Fréttablaðið - 13.03.2006, Síða 79
MÁNUDAGUR 13. mars 2006 27
Ljóðið á aldeilis upp á menningar-
pallborðið um þessar mundir og
nú hefur Fræðsludeild Þjóðleik-
hússins og fjórir sérlegir stuðn-
ingsmenn ljóðsins, þau Eysteinn
Þorvaldsson, Ástráður Eysteins-
son, Sigurbjörg Þrastardóttir og
Hjalti Snær Ægisson, tekið saman
höndum og munu þau standa fyrir
ljóðaskemmtunum á þriðjudags-
kvöldum í Leikhúskjallaranum.
Umsjónarmaður verkefnisins er
Þórhallur Sigurðsson, leikstjóri og
deildarstjóri fræðsludeildarinnar.
Þessi þematengdu ljóðakvöld eru
m.a. tilkomin vegna þeirrar
umræðu sem borið hefur á meðal
bókmenntamanna og ljóðaunn-
enda sem telja að ljóðið hafi orðið
hornreka í menningarumfjöllun
hérlendis og njóti of lítillar athygli.
Stefnt er að því að skapa ljúfa
stemningu í sal Leikhúskjallarans
þar sem gestir geta fræðst og
notið ljóðlistar. Annað kvöld verð-
ur Ljóðs manns æði haldið í fyrsta
sinn og verður þar fjallað um útrás
ljóða og yrkingar um útrásir. Það
hugstæða viðfangsefni verður
tæklað í sögulegu samhengi og
m.a. komið inn á íslenska land-
könnun og landnám erlendis.
Flytjendur verða leikarar og höf-
undar en skemmtunin hefst kl.
21.00 en húsið opnar kl. 20.30.
Ljóðs
manns æði
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þorvaldur Þorsteinsson, myndlist-
armaður og rithöfundur, heldur
erindi í kvöld sem hann nefnir
„Hvað heldurðu að þú sért?“ en
erindið er ætlað öllum þeim sem
enn halda í vonina að þeir „séu eitt-
hvað“ og þeim sem vilja kynnast
sjálfum sér og möguleikum sínum
betur. „Ég lofa að boðskapur fyrir-
lestursins er ekki jafn kaldranaleg-
ur og yfirskriftin gefur til kynna,“
segir Þorvaldur og bætir við að
þetta sé ansi skæð spurning sem
við beitum bæði á okkur sjálf og
aðra. „Ég ætla að snúa henni upp í
jákvæðari hugsun,“ útskýrir Þor-
valdur. Hann segist vilja nýta sér
það leyfi sem hann hafi sem lista-
maður til þess að miðla af reynslu
sinni og tala við fólk og hvetja.
Hann segir að hvatningin
gleymist oft í uppeldiskerfi okkar.
„Við erum þjálfuð og undirbúin til
þess að verða eitthvað,“ segir Þor-
valdur. Þannig séum við verðandi
starfsheiti fremur en einstakling-
ar og náum ekki að þroska mögu-
leika okkar og kynnast okkur sjálf-
um. „Það leynist meira undir
niðri,“ áréttar hann bjartsýnn.
Þorvaldur segir að sameiginleg
vanmáttarkennd okkar sé ógnvekj-
andi en um leið áhugaverð en hann
hefur gert töluvert af því að ferð-
ast um og halda erindi, t.d. innan
fyrirtækja, í tengslum við starf
sitt hjá Kennslu.is. Fyrirtækið,
sem er framleiðslu- og fræðslu-
miðstöð sem Þorvaldur rekur
ásamt eiginkonu sinni Helenu
Jónsdóttur, var sett á laggirnar
fyrir tveimur árum síðan og sinnir
það námskeiðahaldi og ráðgjöf
fyrir bæði einstaklinga og hópa
sem vilja virkja sköpunarkraft
sinn og auka möguleika sína bæði í
leik og starfi.
Þetta er í þriðja skipti sem Þor-
valdur heldur erindi í samstarfi
við fyrirtækið Maður lifandi en
hann segir að fyrirlestrarnir séu
ólíkir og fari eftir stemningunni í
hópnum. „Þeir þróast með spurn-
ingunum sem liggja í loftinu,“ segir
Þorvaldur og útskýrir að erindið
henti öllum aldurshópum og aldrei
sé of seint að mæta. Erindið flytur
Þorvaldur í húsakynnum fyrirtæk-
isins Maður lifandi í Borgartúni,
milli kl. 18 og 19.
Möguleikar mannfólksins
ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON
Rithöfundurinn Harold S. Kushner varð fyrir persónulegu áfalli sem
fékk hann til að spyrja
grunvallarspurninga
um gæfu og forsjón.
Afraksturinn varð bókin
Hvers vegna ég? sem
í dag er meðal sígildra
metsölubóka og kemur
nú út í bókaflokki
Vöku-Helgafells, Listin
að lifa.
Gerald G. Jampolsky fjallar um lækningamátt fyrirgefningarinnar
af einstöku innsæi
í bókinni Fyrirgefn-
ingin. Á einlægan og
aðgengilegan hátt er
því lýst hvernig hún
getur frelsað okkur úr
fjötrum beiskju, ótta
og sársauka og beint
okkur á braut innri
friðar og hamingju.
Listin að elska eftir Erich Fromm er ein vinsælasta bók
um ástina sem rituð
hefur verið. Fromm
lýsir af miklum sann-
færingarkrafti mætti
ástarinnar í marg-
breytilegum myndum
og skýrir hvernig er
komið fyrir henni í
nútímanum.
Rebbi og Héra er fyrsta bókin um hugljúfum bókaflokki um skemmti-
lega vini eftir belgísku listamennina
Sylvia Vanden Heede og Thjé Tjong-
Khing. Bækurnar eru heppilegar fyrir
þá sem eru að byrja að lesa. Í þeirri
fyrstu segir frá skemmtilegum vetri í
skóginum.
Beint í mark! eftir Colin McNaughton segir frá Búa, sem er með fótbolta-
dellu. Hann er nýfluttur og dauðlangar
að komast í hverfisliðið og fær tækifæri
þegar Robbi er borinn meiddur af velli.
Skemmtileg myndabók fyrir krakka.
NÝJAR BÆKUR