Fréttablaðið - 13.03.2006, Side 6

Fréttablaðið - 13.03.2006, Side 6
6 13. mars 2006 MÁNUDAGUR KJÖRKASSINN Eiga Íslendingar að taka upp evruna? Já 61,5% Nei 38,5% SPURNING DAGSINS Í DAG Var rétt af Íslandsbanka að skipta um nafn? Segðu þína skoðun á visir.is SKÁK Armenski stórmeistarinn Gabriel Sargissian er einn í efsta sæti á Alþjóðlega Reykjavíkurskák- mótinu með sex vinninga að loknum sjö umferðum. Sargissian sigraði Tiger Hillarp Persson í gær og Pentala Harikrishna og Hichem Hamdouchi, sem deildu efsta sæt- inu með Sargissian eftir sjöttu umferðina, gerðu jafntefli. Hamdouchi, Harikrishna, Magn- us Carlsen, Sergey Erenburg og Shakihriyar Mamedyarov koma fast á hæla Sargissian með fimm og hálfan vinning. Tvær umferðir eru eftir af mót- inu og verðar þær tefldar í dag og á morgun. Hannes Hlífar Stefánsson er efstur íslensku þátttakendanna með fimm vinninga og er í 7. til 13. sæti. Hannes Hlífar gerði í gær jafntefli við Laurent Fressinet. Henrik Dani- elsen, Þröstur Þórhallsson og Héð- inn Steingrímsson hafa fjóran og hálfan vinning og Bragi Þorfinns- son, Björn Þorfinnsson, Dagur Arn- grímsson og Snorri Bergsson hafa fjóra vinninga. Fjölmargar konur taka þátt í mótinu og er Inna Gaponenko frá Úkraínu þeirra efst með fjóran og hálfan vinning. Gabriel Sargissian mætir Shaki- hriyar Mamedyarov í dag, Hamd- ouchi og Magnus Carlsen eigast við og Hannes Hlífar mætir Tiger Hill- arp Persson. - bþs Sjöunda umferð Reykjavíkurskákmótsins tefld í gær: Gabriel Sargissian einn í efsta sætinu VATNSÖFLUN Nú um helgina lauk borun eftir heitu vatni í Keldu- hverfi með góðum árangri. Úr 601 metra djúpri borholu sem er milli Bakkahlaups og Skjálfta- vatns munu fást um 25 lítrar á sekúndu af 75 gráðu heitu vatni. Orkuveita Húsavíkur og Kelduneshreppur stóðu í sam- einingu að boruninni en Íslensk- ar orkurannsóknir staðsettu hol- una. Vatnið er sagt úrvals hita- veituvatn og verður því dreift í Kelduhverfi. Á vef ÍSOR kemur fram að vatnið sé ferskt og gott á bragðið enn sem komið er. - rsr Gjöful hola í Kelduhverfi: Heita vatnið gott á bragðið ÞJÓNUSTA Blindrafélagið er mót- fallið lagafrumvarpi um að starf- semi Sjónstöðvar Íslands og Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands skuli sameinuð. Blindrafé- lagið telur að frumvarpið, sem nú er til meðferðar hjá heilbrigðis- og tryggingamálanefnd Alþingis, muni ekki bæta stöðu blindra og sjónskertra í þjóðfélaginu. Í yfirlýsingu NSK, samstarfs- vettvangs samtaka blindra og sjónskertra á Norðurlöndum, segir að NSK þekki ekki til þess að þjónusta við þessa tvo hópa fari saman í einni og sömu stofnun- inni. Slíkar stofnanir finnist ekki á Norðurlöndunum. Forsvarsmenn Sjónstöðvar Íslands skora á nefndina að fresta umsögn um frumvarpið og kalla eftir skoðunum þeirra aðila sem sameiningin snertir. - jóa Sameining þjónustustofnana: Bætir ekki stöðu blindra HAAG, AP Milosevic hafði setið í fangelsi Sameinuðu þjóðanna í nágrenni Haag seinustu fimm ár vegna ásakana um þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mann- kyninu. Réttarhöld Stríðsglæpa- dómstóls Sameinuðu þjóðanna yfir Milosevic hófust í febrúar 2002 en hafði ítrekað verið frestað vegna bágrar heilsu Milosevic. Til stóð að ljúka réttarhöldunum í sumar. Í sex blaðsíðna bréfi sem Milos- evic skrifaði daginn áður en hann dó sagðist hann óttast að verið væri að eitra fyrir sér eftir að leif- ar af sterku lyfi fundust við blóð- rannsókn. Lagalegur ráðgjafi Milosevic sýndi fjölmiðlum bréfið á sunnudag. Bréfið, sem er dag- sett 10. mars, er stílað á rússneska sendiráðið og í enskri þýðingu sem fylgdi bréfinu var beðið um að bréfið yrði sent áfram til rúss- neska utanríkisráðherrans. Í desember síðastliðnum sendi Milosevic beiðni til Stríðsglæpa- dómstólsins um að fá að fara til hjartasérfræðings í Moskvu. Beiðninni var hafnað þrátt fyrir að rússnesk yfirvöld ábyrgðust að hann myndi snúa aftur til Haag og ljúka réttarhöldunum. Milosevic ítrekaði beiðnina nú í febrúar. Í yfirlýsingu frá Stríðsglæpa- dómstólnum segir að Milosevic hafi árum saman þjáðst af hjart- veiki og háum blóðþrýstingi og að engin merki séu um annað en að lát hans hafi verið af eðlilegum orsökum. Aðalsaksóknari dóm- stólsins, Carla Del Ponte, sagði á laugardag að raddir um að Milos- evic hefði framið sjálfsmorð eða látist vegna eitrunar væru einung- is getgátur og ómögulegt að segja til um dánarorsök fyrr en niður- stöður krufningar lægju fyrir. Hollenskir fjölmiðlar hafa eftir ónafngreindum starfsmanni Stríðsglæpadómstólsins að leifar lyfs við holdsveiki og berklaveiki hafi fundist í blóðsýni úr Milos- evic nýlega. Heiti lyfsins var ekki tilgreint en sagt að það gæti hafa dregið úr virkni annarra lyfja. Samkvæmt fréttinni fundu lækn- ar leifar lyfsins þegar þeir voru að kanna hvers vegna lyf til að lækka blóðþrýsing Milosevic voru ekki að virka. Talskona Stríðsglæpadómstóls- ins vildi ekki tjá sig um málið og sagðist engar upplýsingar hafa. Krufning myndi leiða sannleikann í ljós. Krufning og eiturefnamæl- ing fóru fram á sunnudag undir stjórn hollenskra meinafræðinga og fylgdist serbneskur meina- fræðingur með. Fyrstu niðurstöð- ur bentu til að dánarorsökin hefði verið hjartaáfall. sdg@frettabladid.is SLOBODAN MILOSEVIC VIÐ RÉTTARHÖLD Milosevic var handtekinn fyrir fimm árum af stjórnvöldum í Serbíu og framseldur til Haag. Hann var fyrsti sitjandi þjóðarleitogi til að verða ákærður fyrir stríðsglæpi. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Sagðist óttast um líf sitt Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, fannst látinn í fangaklefa sínum að morgni laugardags. Degi áður hafði hann skrifað sex blaðsíðna bréf þar sem hann lýsti yfir ótta um að verið væri að eitra fyrir sér eftir að leifar af sterku lyfi fundust í blóði hans við læknisrannsókn. Hann var 64 ára gamall. Í ÞUNGUM ÞÖNKUM Gabriel Sargissian (til vinstri) lagði Tiger Hillarp Persson í sjöundu umferð Reykjavíkurskákmótsins í gær. Næstsíðasta umferðin verður tefld í dag. Ók á ljósastaur Bíll ók á ljósastaur á Skutulsfjarðarbraut aðfaranótt sunnu- dagsins. Ökumaðurinn er grunaður um ölvunarakstur. Fjórir menn á þrítugs- aldri voru í bílnum og sluppu allir með minniháttar meiðsl. Bílvelta Bíll valt á Eyrarbakkavegi um tvöleytið í gær. Mikill krapi og hálka var á veginum. Maður og kona voru í bifreiðinni og voru þau flutt til aðhlynningar á Selfoss. Bæði sluppu með minniháttar meiðsl en bifreiðin er töluvert skemmd. LÖGREGLUFRÉTTIR ÍRAK, AP Yfir fimmtíu manns létu lífið í sprengju- og skotárásum í Bagdad í gær. Þrjár bíla- sprengjur sprungu á útimörk- uðum í Sadr-hverfi sjía í borg- inni rétt fyrir sólsetur. Um fjörutíu manns létu lífið og yfir hundrað særðust. Lögreglan fann fjórðu sprengjuna áður en hún sprakk og tókst að aftengja hana. Mikil geðshræring greip þá sem voru í nágrenni spreng- inganna. Fólk reyndi að ná til þeirra slösuðu og til hinna látnu í brennandi byggingum eða bílum. Margir skutu úr rifflum út í loftið og reiðir íbúar spörkuðu í höfuð látins tilræðis- manns. Róttæki sjíaklerkurinn Moqtada al-Sadr á sér marga stuðningsmenn í Sadr-hverfinu en íraskir súnníar hafa, með árásum á sjía, reynt að koma af stað trúarbragðaátökum. Talið er víst að bílasprengjurnar hafi verið samhæfðar og því á ábyrgð sömu manna. Enginn hafði í gær- kvöld lýst ábyrgð á tilræðunum á hendur sér. Á annan tug manna lét lífið í sprengju- og skotárásum í gær- morgun, aðallega óbreyttir borg- arar. Dagurinn er sá blóðugasti í borginni um mánaðaskeið. - jóa Þrjár mannskæðar bílsprengjur sprungu á útimörkuðum í Írak: Tugir létust í sprengjuárásum SKÁLMÖLD Mikil geðshræring greip um sig í Bagdad í gær þegar þrjár bílsprengjur sprungu á sama tíma. NORDICPHOTO/AFP TÆKNI Fyrirtækið Apple hefur nú krafist þess að fá kvittanir fyrir öllum iPod-viðgerðum. Áður gátu Íslendingar fengið viðgerð án þess að framvísa kassakvitt- un. Apple neitar að greiða fyrir viðgerðir nema staðfest sé hvar og hvenær spilarinn var keypt- ur. Fjöldi iPoda á Íslandi er tal- inn vera um fimmtíu þúsund en miðað við sölutölur Apple-búð- arinnar í Reykjavík er aðeins um fimmtungur þeirra keyptur hér á landi og hefur Apple því tekið þessa ákvörðun. Viðræður standa yfir milli Apple á Íslandi og höfuðstöðva fyrirtækisins í Evrópu þar sem reynt er að útskýra aðstæður á Íslandi. - jóa Trúa ekki sölutölum: Apple krefst kassakvittana IPOD Nauðsynlegt er að sýna kassakvittun ef gera á við iPod-spilara. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.