Fréttablaðið - 11.03.2006, Page 44
■■■■ { vor í lofti } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■8
Habitat.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Innx.
Innx.
Stórar sófaeiningar henta ekki
smekk allra og þaðan af síður stærð
allra heimila.
Undanfarið hefur fólk lagt meiri
áherslu á að festa kaup á stórum
sófum en smáum. Risastórir horn-
sófar eru látnir fylla upp stofuna
og breiðir sófar, með tungu og
risapúðum, eru notaðir fyrir kúr
og sjónvarpsgláp. Heimurinn væri
yndislegur ef allir ættu stórar stof-
ur en því er nú ekki þannig farið
og margir þurfa því að kaupa sér
minni einingar þegar kemur að
sófavali. Smástofu eigendur ættu
þó ekki að örvænta því úrval-
ið af litlum og fallegum sófum er
heilmikið.
Smærri sófar í smærri stofur
Local. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Habitat.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Með vorið á næsta leiti er orðið
aðkallandi að gera vorhreingern-
ingu á heimilinu. Með tuskuna á
lofti þarf að ná í öll horn, alla króka
og kima og reka skítinn og rykið
á braut. Verkefnið er veigamikið
og ekki alltaf unnið á einum degi.
Eftirfarandi er minnislisti yfir það
sem þarf að þrífa. Gott er að merkja
jafnóðum við, þegar verki lýkur og
þá sér maður hvað manni miðar
vel, auk þess sem ekkert verður
útundan.
GÓLFIN
Ryksugaðu teppi og mottur. Settu
mottur í þvottavél eða í hreinsun,
og hreinsaðu gólfteppi. Þvoðu við-
argólf vel, olíuberðu þau og/eða
bónaðu.
GLUGGATJÖLD
Taktu niður gluggatjöld. Þrífðu
rimlagluggatjöldin vel með tusku,
eða með því að leggja þau í sápu-
vatn. Settu gluggatjöld í þvottavél-
ina eða í hreinsun.
GLUGGAR
Fjarlægðu ryk og laus óhreinindi
með mjúkum bursta. Þvoðu rúð-
urnar að innan og utan með mildu
sápuvatni, eða vatni blönduðu
ediki.
DÝNUR OG PULLUR
Ryksugaðu sófann og rúmdýnuna.
Snúðu dýnunni og snúðu pullum
við, þar sem það er hægt.
FATASKÁPURINN
Farðu í gegnum fataskápinn, hentu
því sem þú notar aldrei eða safn-
aðu í poka og farðu með til Rauða
krossins. Taktu allt úr skápnum og
þurrkaðu af öllu. Þvoðu og lagaðu
föt áður en þú setur þau aftur inn
í skáp.
ÍSSKÁPURINN OG FRYSTIRINN
Taktu ísskápinn úr sambandi og
hentu mat sem er kominn langt
fram yfir síðasta söludag. Ágætt
er að geyma matinn í kæliboxi á
meðan þú þrífur ísskápinn með
tusku og sápuvatni.
ÖRYGGI
Athugaðu með rafhlöðurnar í reyk-
skynjaranum. Sjáðu til þess að þær
séu einnig í lagi í vasaljósinu og
láttu kanna slökkvitækið þitt.
Gátlisti fyrir
vorhreingerningu
alla vega leirtaui ef þú átt
erfitt með að velja eitt stell
fyrir matarborðið
þitt. Gott er að
eiga eitt hvítt
og klassískt stell
sem grunn en
leyfa sér svo að
kaupa litríkar og
mynstraðar skál-
ar, bakka og bolla úr
öðrum stellum. Einnig
er þetta ágætis lausn,
ef þú hefur erft gamla
stellið frá afa og
ömmu, en það vantar
heilmikið í það. Þá
er hægt að blanda
því með fallegu og
sígildu hvítu stelli.
Blandaðu saman ...
Innx.
Habitat.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Exó.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MYND/GETTY IMAGES