Fréttablaðið - 13.03.2006, Síða 22
13. mars 2006 MÁNUDAGUR4
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
S: 544 5700 * www.polyhudun.is
Smiðjuvegi 1 * 200 Kópavogur
Pólýhúðun á alla málma
Langsterkasta lakkhúð
sem völ er á
Það getur verið að sumum þyki gaman
að pensla en hinir lát okkur PÓLÝHÚÐA
og þurfa svo ALDREI að pensla
Helga Björk Einarsdóttir
garðyrkjufræðingur er komin
í runnaklippingar og kennir
okkur fúslega handtökin.
„Mars og apríl eru kjörtími til að
klippa runna,“ segir Helga, sem er
að störfum í Laugardalnum þegar
við rekumst á hana. Hún dregur
ekki dul á að best sé fyrir fólk að
kalla garðyrkjumann til þegar
runnarnir þurfi snyrtingar við en
þeir sem vilji fást við það sjálfir
verði að hafa viss atriði í huga.
„Þegar verið er að móta limgerði
þá á það að mjókka upp í endann.
Það á að vera meira eins og A í lag-
inu en V til að sólin nái inn að
stofni frá jörðinni og upp á topp.
Ef runninn er klipptur eins og V
eða kassi kemur skuggasvæði inni
í miðju og hann verður ekki eins
endingargóður og A:laga runnarn-
ir. Þetta er mikið atriði,“ segir hún
með áherslu og bætir við: „Maður
sér svo oft vitlaust klippt limgerði
og mér finnst það alltaf jafn pirr-
andi!“
Helga telur best að klippa lim-
gerði þrisvar á ári, einu sinni
snemma vors og tvisvar að sumr-
inu. Hún mælir samt með því að
klippa ekki í sömu sárin heldur
bæta nokkrum sentimetrum við
hverju sinni. „Það væri synd að
klippa af öll fersk og hraust brum
á greinunum frá því í fyrra. Þau
eru svo góð til að koma plöntunni
af stað inn í sumarið því þau hafa
ekki orðið fyrir neinu áreiti
ennþá.“ Ekki segir hún samt gott
að hækka plöntuna of mikið í einu.
„Ef nýbúinn er að gróðursetja lim-
gerðið má ekki hækka það á fyrsta
ári um 40-50 sentimetra þó að víði-
plöntur geti vaxið alveg gríðar-
lega yfir sumarið. Ég veit að mörg-
um finnst erfitt að þurfa að klippa
stíft til að byrja með en það er
samt eina ráðið til að fá runnann
þéttan. Maður verður að vera
grimmur og klippa niður þannig
að plantan hækki ekki nema svona
um tíu sentimetra frá síðustu
klippingu, þangað til hún er komin
í þá hæð sem fólk vill. Það getur
tekið þrjú góð ár.“
Þær aðferðir sem Helga Björk
er hér að tala um gilda um algeng-
ustu limgerðisplöntur, eins og víði
og mispil. Öðru máli gegnir um
greni og lerki sem sumir nota líka
í limgerði. Þær tegundir má ekki
stífa fyrr en þær hafa vaxið í þá
hæð sem þær eiga að vera í, bara
snyrta hliðarnar, að sögn Helgu
Bjarkar. „Plöntur með einum leið-
andi stofni verða að fá að vaxa upp
í endanlega hæð,“ ráðleggur hún
að lokum. gun@frettabladid.is
Helga Björk við störf í Laugardalnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lætur runnana mjókka
upp í endann
Ísraelskt fyrirtæki hefur þróað
nýjan öryggisbúnað sem bjarga
á fólki ef eldur kemur upp og
lokar útgönguleiðum úr háhýs-
um.
Búnaðinum, sem kostar um sjötíu
milljónir króna, má helst líkja við
björgunarbáta. Hann samanstend-
ur af krana efst á byggingu og
stálvírum sem halda uppi utaná-
liggjandi björgunarhylkjum. Þessi
hylki virka eins og lyftur og getur
fólk komist inn í þau um glugga.
Búnaðurinn getur borið allt að
þrjátíu manns, bæði fórnarlömb
niður og slökkviliðsmenn upp.
Flestir sem urðu vitni að sýn-
ingunni voru hrifnir af búnaðin-
um. Þar á meðal voru stjórnmála-
menn, öryggissérfræðingar og
eigandi háhýsis á Manhattan sem í
kjölfarið falaðist eftir búnaðin-
um.
Hugmyndin að búnaðinum
kviknaði þegar nokkrir starfs-
menn fyrirtækisins horfðu á heim-
ildarmynd um hrun Tvíburaturn-
anna í New York. Þeir telja að með
búnaði sínum hefði verið hægt að
bjarga fjölmörgum mannslífum.
Yfirvöld í New York eru ekki á
sama máli. Þau segja búnaðinn
óáreiðanlegan í fyrsta lagi vegna
þess að óvissa ríki um hver eigi að
stjórna honum á ögurstundu, og í
öðru lagi vegna þess að myndast
geti svokallað Titanic-ástand, þar
sem mikill troðningur myndast er
fólk berst um að komast fyrst að.
Nýr öryggisbúnað-
ur í skýjaklúfa
Búnaðurinn hefði komið að notum 11.
september í New York. FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS
Helga Björk klippir utan úr runnunum til að þeir verði sem líkastir A í laginu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN