Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 86
11. mars 2006 LAUGARDAGUR56
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
NÚNA BÚIÐ
HRÓSIÐ
...fær Birgir Hilmarsson, söngvari
og gítarleikari Ampop, fyrir að
gefa loksins út sólóplötu.
Birta og Bárður hafa verið umsjón-
armenn Stundarinnar okkar í fjög-
ur ár en nú finnst þeim þetta vera
komið gott í bili og eru þau því hætt
á RÚV. Persónurnar sjálfar lifa í
hjörtum og minningum fjölda
barna líkt og umsjónarmenn Stund-
arinnar hafa gert en þeir hafa verið
æði skrautlegar og skemmtilegar
persónur, allt frá Bryndísi Schram
til Gunna og Felix. Þóra Sigurðar-
dóttir og Jóhann G. Jóhannsson
standa því á ákveðnum tímamótum
og horfa um öxl á skemmtilegt
tímabil í sínu lífi. Þau voru þó
spennt fyrir nýjum tímum þegar
Fréttablaðið náði tali af þeim.
Þóra og Jóhann vildu ekki
meina að Birta og Bárður væru
horfin fyrir fullt og allt. Þau hefðu
bara sagt starfi sínu lausu en per-
sónurnar ættu sér framhaldslíf.
„Þetta er gert í góðu og í raun með-
vituð ákvörðun. Við ákváðum að
eftir fjögur ár væri þetta hrein-
lega komið gott,“ segir hún og
Jóhann tók undir það með henni,
hætta beri leik þá er hæst standi.
„Við höfum verið á fullu að gera
sömu hlutina og þetta hefur verið
ákaflega lærdómsríkt. Starfið er
krefjandi og skapandi en nú þurf-
um við að gera eitthvað nýtt,“
segir hann. Þá telja þau ekki að
tímabært hafi verið fyrir börnin
að sjá eitthvað nýtt. „Þetta er eina
íslenska barnaefnið og því þarf að
vanda það,“ segir Jóhann. „Það má
því segja að við gerum þetta ekki
síst af tillitssemi við börnin,“
bætir Þóra við og hlær. „Sumir
eiga eftir að gráta, aðrir fagna og
einhverjum verður eflaust alveg
sama,“ skýtur Jóhann inn.
Þóra hefur komið víða við að
undanförnu og segist hafa mikinn
áhuga á að starfa við eitthvað
skapandi en framtíðin sé engu að
síður óráðin. Jóhann tók þátt í gerð
myndarinnar Flags of our Fathers
sem Clint Eastwood tók upp hér á
landi en sagðist þó ekki vita hvert
hugurinn stefndi. „Kannski fer ég
að skrifa eða sný mér aftur að leik-
húsinu,“ segir hann. Bæði eru þó
sammála um að þau séu með mik-
inn fiðring í maganum. „Þetta var
skemmtilegt og krefjandi starf en
því er nú lokið,“ segir Þóra.
freyrgigja@frettabladid.is
BIRTA OG BÁRÐUR: HÆTT MEÐ STUNDINA OKKAR
Tillitssemi við börnin
BIRTA OG BÁRÐUR Fjögur ár eru liðin síðan vinirnir birtust fyrst á skjánum en nú eru þau hætt og ætla leikararnir að snúa sér að einhverju
öðru.
LÁRÉTT:
2 skraut 6 bardagi 8 grastegund 9
hrökk við 11 tveir eins 12 fall 14
glóra 16 einnig 17 hækkar 18
óðagot 20 ónefndur 21 traðkaði.
LÓÐRÉTT:
1 plat 3 hæð 4 matarlím 5 kraftur
7 trúr 10 fiskur 13 skír 15 ána 16
margsinnis 19 eldsneyti.
LAUSN:
Sykruð freyðivín. Ekki
kaupa jarðarberjalitað
gutl í flösku. Not kúl.
Karlmenn með litað
hár. Hvað eigum við að
segja þetta oft?
Bling. Nú er um
að gera að vera
klassískur og naum-
hyggjulegur.
Kampavín með ferskum jarð-
arberjum. Settu nokkra jarðar-
berjahelminga í glas og fylltu
það svo af Veuve Cliquot.
Húðlitur. Kemur sterkur
inn í sumar og er
fallegur við svart.
Sniglar. Lostæti í for-
rétt með fullt, fullt af
hvítlaukssmjöri.
LÁRÉTT: 2 fága, 6 at, 8 sef, 9 brá, 11
ll, 12 bylta, 14 glæta, 16 og, 17 rís, 18
fum, 20 nn, 21 tróð.
LÓÐRÉTT: 1 gabb, 3 ás, 4 gelatín, 5
afl, 7 tryggur, 10 áll, 13 tær, 15 asna,
16 oft, 19 mó.
Klukkan ellefu á sunnudagsmorg-
un hefur göngu sína nýr þáttur á
fréttastöðinni NFS í stjórn Höllu
Gunnarsdóttur og nefnist hann
Þetta fólk. Halla tekur eitt land
fyrir í hverjum þætti og skoðar það
ofan í þaula. Gestir hennar koma úr
öllum áttum þjóðfélagsins og deila
með áhorfendum reynslu sinni.
„Þetta er fólk sem hefur skrifað rit-
gerðir um viðkomandi land, ferðast
um það eða er þaðan,“ útskýrir hún.
Löndin eru af öllum stærðum og
gerðum en eiga það flest sameigin-
legt að vera okkur hulinn heimur
en sérstök áhersla verður lögð á
svokölluð þriðja heims ríki. Halla
stundar nú meistaranám í Alþjóða-
samskiptum við Háskóla Íslands
auk þess sem hún sinnir verkefn-
um fyrir Morgunblaðið og má því
segja að hún hafi í nógu að snúast.
Nafnið á þættinum vísar til ákveð-
innar orðræðu sem okkur er tamt
að nota þegar rætt er um framandi
slóðir. „Mannfólkið á það til að
flokka þjóðir í ákveðna hópa, sem í
sjálfu sér er allt í lagi, en það má
aldrei stýra framkomunni við
aðra,“ segir hún.
Halla er mikil flökkukind þó hún
vilji sjálf gera lítið úr eigin ferða-
lögum en viðurkennir að áhugi á
öðrum löndum hafi lengi verið til
staðar „Mér þykir hjákátlegt að
segjast hafa ferðast mikið. Þeim
mun meira sem ég sé af heiminum
því minna finnst mér ég hafa séð af
honum,“ útskýrir Halla og tekur
sem dæmi lítið ferðalag sem hún
fór í til Malí í janúar. „Úr fjarlægð
virkar Afríka á marga sem mjög
einsleit heimsálfa en þetta eru í
kringum fimmtíu lönd sem hvert
og eitt hefur sína fjölbreyttu menn-
ingu,“ segir hún. Halla telur þó
mikilvægustu uppgötvunina vera
þá hvað við eigum mikið sameigin-
legt. „Vinkona mín í Íran og ég
erum aldar upp við mismunandi
aðstæður en erum þrátt fyrir það
ekki svo ólíkar.“ - fgg
Flökkukind með eigin þátt
HALLA GUNNARSDÓTTIR Nýr þáttur hefur
göngu sína á NFS sem Halla stýrir en þar
verða kynnt lönd sem eru okkur framandi.
FRÉTTABLAÐIÐ / E.ÓL
FRÉTTIR AF FÓLKI
Egill Gilzenegger hefur vakið umtalsverða athygli með bók
sinni Biblía fallega fólksins en í henni
birtir hann ítarlegar leiðbeiningar um
hvernig meðaljóninn getur breytt sér úr
leppalúða í glæsilegan „hnakka“. Gagn-
rýnendur hafa alveg haldið vatni yfir
bókinni og finna henni flest til foráttu.
Aðdáendur Gilz virðast þó láta þær pred-
ikanir sem vind um eyru þjóta þar sem
bókin er komin í áttunda sæti yfir mest
seldu bækurnar í verslunum Pennans,
Eymundssonar og Máls og menningar.
Þá er bókin í 6. sæti á lista handbóka,
fræðirita og ævisagna. Gilzenegger er
því til alls líklegur á
bókamarkaðnum
en ef bókin heldur
áfram að klifra
upp sölulista
má gera fast-
lega ráð fyrir
að ljósabrún-
um, vöðva-
stæltum og
ljósstrípuðum
karlmönnum
muni fjölga
verulega á
næstunni.
Það var heldur betur handagangur í öskjunni þegar Borgarleikhúsið opn-
aði fyrir miðasölu á leikritið Fullkomið
brúðkaup. Yfir fjögur þúsund miðar
seldust á örskömmum tíma og voru
lætin það mikil að símkerfi miðasölunn-
ar hrundi. Það merkilega er að sýningin
fer ekki á fjalirnar fyrr en eftir einn og
hálfan mánuð og því ljóst að Leikfélag
Akureyrar á eftir að slá í gegn á mölinni.
Verkið hefur fengið frábæra dóma en
þau Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Guðjón
Davíð Karlsson, Jóhannes Haukur
Jóhannesson, Maríanna Clara Lúthers-
dóttir, Esther Thalia Casey og Þráinn
Karlsson þykja fara á kostum í þessu
verki Robins Hawdon sem Örn Árnason
þýddi. Magnúsi Geir Þórðarsyni hefur
tekist að rífa leikhúsið
upp fyrir norðan því
Oliver Twist auk
Litlu hryllings-
búðarinnar gerðu
góða hluti en sú
síðarnefnda varð
þó að víkja fyrir
Fullkomnu brúð-
kaupi enda er hún
aðsóknarmesta
sýningin í sögu
leikfélagsins.
- fgg/þþ
opið alla laugardaga 10-14
SKÖTUSELUR
HUMAR
TÚNFISKUR
opið alla laugardaga 10-14
SKÖTUSELUR
HUMAR
TÚNFISKUR
opið alla laugardaga 10-14
SKÖTUSELUR
HUMAR
TÚNFISKUR
opið alla laugardaga 10-14
SKÖTUSELUR
HU AR
TÚNFISKUR
opið alla laugardaga 10-14
SKÖTUSELUR
HU AR
TÚNFISKUR
opið alla laugardaga 10-14
SKÖTUSELUR
HUMAR
TÚNFISKUR
opið alla laugardaga 10-14
SKÖTUSELUR
HU AR
TÚNFISKUR
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8