Fréttablaðið - 13.03.2006, Síða 8

Fréttablaðið - 13.03.2006, Síða 8
 13. mars 2006 MÁNUDAGUR ” … erum mjög ánægð með þjónustuna.“ TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is / www.tryggingamidstodin.is TM ÁNÆGJA Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni eru við- skiptavinir TM þeir ánægðustu af viðskiptavin- um tryggingafélaga. Ummæli fólks sem lent hefur í tjóni segja mest um þjónustu tryggingafélaga. ” Við erum mjög ánægð með þjónustuna sem við höfum fengið hjá ykkur þegar tjónsatvik hafa komið upp hér í húsinu. Kveðja, Védís Gunnarsdóttir, gjaldkeri húsfélagsins Gaukshólum 2.“ Ánægjuvog tryggingafélaga 2005 200520042003 TM Sjóvá VÍS ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T M I 31 71 5 0 3/ 20 06 MENNTAMÁL „Það tekur Háskóla Íslands hundrað ár hið minnsta að komast í hóp hundrað bestu háskóla í heiminum og mér finnst broslegt að menn telji það raun- hæft markmið,“ segir Ingvar Bjarnason, læknir og prófessor í meltingarsjúkdómum við King´s College háskólann í Lundúnum. Hann undrast stórum að Krist- ín Ingólfsdóttir rektor og flestir deildarforsetar við skólann telji skólann eiga nokkurn möguleika á því. Það mun ekki gerast nema með róttækum breytingum, sér- hæfingu og stórauknu fjármagni. „Í sjálfu sér er ágætt að setja háleit markmið en þau verða að vera raunsæ líka. Mér finnst hug- myndin alveg fráleit og ástæðurnar eru margar. Spyrja verð- ur fyrst á hverju hug- myndir manna byggj- ast um hvort háskóli sé góður eður ei. Sé litið til þeirra skóla sem sitja ofarlega á listum yfir bestu háskóla heims- ins ár eftir ár stendur upp úr að mikið og öflugt rannsóknarstarf fer þar fram. Skólarnir eru að stórum hluta dæmdir eftir umfangi þeirra rannsókna. Árang- ur læknadeildar Háskóla Íslands, sem ég þekki hvað best, hvað varðar útgáfu greina er nokkuð góður en gæði kennslunnar eru að mínu mati lítil. Það hefur þó aðeins breyst með samvinnu við Íslenska erfðagreiningu og það er aðeins með slíkri samvinnu við fyrirtæki sem eru í fararbroddi tæknilega sem skólinn getur mögulega komið sér á kortið sem góð menntastofnun í framtíðinni. Með því að bæta gæði kennslunn- ar er þannig hægt að stíga stór skref fram á við en þar með er ekki sagt að hann komist í hóp þeirra bestu í heiminum. Hann á vissulega að stefna að því að vera góð kennslustofnun en sem vís- indastofnun er Háskóli Íslands nánast aftast á merinni og það helgast af eilífum fjárskorti.“ Ingvar tekur sem dæmi hvern- ig aðstaða lækna á Landspítala- háskólasjúkrahúsi á Íslandi er allt önnur og verri hér en sambærileg aðstaða erlendis. „Sérfræðingar í meltingar- fræðum á Íslandi eru með eigin starfsemi og starfa að auki á spít- ölunum. Vinnudagurinn er langur og strangur og lítill tími aflögu. Hér í Bretlandi á háskólaspítölum myndu þessir sömu aðilar eyða langmestum tíma sínum til rann- sókna og hafa frið til vinnu sinnar. Spítalarnir hefðu á stórum hópi vel menntaðra aðstoðarmanna að skipa og slíkt samstarf hefur gefið góða raun um langt skeið. Mér vit- andi þekkist þetta ekki heima á Íslandi.