Fréttablaðið - 13.03.2006, Page 78

Fréttablaðið - 13.03.2006, Page 78
 13. mars 2006 MÁNUDAGUR26 menning@frettabladid.is ! SÍÐUSTU SÝNINGAR Á HIMNARÍKI Lau. 25. mars. kl. 20 Fös. 31. mars. kl. 20 Síðasta sýning. VIÐTALIÐ eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur fös. 17. mars kl. 20 sun. 19. mars kl. 20 fös. 24. mars kl. 20 sun. 26. mars kl. 20 Olga Bergmann myndlist- armaður opnaði sýningu í húsakynnum Listasafns ASÍ um helgina og sýnir þar fjölskrúðug og á köflum hávísindaleg sköpunarverk. Henni til aðstoðar er hliðarsjálfið Doktor B. sem að sögn Olgu dúkk- aði upp fyrir fimm árum síðan. „Doktor B. er vísindamaður sem framleiðir erfðabreyttar lífverur án ábyrgðar,“ segir hún en mynd- listarverk hliðarsjálfsins gætu allt eins hafa orðið til á rannsóknar- stofum. Í verkum sínum vinnur Olga með goðsögukenndar og ævintýralegar hugmyndir okkar um náttúruna og vísindin. Olga segir að verkin á sýning- unni séu á fleiri plönum að þessu sinni og þau teygi anga sína víða. Hún sýnir t.d. náttúrulífsmyndir og myndbandsverk sem lýsir þró- unarsögu á þremur mínútum. Olga Bergmann rekur vísindaáhuga sinn til ástar sinnar á vísinda- skáldskap og öllu því sem tengist dýrum og ævintýrum og leitast við að sameina þetta þrennt í myndlistarverkum sínum. Hugmyndaauðgi Olgu er augljós og verkin, sem unnin eru með blandaðri tækni, eru mjög fjöl- breytt, húmorísk og áleitin. Í kjall- ara Listasafnsins, Gryfjunni, sýnir Olga myndir og myndbandsverk um verkefni sem hún gerði á Írlandi en þar útbjó hún m.a. kofa fyrir villt dýr og nautgripi. Í Arinstofu eru verk úr safnkosti Listasafns ASÍ en Olga valdi verk eftir Jón Stefánsson málara. „Mér fannst viðeigandi að velja landslagsverk,“ segir Olga en hún hefur síðan bætt við eigin skúlptúrum í sýningar- rýmið. Á annarri hæð eru síðan verk af ýmsum toga, m.a. klippi- mynd og postulínsskúlptúrar. Sýning Olgu Bergmann stend- ur til 2. apríl en Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga, frá kl. 13-17, og er aðgangur að safninu ókeypis. Villt og tamið OLGA BERGMANN MYNDLISTARMAÐUR Kl. 12.15 Dr. Michael Rubin ræðir og skýrir stefnu Bandaríkjastjórnar í Mið-Austurlöndum. Rubin hefur starfað sem ráðgjafi í varnarmálaráðu- neyti Bandaríkjanna og sem fréttaskýrandi m.a. fyrir CNN, Fox og BBC. Rubin flytur erindi sitt í stofu 101 í Odda. �������������� ������� ���������� ���� ������������ ���������� ��� � > EKki missa af ...æskuverkum Errós í Hafnarhúsi. Verkin á sýn- ingunni gefa áhugaverða mynd af hæfileikaríkum og vinnusömum ungum manni. ...Virkjuninni, umdeildri sýningu eftir austurríska nóbelsskáldið Elfriede Jelinek í Þjóðleikhússinu. Ekki er annað hægt en að hafa á því skoðun. ...verkum Huldu Hákon í 101 Gallerí. Á sýningunni má sjá innihaldslýsingar á 350 kössum úr geymslu Reykjavíkurborgar sem geyma meistaraverk úr vinnustofu Jóhannesar Kjarval.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.