Fréttablaðið - 13.03.2006, Page 24
13. mars 2006 MÁNUDAGUR6
Heimili Thorstens og Lóu hefur
tekið miklum stakkaskiptum á
síðustu árum.
Við Bergstaðastræti stendur vina-
legt þriggja hæða hús með báru-
járnsklæðningu. Háreistur
tveggja glugga kvistur og trélist-
ar á hornum hússins gefa því róm-
antískt yfirbragð liðinna tíma. Í
garðinum seytlar vatn úr litlum
gosbrunni en innandyra fyllist
loftið af suðrænni angan þegar
nýlagað kaffi er borið fyrir gesti.
Við erum í heimsókn hjá Lovísu
Lóu Sigurðardóttur myndlistar-
konu og Thorsten Henn ljósmynd-
ara.
Emanúelshús, eins og það heit-
ir, var byggt 1914. Þá var það á
einni hæð en sex árum seinna var
kjallari byggður undir það og síðar
viðbygging sem þau hjónin nota
sem svefnherbergi í dag. Rúmum
áttatíu árum frá fyrsta hamars-
högginu er húsið enn í smíðum. Í
vetur hefur þriðju hæðinni verið
bætt við, þar sem Thorsten er með
stúdíó sem er jafnstórt grunnfleti
hússins, 38 fermetrar.
Það sést vel á húsinu að íbúar
þess hafa næmt auga fyrir hinu
sjónræna. Síðan þau hjónin eign-
uðust húsið hafa þau verið að end-
urnýja það, herbergi fyrir her-
bergi. Thorsten hefur sjálfur
smíðað innréttingar og fleira til-
fallandi og Lóa gerði sér lítið fyrir
og flísalagði baðherbergið á síð-
ustu dögum meðgöngu sonarins,
Jökuls Hrafns.
Eik, málmur og náttúrusteinn
gefa tóninn í látlausu en fallegu
og stílhreinu útliti. Hvítur litur er
líka áberandi og á stólum eru grá
eða svört áklæði. Hvergi er að
finna óþarfa innanstokksmuni og
miðað við fermetrafjölda er hver
hæð ótrúlega rúmgóð og björt.
Risið er einn geimur með tæplega
fjögurra metra lofthæð en leifar
af upprunalegum skorsteini skera
fyrstu hæðina í miðju. Hann
kemur í stað veggja og auk þess
að skipta hæðinni í eldhús og stofu
er hann nýttur sem stoð fyrir
skápa og morgunverðarborð. Inni
af stofunni, bak við breiðar dyr úr
hvítu tré og gleri, er svefnher-
bergið.
Gengið er inn í húsið á fyrstu
hæð, sem er yfir lítið niðurgröfn-
um kjallara. Það fyrsta sem manni
dettur í hug þegar komið er inn í
húsið er að þar hljóti að vera nota-
legt að slaka á eftir annasaman
dag, við kertaljós og þýða tónlist.
Thorsten og Lóa gera þó lítið af
því þessa dagana því fyrir utan að
vera með ungbarn er næst á dag-
skrá að reisa sólstofu í garðinum
og taka kjallarann í gegn.
PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is
PGV ehf. sérhæfir sig í smíði glugga,
hurða, sólstofa og svalalokanna úr
PVC-u
Öllum framleiðsluvörum PGV fylgir
10 ára ábyrgð
Gluggarnir eru viðhaldsfríir og á
sambærilegum verðum og gluggar
sem stöðugt þarfnast viðhalds
GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR …
• ENGIN MÁLNINGAVINNA
• HVORKI FÚI NÉ RYÐ
• FRÁBÆR HITA OG HLJÓÐEINANGRUN
• FALLEGT ÚTLIT
• MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR
• ÖRUGG VIND- OG VATNSÞÉTTING
Listalagerinn
Mikið úrval af listmálaravörum
Járn og gler ehf - Skútuvogur 1
Barkarvogsmegin - S :5858900 www.jarngler.is
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
Rúmgott og bjart í
stöðugri endurnýjun
Thorsten og Lóa fyrir utan húsið sitt við Bergstaðastræti. Þau sáu sjálf um að hanna húsið
að innan en að utan útfærði Páll V. Bjarnason arkitekt hugmyndir þeirra á mjög smekkleg-
an hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Morgunverðarborðið kemur út frá skor-
steininum og er mitt á milli barborðs og
eldhúsborðs í hæð.
Í stofunni eru sófi og stóll með svörtu leðri
og eikarborð. Spegillinn á veggnum gefur
rýminu aukna dýpt og sex umferðir af
ljósu bæsi gefa panilklæðningunni lósara
yfirbragð.
Þrátt fyrir aðeins 38 fermetra grunnflöt
virkar húsið mun stærra. Fjöldi veggja er í
lágmarki og húsgögn eru fá en mjög vönd-
uð og sum hver heimasmíðuð.
Þegar framkvæmdir á fyrstu hæðinni stóðu yfir lagði Thorsten oft frá sér verkfæri á bráða-
birgðahillur á skorsteininum. Að lokum ákvað hann að setja þar skáp með rennihurð og út
frá skorsteininum eru glasahillur með glerbaki sem auka enn á bjart yfirbragð rýmisins.
Annar hfRekstrarverkfræðistofan
Suðurlandsbr. 46 • Sími 568 1020 • Annar.is
a Eignaskiptay rlýsingar
atvinnu- og íbúðahúsnæði
fyrir