Fréttablaðið - 11.03.2006, Side 40

Fréttablaðið - 11.03.2006, Side 40
■■■■ { vor í lofti } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4 Ljós og skuggar, svart og hvítt. Það er óhætt að segja að stofan hennar Eddu Kristínar Hauksdótt- ur sé ein sú eftirminnilegasta sem blaðamaður hef komið inn í. Það er hvorki vegna íburðar né dýrra húsgagna. Þvert á móti. Sniðug- ar lausnir og sérstakt litaval gera stofuna að því sem hún er, einstakri stofu sem gleymist seint. Upphaf svart/hvíta þemasins má rekja til þess þegar Edda féll algjör- lega fyrir svörtum blúnduvængj- um frá Lauru Ashley á sýningunni Hús & Híbýli. „Mér fannst þær bara afskaplega flottar og mig langaði svo að hafa þær inn í stofu hjá mér,“ segir Edda. „Málið var hins vegar að þær koma í stöðluðum stærðum, 240 cm löngum, en lofthæðin í stofunni hjá mér er 280 cm svo þær voru allt of stuttar,“ segir Edda. Þar sem vængirnir sátu í Eddu og hún var ekki tilbúin að játa sig sigraða verslaði hún sér siffon og saumaði svartar gardínur sjálf. „Það er hrikalega erfitt að sauma í siffon þannig að ég sat sveitt yfir þessu heillengi. Svo þegar ég var búin þá hugsaði ég með mér að þetta væri eitthvað skrítið, svartar stofugard- ínur.“ segir Edda og hlær. Loksins hafði efinn sigur og Edda þorði ekki að setja upp gardínurn- ar. Eftir að hafa safnað í sig kjarki í heila viku lét hún hins vegar slag standa og upp fóru gardínurnar og hafa ekki komið niður síðan. „Þegar ég sá hvernig þær komu út kláraði ég að sauma á alla gluggana í stof- unni og nú eru allir gluggar svartir,“ segir Edda. Edda flutti inn í íbúðina ásamt syni sínum fyrir rúmu ári. Hún átti engar myndir til að hengja á stofu- veggina svo hún fékk vin sonar síns, hann Hafstein Júlíusson, til að mála tvær myndir sem nú eiga heiðurssess í stofunni. Nýjasta innleggið í stofuna er svartir myndarammar. „Ég er svo hrifin af þessu svart/hvíta að núna er ég nýbúin að skipta út öllum römmum hjá mér fyrir venjulega tréramma sem ég mála svarta,“ segir Edda. Sú breyting kemur vel út enda smellpassa þeir við svartar hillur og gluggatjöld. Eddu hefur tekist vel til að gera stofuna stílhreina og notalega. Lit- irnir í listaverkunum og blómunum kallast vel á við svört/hvít húsgögn- in og saman mynda þau klassíska og tímalausa fegurð. Svart og hvítt Stofan hennar Eddu er ein af sárafáum stofum landsins með svörtum gardínum. Myndin á gluggaveggnum er önnur myndin sem Haf- steinn málaði fyrir Eddu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Það er ekki hægt að segja annað en að gluggatjöldin svörtu komi mjög vel út. Skemmtilegt skraut lífgar upp á glugga- kistur. Leikur ljóss og skugga. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐAEdda hefur nýlokið við að mála myndarammana í stofunni svarta. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Falleg lýsing getur verið mjög áhrifarík og skapað skemmtilega stemningu á heimilum. Stand- lampar eru mjög þægilegir að því leyti að þeim er hægt að koma alls staðar fyrir. Stórir standlamp- ar geta staðið einir og sér eða við sófa og litlum standlömpum má auðveldlega koma fyrir á borðum hingað og þangað. Möguleikarnir eru endalausir og úrvalið er mikið. Allir ættu að geta fundið einhverja lampa við sitt hæfi til þess að lífga upp á heimilið. Standlampastand Skemmtilegir lampar geta gert mikið fyrir heimilið. Lampi frá Exo. 19.900 kr.Lampi frá Unika. 14.900 kr. Lampi frá Epal. 69.700 kr. Lampi frá Local. 29.900 kr. Lampi frá Local. 21.000 kr. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Lampi frá Epal. 65.200 kr. Lampi frá Exo. 54.900 kr.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.