“ albert@frettabladid.is INGVAR BJARNASON Segir hægt að bæta gæði kennslu innan HÍ með samstarfi við fyrirtæki sem séu í farar- broddi í sínum greinum hérlendis. Það tekur heila öld að ná settu marki Að koma Háskóla Íslands í hóp þeirra bestu er göfugt markmið en fráleitt og óraunsætt að mati Ingvars Bjarnasonar, læknis og prófessors í Bretlandi. NEPAL Ram Bomjan, sextán ára strákur sem hefur fastað og stund- að hugleiðslu í tíu mánuði í skógi í Nepal, er nú týndur. Hann var stundum kallaður Litli Búdda en lögreglan telur það ólíklegt að honum hafi verið rænt. Sumir fylg- ismanna Bomjan telja hann hafa fært sig innar í skóginn til að fá frið en hann fékk hundruð heimsókna á hverjum degi. Fylgismennirnir segja Bomjan hvorki hafa borðað né drukkið allan þennan tíma en hafa neitað að leyfa læknum að rannsaka ástand hans og segja að það myndi trufla hann. Talið er að Bomjan hyggist stunda hugleiðslu í sex ár. - bg Íbúar Nepal óttast um afdrif sextán ára drengs: Litli Búdda horfinn RAM BOMJAN Drengurinn sem margir telja Búdda endurfæddan er nú horfinn. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES HÁSKÓLI ÍSLANDS Ingvar Bjarnason segir í sjálfu sér ágætt að setja sér háleit markmið en þau verði að vera raunsæ líka. VÖRUVERÐ Rúmlega þriðjungi dýr- ara er að versla í klukkubúð en í lágvöruverðsverslun. Þetta kemur fram í könnun sem verðlagseftir- lit ASÍ gerði á verði matvöru- körfunnar í liðinni viku og sagt er frá á fréttavef ASÍ. Í körfunni voru meðal annars grænmeti og ávextir, mjólkurvör- ur, brauð, morgunkorn, kaffi, pakkaðar kjötvörur og álegg, drykkjarvörur, hreinlætisvörur og fleira. Munurinn á vöru- körfunni í öðrum stórmörkuðum og klukkubúðum var að meðaltali 9,4 prósent. Þegar meðalverð á vöruflokk- um var borið saman kom í ljós nokkur munur. Mestur var verð- munurinn á grænmeti og ávöxtum, sem voru að meðaltali fjörutíu pró- sentum dýrari í stórmörkuðum en í lágvöruverðsbúðum og 63 pró- sentum dýrari í klukkubúðum en lágvöruverðsbúðum. Mjólkurvörur voru að meðal- tali 34 prósentum dýrari í stór- mörkuðum en í lágvöruverðsbúð- um og fjörutíu prósentum dýrari í klukkubúðum en í lágvöruverðs- búðum. Athyglisvert er hversu lítill munur er á stórmörkuðum og klukkubúðum. Mikill verðmunur var einnig á hreinsiefnum en þau voru að meðaltali 45 prósentum dýrari í klukkubúðum en lágvöruverðs- verslunum og 24 prósentum dýr- ari í stórmörkuðum en lágvöru- verðsbúðum. - ghs GRÆNMETIÐ DÝRT Mestur var verðmunur- inn á grænmeti og ávöxtum í verðkönnun ASÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Verðlagseftirlit ASÍ telur þriðjungi dýrara að versla í klukkubúð en lágvöruverðsverslun: Mestur munur á grænmeti RAFORKA Ný raforkulög sem tóku gildi um áramótin hafa töluverð áhrif á mörg iðnfyrirtæki. Verði hækkunum velt út í verðlagið geta þær numið yfir tuttugu prósentum. Hækkunin er tilkomin vegna þess að forsvarsmenn Orkuveit- unnar telja að þeir hafi ekki leng- ur forsendur til að semja við fyrirtæki um lækkun á raforku- verði gegn ákveðnum skilyrðum. Hingað til hefur iðnfyrirtækj- um verið boðinn svokallaður rof- inn taxti en í honum felst að Orku- veitan hefur leyfi til að skrúfa fyrir rafmagn til fyrirtækjanna á ákveðnum álagstímum gegn lægra verði. - fb Nýju raforkulögin: Hafa áhrif á verðlagningu VILL Í FREMSTU RÖÐ HÁSKÓLI ÍSLANDS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.