Fréttablaðið - 11.03.2006, Side 79
LAUGARDAGUR 11. mars 2006 47
Anna Piaggi er 75 ára tískudrós
sem hefur hlotið mikla athygli
fyrir sérstakan og djarfan stíl
sinn. Hún er orðin gyðja í tísku-
heiminum og fjölmargir heims-
frægir hönnuðir bera ómælda
virðingu fyrir henni. Hún starfar
fyrir ítalska Vogue, sem margir
telja búa yfir flottustu tískuþátt-
unum og fallegasta útlitinu af
öllum heimsins Vogue-blöðum.
Það eru þó síðurnar sem Piaggi
gerir sem þykja vera hjarta blaðs-
ins.
Mörgum gæti þótt Anna Piaggi
vera algjört viðundur með geð-
veilu við fyrstu sýn en í rauninni
er hún mikill snillingur í að para
saman hinar ýmsu flíkur og stíla.
Hún er með blátt hár og málar sig
á furðulegan hátt en með því að
skapa skemmtilegar lita-
samsetningar lítur hún alltaf eins
og nýtt listaverk en ekki mann-
eskja. Hún er tímalaus tísku-
drottning sem mun um alla tíð
gefa fólki hugmyndir í sambandi
við tísku.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
16
94
0
3/
20
06
hönnuði í Debenhams
Uppgötvaðu
yfir
Debenhams hefur fengið til liðs við sig heimsþekkta
hönnuði til að sérhanna fata- og húsbúnaðarlínur
einungis fyrir Debenhams.
Antony & Alison
BDL eftir Ben De Lisi
Butterfly eftir Matthew Williamson (4)
EB eftir Erickson Beamon
J eftir Jasper Conran (1)
Pearce Il Fionda
Reger eftir Janet Reger
Rocha eftir John Rocha (2)
Star eftir Julien Macdonald (3)
St George eftir Duffer
Gríptu tækifærið og tryggðu þér einstaka hönnun
á einstaklega góðu verði, - aðeins í Debenhams.
21
4
3
SVART OG HVÍTT Hún er ekki alltaf eins
og litasprengja heldur velur hún fötin af
smekkvísi. Hér er hún á tískusýningu hjá
Emmanuel Ungaro.
Á TÍSKUVIKU Hún sést ósjaldan á tísku-
sýningum enda á hún vini eins og Karl
Lagerfeld og fleiri fræga.
Tímalaus tískudrottning
Á SÝNINGUNNI Hún hélt nýlega sýningu
þar sem var til dæmis hægt að skoða
ýmsar af hennar hátískuflíkum en hún á
ófáa safngripi í fataskápnum.
ANNA PIAGGI Grænn, bleikur, appelsínu-
gulur, svartur, blár, rauður. Litadýrðin er
mikil hjá Önnu Piaggi, sem sést hér með
einn af sínum mörgu stöfum í hendi.
Yohji Yamamoto sýndi vetrarlínu
sína á tískuvikunni í París sem nú
er nýlokið. Yohji er ekki einn af
þeim hefðbundnustu í tískuheim-
inum og flokkast frekar með hönn-
uðum eins og Vivienne Westwood
og Rei Kawakubo í Comme Des
Garcons.
Nýjasta línan hans var því ekki
hefðbundin frekar en hinar fyrri
en samt var hún stórkostlega flott.
Inni á milli skringilegu flíkanna
sem manni finnst enginn geta
klæðst voru aðrar afar flottar og
klæðilegar flíkur. Allar voru þær
hins vegar pínulítið of stórar því
það virðist ekki vera málið að
klæðast passlegum flíkum í dag.
Litirnir voru frekar dempaðir.
Grár, dökkblár, mosagrænn, svart-
ur en einstaka hressari litir eins
og blágrænn inn á milli.
Stórir rykfrakkar og ullarkáp-
ur, flauel og hermannaskór voru
áberandi. Fötin voru frekar karl-
mannleg en kvenleg og hafa línur
hans síðustu árin einkennst af ást
hans á karlmannsfötum. Það er
ekki beinlínis hægt að segja að
Yamamoto fylgi ekki trendum
heldur tekur hann trendin og fer
með þau lengra en aðrir hönnuðir
hafa kjark til.
Karlmannleg
kvenmannsföt
RYKFRAKKI Afar klæðilegur og töff.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
BLÁGRÆNT Lítið var um sterka liti en þessi
blágræni skar sig úr fjöldanum.
REITT HÁR Sítt hár fyrirsætanna setti töff
svip á fötin.