Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 82
50 11. mars 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
*Innifalið er flug og gisting í Barcelona 3 nætur og að sjálfsögðu miðar á leikinn.
Kauptu miða á netinu eða á næsta sölustað fyrir kl. 14 á laugardag
– aðeins 10 krónur röðin og mundu að geyma miðann!
Nafn vinningshafa eða raðnúmer á sölukvittun verður birt á 1x2.is
Tippaðu á enska boltann um helgina og þú gætir unnið
ferð fyrir tvo á leik Barcelona og Real Madrid 2. apríl nk.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Markmanninum knáa Fjalari Þor-
geirssyni gengur illa að losa sig frá 1.
deildarfélaginu Þrótti en hann hefur
mikinn hug á því að ganga til liðs við
Fylki. Árbæjarliðið hefur rætt við Fjalar
og Þrótt um að markmaðurinn gangi til
liðs við Fylki en Þróttarar vilja ómögu-
lega sleppa hendinni af honum. „Við
viljum að hann skrifi undir framlengingu
á samningi sínum, geri hann það erum
við tilbúnir að lána hann í eitt ár. Við
gerum okkur grein fyrir því að þegar við
erum komnir upp eftir ár, og þurfum
að fara að manna liðið okkar sem
úrvalsdeildarfélag, þurfum við á manni
eins og Fjalari að halda,“ sagði Kristinn
Einarsson, formaður knattspyrnudeildar
Þróttar, í gær.
„Eins og ástandið er í félaginu í dag hef
ég engan áhuga á því að framlengja
samning minn við Þrótt,“ sagði
Fjalar við Fréttablaðið en hann
hefur neitað nýjum samningi
sem Þróttarar buðu honum.
„Við erum búnir að vera að ræða
við Fylki en málið er ekki klárað
vegna þess að við viljum
helst að hann verði einungis
lánaður, en við höfum ekki
fengið því framgengt. Við
erum búnir að bjóða Fylki
að fá Fjalar lánaðan. Það
kemur alveg til greina
að selja hann en fram
að þessu höfum við ekki
fengið það sem við viljum. Ég
tel hagsmunum Þróttar best
borgið með því að hann skrifi
undir nýjan samning og Fylkir fái hann
að láni,“ sagði Kristinn og bætti við að
félagið vildi alls ekki missa Fjalar, sem
Þróttur metur mjög mikið, en eins og
Fjalar sagði vill hann ekki framlengja
samning sinn við liðið sem rennur út
í haust.
Engar viðræður við Fylki eru
í gangi eins og staðan er
í dag en bæði Kristinn
og Hörður Antonsson,
formaður knatt-
spyrnudeildar Fylkis,
staðfestu það í gær.
„Viðræðurnar við Fylki
munu halda áfram.
Einhvers staðar finnst
lending í málinu,“ sagði
Kristinn að lokum.
FJALAR ÞORGEIRSSON MARKMAÐUR ÞRÓTTAR: VILL FARA TIL FYLKIS
Pattstaða á milli Fjalars og Þróttar
Prúttið við Valsstelpur
Meistaraflokkur kvenna í fótbolta hjá Val
verður með flóamarkað í Kolaportinu
á sunnudag á milli 11 og 17. Stelpurnar
munu meðal annars selja föt, skó og
spilastokka en þær eru að safna sér fyrir
ferð til La Manga.
FÓTBOLTI Kvennaráð knattspyrnu-
deildar ÍBV hefur sent frá sér til-
kynningu þar sem fram kemur að
félagið sé í viðræðum við Selfoss
varðandi samstarf í meistara-
flokki kvenna.
Í tilkynningunni kemur fram
að félagið sé tilbúið að semja við
fjölda útlendinga en athygli vekur
að „Eyjastelpurnar“ gengu á bak
orða sinna, samkvæmt kvennaráð-
inu, um að spila með. 2. flokkur
félagsins er mjög þunnskipaður
og eru líklega þrjú ár í að ÍBV geti
teflt fram frambærilegum meist-
araflokki með heimastelpum.
Rætt hefur verið um að leggja
meistaraflokkinn niður á meðan
en það hugnast ráðinu ekki og því
var ákveðið að athuga með sam-
starf við Selfoss.
- hbg
Illa gengur að manna kvennalið ÍBV:
Spilar lið ÍBV/Selfoss í
Landsbankadeildinni?
EYJASTÚLKUR Eru í vandræðum með að
ná í lið og svo gæti farið að þær og Selfoss
verði með sameiginlegt lið. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MARS
8 9 10 11 12 13 14
Laugardagur
■ ■ LEIKIR
14.00 Fylkir og ÍBV mætast í DHL-
deild karla í handbolta í Árbænum.
14.00 Valur og LC Bruhl mætast í
Evrópukeppni kvenna í handbolta í
Laugardalshöllinni.
14.00 KA/Þór og ÍBV mætast í
DHL-deild kvenna í handbolta á
Akureyri.
16.15 Afturelding og Valur mæt-
ast í DHL-deild karla í handbolta á
Varmá.
16.15 Vík/Fjö og Þór Ak. mætast í
DHL-deild karla í handbolta í Víkinni.
16.15 Stjarnan og Haukar mætast
í DHL-deild kvenna í handbolta í
Garðabænum.
16.15 Víkingur og Fram mætast í
DHL-deild kvenna í handbolta í Víkinni.
■ ■ SJÓNVARP
10.50 Formúla 1 á Rúv. Bein
útsending frá tímatökunni fyrir kapp-
aksturinn í Barein.
