta vegna fá fæstir ferðamenn
sama matseðil og innfæddir. Hann
er á ensku, verðið er í dollurum í
stað rheela (sem er innlendi gjald-
miðillinn) og maturinn mildari.
Mörg veitingahúsanna skarta
fögrum skiltum þar sem því er
lofað að á þessum veitingahúsum
sé ekki framreitt rottu-, hunda-
eða kattakjöt.
Ferðalok
Kambódía er land sem enn er í
sárum eftir borgarastyrjöld. Fyrir
einungis 25 árum var Kambódíu
stjórnað af Rauðu Kmerunum sem
miskunnarlaust börðu niður alla
mótspyrnu og myrtu á aðra millj-
ón samlanda sinna. Þó svo að sárin
risti djúpt og örin séu varanleg
ríkir bjartsýni og trú á betri tíma
hjá þjóðinni.
Fyrir okkur sem leitum að
ævintýrum og viljum komast frá
neyslumenningunni er Kambódía
kjörinn kostur. En ekki bíða með
það of lengi. Hætt er við að vegna
aukins ferðamannastraums og
gróðahyggju hverfi friðsæld og
töfrar Angkor og verði lítið annað
en minningar og myndir í albúm-
um áræðinna ferðalanga.
tryggvi@frettabladid.is
Vetraríþróttir eru vinsælar á
meðal spennufíkla. Að þjóta
niður brekkurnar með vind-
inn í eyrunum og púðrið undir
fótunum getur verið mjög
spennandi.
Lúxusskíðastaðir eiga auknu
fylgi að fagna. MSNBC-sjónvarps-
stöðin gerði á síðasta ári lista yfir
tíu dýrustu skíðasvæði heims.
Þar má meðal annars finna
skíðasvæðið í Aspen í Bandaríkj-
unum þar sem einungis meðlimir
geta notið skíðabrekknanna. Á
þessum stöðum er lúxusinn alls-
ráðandi og ætlast er til þess að
meðlimir eigi fyrir salti í grautinn.
Þeir sem vilja tilheyra þessum
lúxusklúbbum þurfa að greiða á
milli 1,2 til 60 milljónir króna í
árgjöld og geta þess í stað notið
alls hins góða sem vetraríþróttir
hafa upp á að bjóða. Í gjöldunum
er innifalin þjónusta bryta allan
sólarhringinn og barnapössun. Í
brekkunum eru svo þjónar sem
aðstoða skíðamennina með hvað-
eina sem þá vanhagar um, hvort
sem það er aðstoð við að renna
upp snjógallanum eða að hella upp
á heitt kakó.
Gististaðirnir eru þeir glæsi-
legustu sem völ er á og fjöldi
hágæðaveitingastaða er að finna í
kringum fjöllin. Við skíðasvæðið í
Aspen er átján holu einkagolfvöll-
ur þar sem meðlimir geta spilað á
milli þess sem þeir renna sér í
brekkunum og láta nudda sig í
heilsulindunum.
Þeir sem vilja lúxus en eru ekki
tilbúnir til þess að gerast meðlim-
ir geta leitað í aðrar brekkur. Cha-
let du Mont D‘Arbois skíðahótelið
í Megève í Frakklandi er eitt dýr-
asta hótel í Evrópu. Í íbúðum hót-
elsins eru arinn, leðurklæddir
hægindastólar og aðgangur að
gufubaði og sundlaugum. Allt
þetta kostar 140.000 krónur fyrir
hverja nótt og gerir hótelið þær
kröfur að gestir gisti í þrjár nætur
í það minnsta. Það er aðeins byrj-
unin, því þá er ótalinn reikningur-
inn fyrir allar glæsimáltíðirnar og
skemmtunina sem gestir borga
sérstaklega fyrir. Margar frábær-
ar skíðaferðir eru í boði fyrir
meðalmanninn en þeir sem vilja
eitthvað alveg sérstakt og geta
leyft sér það skella sér í þessar
lúxus ferðir.
Leiksvæði hinna efnuðu
Chalet du Mont D‘Arbois skíðahótelið í
Megève í Frakklandi er eitt dýrasta hótel í
Evrópu.