Fréttablaðið - 11.03.2006, Page 42
6
Það vorar ósjálfrátt í sálinni við að koma inn í Habitat þessa dagana því
hillurnar eru að fyllast þar af nýjum og litríkum vörum. „Það fylgir þessu
bara gleði,“ segir Marta Lauritsdóttir hlægjandi þar sem hún er að taka
upp könnur og glös úr plexigleri. „Þessar plexivörur í gegnsæju skæru
litunum eru það nýjasta núna,“ segir hún og bendir á borðbúnað og fleira
í appelsínugulu, bleiku, rauðu, og grænu innan um svart og hvítt.
Einn sumarliturinn er sæblár. Allir passa litirnir
vel saman í þessu þema þannig að nánast er
hægt að blanda öllu saman á hvaða veg
sem er. „Nýju vörurnar streyma hér
inn á hverjum degi og við erum í
hanaati að taka þetta úr gámum
og koma þessu fyrir,“ segir
Marta og bætir við: „Það er
svo gaman í vinnunni að við
erum eins og litlir krakkar á
jólunum.“
Vorið er komið í Habitat
Glaðlegir litir og létt yfirbragð er einkenni á nýju vörunum í Habitat.
Við val á ramma utan um málverk
eða ljósmynd verður myndin að
fá að ráða för og sá rammi valinn
sem hentar henni. Fyrir ljósmynd-
ir er best að nota einfalda ramma
og eru svartir rammar mikið í
tísku um þessar mundir. Flot-
rammar eru mjög vinsælir núna
til að setja utan um málverk en þá
er sentimetra bil á milli ramma og
myndar. Vilji fólk að myndin nái
að njóta sín sem best getur verið
gott að verða sér úti um faglega
ráðgjöf við val á myndaramma
því úrvalið er bæði mikið og fjöl-
breytt.
Myndin ræður för
Gott er að fá sér faglega ráðgjöf þegar ramma á inn
mynd sem ætlað er að njóta sín vel.
■■■■ { vor í lofti } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
FRÉTTABLAÐIÐ/EINAR