Fréttablaðið - 13.03.2006, Síða 81

Fréttablaðið - 13.03.2006, Síða 81
Dælan er nýtt samskiptaforrit frá Símanum sem hefur að geyma margvíslegar nýjungar í heimi upplýsingatækninnar og fjölda hagnýtra hjálpartækja. Meðal annars er hægt að hlaða niður tölvuleikjum og tónlist sem er hægt að spila bæði beint úr tölvunni og af plötum. Með hjálp Dælunnar geta notendur skipu- lagt tónlistarsöfn sín og skrifað plötur bæði með tónlist og öðrum gögnum. Einnig býður forritið upp á fimmtíu orðabækur á um tuttugu tungumálum og geta notendur búið til sín eigin orðasöfn og orða- glósur sem Dælan vistar. „Viðskiptavinir hafa kallað eftir því að geta sameinað afþrey- ingarefni sitt á einum stað og Dælan á að leysa það,“ segir Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. „Þetta er mjög einfaldur hugbúnaður. Þú getur spilað og brennt geisladiska, sent hóp-sms og mms og margt fleira. Síðan er ein skemmtilegasta virknin sú að þú getur tekið upp með diktafón,“ segir Eva. Hægt að hlusta á fjölda útvarps- stöðva í gegnum forritið auk þess sem meðal annars er hægt að kaupa hringitóna, hreyfimyndir og leiki inn í Dæluna. Forritið er ókeypis og hægt er að nálgast það á vef Símans. Afþreyingarefnið allt á einum stað EVA MAGNÚSDÓTTIR Síminn hefur hleypt af stokkunum samskiptaforritinu Dælunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tæplega tvö hundruð miðar eru eftir á tónleika sænsku söngkon- unnar Lisu Ekdahl sem verða haldn- ir í Háskólabíói hinn 24. mars næst- komandi. Ekdahl hefur síðastliðinn mánuð verið á tónleikaferð um Norður- löndin sem hefur gengið ákaflega vel. Systkinin KK og Ellen munu hita upp fyrir Ekdahl í Háskólabíói. Húsið opnar klukkan 19.45 og hefjast tónleikarnir klukkan 20.30. Miðasala fer fram á midi.is og í verslunum Skífunnar og BT. Fáir miðar eftir á Lisu Söngkonan Pink gagnrýnir áherslur á útlit í nýja mynd- bandinu sínu við lagið Stupid Girls. „Fólk sagði oft að ég væri feit og það tók mig langan tíma að venjast því. Ég hugsa það sama og allir aðrir. En ég er hraust, sterk og í mjög góðu formi,“ sagði Pink en í mynd- bandinu gerir hún grín að stelp- um eins og Olsen-tvíburunum og Paris Hilton. „Ég þarf ekki að nefna nein nöfn. Ég er að gagn- rýna þá staðreynd að stelpur þurfi að vera sætar og heimskar til að ná árangri,“ sagði söngkon- an, sem nýlega giftist mótor- hjólatöffaranum Carey Hart. Hún viðurkenndi líka að hafa stundað óheilsusamlegt líferni á yngri árum. „Ég gerði mikið af slæmum hlutum þegar ég var mjög ung. Ég var þessi dæmi- gerði vandræðaunglingur. Ég er samt fegin að ég kláraði það skeið fyrir tvítugsaldurinn.“ Gagnrýnir útlitspressuna PINK Hún er ekki sátt við þá pressu sem er lögð á ungar stúlkur að vera mjóar og sætar. Orðrómur hefur verið uppi um að Lindsay Lohan og Sean Lennon eigi í ástarsambandi en þau kynnt- ust þegar Lindsay var að leika í myndinni Chapter 27. Þau sáust svo nokkrum sinnum á djamminu saman á fínum stöðum í New York eins og Bungalow 8 og úti að borða á Bette. Lohan segir þó ekkert vera til í orðróminum. „Ég kynnt- ist Sean Lennon þegar ég var að búa mig undir myndina mína og mun koma fram í myndbandi með honum,“ en myndin fjallar um Mark Chapman sem drap John Lennon. Ekki með Sean Lennon ,,Við ætlum fjórar vinkonur saman aftur og aftur! Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“ S á k ið f i k di bö Hvað segja börnin um námskeið í Keramik fyrir alla? saman aftur og aftur! Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“ Sumarnámskeið fyrir skapandi börn, eldri og yngri, keramik, teikning, málun - allt innifalið - litlir hópar. Aðeins 8500 kr. vikan! Skráning í Keramik fyrir alla, sími 552 2882, Laugavegi 48b. Sjá lýsingu: www.keramik.is Keramik fyrir alla Óvissuferðir, gæsir, vinnust ðir, saumaklúbbar... Bókaðu eigin hóp, eða komdu þegar þér hentar. Þin hópur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.