13.05 HM í frjálsum innanhúss á
Rúv. Bein útsending frá Moskvu.
12.40 Enska knattspyrnan á
Enska boltanum. Bein útsending frá
leik Chelsea og Tottenham.
14.50 Á vellinum á Enska boltan-
um. Upphitun fyrir leiki dagsins.
15.00 Enska knattspyrnan á
Enska boltanum. Bein útsending frá
leik Everton og Fulham.
17.15 Enska knattspyrnan á Enska
boltanum. Bein útsending frá leik
Blackburn og Aston Villa.
20.50 Spænski boltinn á Sýn.
Bein útsending frá leik Valencia og
Real Madrid.
22.50 A1 Grand Prix á Sýn.
FÓTBOLTI Það verður tilfinninga-
þrungin stund þegar Patrick
Vieira snýr aftur á Highbury í átta
liða úrslitum Meistaradeildarinn-
ar þegar Arsenal og Juventus leiða
saman hesta sína.
„Stundum koma örlögin á óvart.
Auðvitað verða þetta sérstakir
leikir fyrir mig en ég mun bara
einbeita mér að því að vinna leik-
inn,“ sagði franski miðjumaðurinn
sem fór frá Arsenal til Juventus
síðasta sumar.
ÁTTA LIÐA ÚRSLITIN
ARSENAL-JUVENTUS
BARCELONA-BENFICA
AC MILAN-LYON
INTER MILAN EÐA AJAX-VILLAREAL
UNDANÚRSLITIN:
ARSENAL-JUVENTUS-INTER/AJAX-VILLAREAL
BARCELONA-BENFICA-AC MILAN-LYON
Meistaradeildin:
Vieira snýr aft-
ur á Highbury
> Björn rak lestina
Björn Margeirsson, hlaupari úr ÍR, rak
lestina í sínum undanriðli á Heims-
meistaramótinu í frjálsum íþróttum sem
fer fram í Moskvu um helgina. Björn
hljóp á tímanum 3:49,22 og var síðastur
í sínum riðli þar sem sjö menn hlupu
en tveir komust í úrslitin. Björn hefur
þar með lokið keppni á mótinu en hann
á best 3:47,84 en 3:48,00 á þessu ári.
Björn hafnaði samtals
í 21 sæti af 23 á þessu
sterka móti en hann var
eini Íslendingurinn
sem keppti í Moskvu.
Þórey Edda Elísdótt-
ir náði lágmarkinu
fyrir mótið í stangar-
stökki en gat ekki tekið
þátt þar sem hún á við
erfið meiðsli á öxl að
stríða. Það var ví stutt
gamanið fyrir íslend-
inga í Moskvu.
HANDBOLTI Gestirnir frá Sviss áttu
ekki roð í sterkar Valsstúlkur til
að byrja með sem spiluðu frábæra
3-3 framliggjandi vörn sem kom
Bruhl í opna skjöldu. Berglind Íris
Hansdóttir lokaði markinu í fyrri
hálfleik og varði fimmtán skot en
gestirnir skoruðu aðeins sjö mörk
í fyrri hálfleik gegn þrettán mörk-
um Valsstúlkna.
Í síðari hálfleik misstu Vals-
stúlkur dampinn og urðu kæru-
lausar í sókninni. Alltof mörg mis-
tök í sókninni urðu til þess að
Bruhl minnkaði forskotið jafnt og
þétt og komst inn í leikinn. Bruhl
minnkaði muninn í tvö mörk áður
en Valsstúlkur tóku við sér og náðu
aftur upp fjögurra marka forskoti
sem þær héldu svo til enda.
Ágústa Edda Björnsdóttir var
markahæst í liði Vals en hún skor-
aðu sjö mörk og átti stórgóðan
leik. Drífa Skúladóttir skoraði
fimm og Alla Georgijsdóttir fjög-
ur en Berglind Íris Hansdóttir var
þó best í Valsliðinu en hún varði 25
skot í markinu og hélt Valsliðinu á
floti á tímum.
„Ég er hundóánægður með að
vinna ekki stærra en þetta. Við
erum með sterkara lið en köstuð-
um þessu frá okkur. Í staðinn fyrir
að bæta við í seinni hálfleiknum
þá slökum við alltof mikið á og
gerum of mikið af mistökum. Þau
geta orðið dýrkeypt,“ sagði Ágúst
Jóhannsson eftir leikinn.
„Þegar við urðum fyrir mótlæti
og þær fóru að taka Öllu úr umferð
þá urðum við pínu ragar og óör-
uggar, eitthvað sem á ekki að ger-
ast þar sem við erum með sterkt
lið í þeirri stöðu og margar stelpur
sem eru góðar maður á móti
manni. Því miður kom bakslag í
þetta en við eigum að klára verk-
efnið á morgun. Það verður erfitt
en við ætlum okkur að sjálfsögðu
áfram,“ sagði Ágúst að lokum.
Síðari leikur liðanna fer
svo fram í Laugardalshöll í dag
klukkan 14.
- hþh
Við eigum að klára þetta verkefni
Valsstúlkur fóru með 25-21 sigur af hólmi gegn svissneska liðinu LC Bruhl í EHF-Áskorendakeppni Evrópu í
gær. Aðeins klaufaskapur Valsstúlkna varð til þess að sigurinn varð ekki stærri en raun bar vitni í lokin.
VALSSTÚLKUR Voru óheppnar að missa
niður gott forskot sem þær náðu í fyrri
hálfleik. Þær eru samt sem áður í góðri
stöðu fyrir seinni leikinn sem verður í dag
klukkan 14. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA