Fréttablaðið - 11.03.2006, Page 80

Fréttablaðið - 11.03.2006, Page 80
Dagný byrjaði ung að renna sér á skíðum en þrátt fyrir það hafði hún ekki mjög gaman af íþróttinni til að byrja með. „Mamma mín setti skíðin fyrst á mig þegar ég var þriggja ára en ég hafði ekkert sérstaklega gaman af skíðum til að byrja með. Ég byrjaði að æfa skíði þegar ég var átta ára og þá var ég bara að elta vinkonur mínar en ég var líka að æfa fimleika, fótbolta og svo prófaði ég líka handbolta og djass- ballett,“ sagði Dagný. „Þegar ég var þrettán ára byrj- aði svo skíðamennskan fyrir alvöru. Þá urðu skíðin bara númer eitt, tvö og þrjú og ég æfði af krafti, bæði í fjallinu og lyftinga- salnum,“ sagði hin 25 ára gamla Dagný, sem var ekkert farin að leiða hugann að atvinnumennsku á skíðum. „Ég pældi ekkert í atvinnu- mennskunni en ég sleppti aldrei úr æfingu og hafði og hef rosalegt keppnisskap. Ég var reyndar ekk- ert góð á skíðum þegar ég var yngri og bar ekkert sérstaklega af. Þegar ég fór að leggja meiri áherslu fór auðvitað að ganga betur,“ sagði Dagný, sem stóð í marki í fótbolta þangað til hún var komin á unglingsaldur. Frá í tuttugu mánuði Hlíðarfjall á Akureyri varð síðan annað heimili Dagnýjar en þegar hún varð sautján ára gömul fór hún til Noregs í skíðamenntaskóla þar sem hún dvaldi í þrjú ár í bænum Geilo. „Þar kláraði ég menntaskólann en þar var samein- aður skóli og skíði. Ég kláraði skól- ann um vorið 2000 en eftir það fór ég að æfa með hinum ýmsu liðum. Fyrsta árið æfði ég með ástralska landsliðinu, svo með Evrópubikar- liðinu frá Liechtenstein, þá Norð- mönnum og síðan Svíum en það er það langbesta sem ég hef lent í. Ég tók mjög miklum framförum þar og hafði aldrei skíðað eins vel,“ sagði Dagný, sem lenti síðan í mar- tröð í janúarmánuði árið 2004. „Ég var að hita upp fyrir heims- bikarmót. Ég var að koma úr æfingabrekkunni og að stoppa þegar ég sleit krossbandið í hnénu, skemmdi báða liðþófana og togn- aði illa á báðum liðböndunum. Ég hélt fyrst að þetta yrðu um það bil tvær vikur í pásu en þær urðu að tuttugu mánuðum,“ sagði Dagný, sem var ekki langt frá því að leggja skíðin á hilluna fyrir vikið. „Ef ég hefði vitað að það tæki mig tuttugu mánuði hefði ég ekki hald- ið áfram. Ég vildi samt sem áður ekki sitja með hugsunina aftur í hausnum að hætta ef ég gerði ekki allt til að ná mér aftur, það gat ég ekki gert,“ sagði Dagný, sem fór í þrjár aðgerðir til að vinna bug á meiðslunum. „Þetta var rosalega erfitt. Ég var alltaf með verk í hnénu eftir fyrstu tvær aðgerðirnar og það tók mig óvenjulangan tíma að jafna mig. Síðan kom í ljós að bandvefsmyndum hafði verið óvenjumikil og það þurfti að laga og því fór ég í þriðju aðgerðina. Eftir það tók við endurhæfing sem var langt frá því að vera auð- veld,“ sagði Dagný, sem prófaði fyrst að skíða aftur í maí 2005, sautján mánuðum eftir slysið. Dagný skíðaði sig í gegnum mik- inn sársauka en keppnisskapið fleytti henni áfram. Smám saman safnaði hún fyrri styrk og að lokum hvarf sársaukinn endan- lega. Í desember var hún svo aftur komin á fulla ferð, tuttugu mánuð- um eftir slysið. Mjög strangar æfingar Dagný æfir gríðarlega mikið í dag en líf hennar er ekki alltaf dans á rósum. „Maður býr bara á hótel- um með ferðatösku nánast allt árið. Það er erfitt að vera fjarri fjölskyldu og vinum en að sama skapi er þetta rosalega gaman. Ég er búin að sjá alla Evrópu og mér finnst ekkert mál að skreppa til Evrópu, ég er orðin vön ferðalög- unum. Maður kynnist líka svo mörgu góðu fólki sem er stór hluti af skemmtuninni, en það er alltaf gaman að koma heim,“ sagði Dagný, sem æfir allan ársins hring en skíðakeppnistímabilið varir frá nóvember og fram í apríl. „Á haustin þegar maður æfir á jökli vaknar maður um sex, tekur lyftuna upp í fjall klukkan sjö, er komin þangað átta og skíðar til tólf og er komin eftir hádegi niður á hótel. Þá tekur maður smá pásu fyrir góða þrekæfingu sem varir kannski í tvo tíma áður en maður slappar af fyrir næsta dag. Á keppnistímabilinu er þetta svip- að,“ sagði Dagný. „Eftir tímabilið tek ég um það bil mánuð í rólegar æfingar sem ég kalla pásu. Í maí, júní og júlí lyftir maður mikið auk þess að hjóla og hlaupa mikið. Undir lok sumars reynir maður svo að fara upp á jökul en svo þegar vetra tekur færir maður sig niður í fjöllin,“ sagði Dagný og kláraði þar með að lýsa árshringn- um í lífi sínu. Dagný æfir mikið en Austur- ríki, Sviss og Ítalía eru hennar aðalæfingasvæði. „Maður er bara á þvælingi eftir því hvar eru bestu aðstæðurnar og hvar næsta mót er. Maður þarf að spila þetta svolítið eftir hendinni,“ sagði Dagný, sem hefur keppt á 28 mótum á þessu tímabili sem enn er ekki búið. Dagný hefur bætt sig gríðarlega mikið og frábær árangur hennar á Ólympíuleikun- um í Tórínó setti hana á enn hærri stall. Dagný er í 115. sæti í bruni á FIS-heimslistanum en var í sæti númer 162 fyrir ÓL. Brun er hennar aðalgrein en hún hefur þó verið hærra á listanum, komst í 96. sæti áður en hún meiddist. Dagný stórbætti sig einnig í risa- svigi en þar fór hún úr sæti 296 í 185 eftir ÓL. Mikill kostnaður Að stunda skíði er mjög dýrt en Dagný er þakklát fyrir þann mikla stuðning sem hún hefur fengið. „Það er gott að hafa þennan ómet- anlega stuðning á bak við mig. Þetta tímabil hjá mér núna kostar sex milljónir en ég fæ styrk frá Skíða- sambandinu, KEA, Visa-Europe og Bónus auk þess sem Akureyrarbær hefur látið mig fá 50 þúsund krónur á mánuði í tvö ár. Þeir tilkynntu mér það þegar ég kom heim frá ÓL að þessi samningur yrði framlengd- ur en það sem vantar upp á hefur komið úr vasanum hjá pabba. Ég væri ekki þar sem ég er í dag ef ég hefði ekki mömmu og pabba til að styðja við mig,“ sagði Dagný en engin peningaverðlaun eru gefin í skíðaíþróttinni nema þá fyrir efstu sætin. Þrátt fyrir að hugsa um skíði allt árið gerir Dagný hvað hún getur til að slappa af með vinum og fjölskyldu þegar færi gefst til. „Ég reyni á sumrin að gera eitt- hvað annað en hugsa bara um skíðin, kærastinn minn er með hesta og hefur dregið mig aðeins út í hestamennskuna. Ég hef mjög gaman af því og þetta hjálpaði mér líka að dreifa huganum þegar ég var meidd. Svo er auðvitað bara gaman að hitta vini og fjölskyldu, ég er lítið heima þannig að maður nýtir þann tíma sem maður hefur,“ sagði Dagný. Setur markið á toppinn Dagný setur markið hátt en næsta skref hjá henni er að finna sér lið til að æfa með og það stefnir hún á að gera strax eftir tímabilið. Þjálf- ari hennar núna heitir Dejan Polj- ansek og er frá Slóveníu en hana dreymir helst um að komast aftur til Svíþjóðar. „Það væri draumur- inn að komast aftur þangað en það verður mjög erfitt enda er ekki mikil þörf fyrir skíðakonur þar. Ég þekki allt þar, tala tungumálið, þekki stelpurnar, þjálfarana og æfingakerfið og því liggur það beinast við en það er ekki á allt kosið í þessu frekar en öðru,“ sagði Dagný. „Ég vona auðvitað að ég komist ofar og ég hef trú á því. Ég hef alltaf stefnt á toppinn en þegar ég var að æfa með Svíunum sá ég hann í fyrsta skipti og gerði mér grein fyrir því að hann er ekki ýkja langt í burtu. Ég ætla mér að komast þangað aftur, það er mitt markmið. Ég væri ekki að berjast í þessu ef ég ætlaði mér ekki að gera þetta af heilum hug og ég hef alltaf ætlað mér alla leið. Ég ætla mér á toppinn og ég get alveg komist þangað eins og aðrir en ég vona að fólk verði tilbúið að styrkja mig áfram og ég held að það gangi eftir,“ sagði Dagný Linda að lokum. ■ SUNNUDAGSVIÐTALIÐ DAGNÝ LINDA KRISTJÁNSDÓTTIR Á FULLRI FERÐ Á TOPPINN GOTT RÁÐ Dagný þiggur hér gott ráð frá Anders Pärson, föður Önju Pärson. Á FULLRI FERÐ Dagný er hér á fullri ferð á Ólympíuleikunum í Tórínó Þar náði hún frábærum árangri. BRAUTARSKOÐUN Skíði er nákvæmisíþrótt, hér skoðar Dagný brautina í Tórínó. MIKLAR ÆFINGAR Dagný æfir allan ársins hring og fær sjaldan frí til að slappa af. DAGNÝ LINDA KRISTJÁNSDÓTTIR Er mjög þakklát öllum sem hafa stutt hana. Dagný Linda Kristjánsdóttir sló í gegn á Ólympíu- leikunum í Tórínó, þar sem hún náði einum besta árangri sem íslenskur skíðamaður hefur náð á leikunum. Hjalti Þór Hreinsson ræddi við Dagnýju um fyrstu skíðaferðirnar, gríðarlega erfið meiðsli og háleit markmið framtíðarinnar. DAGNÝ LINDA Hefur trú á því að hún komist alla leið á toppinn. MYND/GUÐMUNDUR JAKOBSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.