Fréttablaðið - 11.03.2006, Page 50
■■■■ { vor í lofti } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■14
„Quick-Step er háþróað plastparkett
sem nær væri að kalla harðparkett
vegna þess að þessi vara sker sig
alfarið frá plastparketti hvað varðar
útlit og gæði,“ segir Þórður Ágústs-
son, framkvæmdastjóri verkefna-
deildar hjá Harðviðarvali. „Einn-
ig má geta þess að ekkert plast er
notað í vöruna. Efsta lag parkettsins
er Aluminum Oxyed, sem er næst
í styrkleika á eftir demanti,“ bætir
Þórður við. Í mars verður sérstök
áhersla lögð á Quick-Step í Harð-
viðarvali, þar sem aukið hefur verið
við úrval og betri verð bjóðast nú
en áður.
Hann segir helstu kosti parketts-
ins vera þá að efnið sé níðsterkt og
HDF-platan veiti mikla vernd og
hrindi raka vel frá. „Auk þess er
útlit þess mjög raunverulegt,“ segir
Þórður.
Auðvelt er að leggja parkettið
þar sem Quick-Step er með inn-
byggðri Uniclic-smellu sem bæði
er hægt að smella og lykkja saman.
Hún er af þeim sökum einfaldari
en aðrar smellur. „Parkettið hentar
alls staðar nema á blautrými, eins
og í þvottahús, baðherbergi, við
sturtur o.s.frv. En það er gríðarlega
sterkt og hentar best þar sem álag er
mikið,“ segir Þórður.
Hann segir jafnframt parkettið
vera mjög auðvelt að þrífa, ólíkt
hefðbundnu plastparketti sem er með
plast á yfirborðinu sem er rafmagn-
að. „Quick-Step er aftur á móti ekki
með plast á toppnum heldur áloxíð.
Ekkert rafmagn, engin viðloðun,
ekkert mál. Athugið að ekki þarf
að þrífa gólfið með bleytu. Heldur
aðeins með rökum eða þurrum klút,“
segir Þórður.
Auðvelt í þrifum
Harðviðarval kynnir um þessar mundir Quick-Step,
háþróað plastparkett.
Auðvelt er að leggja parkettið þar sem Quick-Step er með innbyggðri Uniclic-smellu sem
bæði er hægt að smella og lykkja saman. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fallegur kertastjaki getur lífgað upp
á heimilið og jafnvel má ganga svo
langt og segja að birtan sé betri
berist hún frá fallegum stjaka.
Kertastjaka má fá í öllum stærð-
um og gerðum. Margir kjósa stóra
og tignarlega stjaka sem einnig
hafa fegrunargildi fyrir ákveð-
ið herbergi. Aðrir vilja stjakana
minni svo þeir falli inn í umhverf-
ið. Hvort heldur sem er skal valið
vandað við kertastjakakaupin enda
kemur kertastjakinn til með að
nýtast sem birtugjafi og fær því
alltaf athygli sama hversu stór eða
lítill hann er.
Staður fyrir kerti
Local. Töff kertastjakar þar sem lögun af
klassískum kertastjaka er skorinn í plastið.
Rúmar fjögur kerti og passa vel á sófaborð-
ið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Glugg-inn. Sætur kertastjaki sem fæst í
gulu og bleiku. Minnir á tré þar sem kertin
hanga úr greinunum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Unika. Fallegur glerkertastjaki. Hægt er að
setja árstíðabundið skraut í botninn á stjak-
anaum og kertið ofan á. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Unika. Tignarlegir kertastjakar sem njóta sín
vel á kommóðu eða borðstofuborði.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
að stilla tveimur stólum upp saman
með litlu borði á milli þeirra. Þá
ertu kominn með frábæran stað til
að setjast niður með félaga og taka
gott spjall. Veitingar geta verið á
borðinu á milli ykkar eða það er
hægt að koma þar fyrir taflborði.
Hafðu spjallhornið þó eins langt frá
sjónvarpinu eins og hægt er svo þið
fáið ró og næði. Ekki er verra að
stilla stólunum upp við glugga til
að fá góða birtu, og græjurnar ættu
ekki að vera fjarri svo þið getið
setið og hlustað saman á tónlist.
Prófaðu ...