Fréttablaðið - 13.03.2006, Síða 83

Fréttablaðið - 13.03.2006, Síða 83
MÁNUDAGUR 13. mars 2006 31 DHL-deild karla: FRAM-KA 37-27 Mörk Fram: Jóhann Gunnar Einarsson 8, Stefán Stefánsson 6, Sigfús Sigfússon 5, Björgvin Björg- vinsson 4, Þorri Gunnarsson 3, Haraldur Þorvarðar- son 3, Guðjón Drengsson 3, Sverrir Björnsson 3. Varin skot: Magnús Erlendsson 5, Björn Friðþjófs- son 4, E. Petkevicius 1. Mörk KA: Elfar Halldórsson 5, Nikola Jankovic 5, Goran Gusic 4, Ragnar Snær Njálsson 4, Magnús Stefánsson 3, Andri Snær Stefánsson 1, Þorvaldur Þorvaldsson 1, Rögnvaldur Johnsen 1, Jónatan Magn- ússon 1, Sævar Árnason 1, Hörður Sigþórsson 1. Varin skot: Elmar Kristjánsson 10, Hreiðar Guð- mundsson 5. HAUKAR-SELFOSS 33-28 FH-STJARNAN 26-31 STAÐA EFSTU LIÐA: FRAM 20 15 2 3 577-523 32 HAUKAR 20 15 1 4 611-549 31 VALUR 20 14 1 5 607-552 29 STJARNAN 20 12 4 4 589-546 28 FYLKIR 20 11 2 7 553-506 24 DHL-deild kvenna: FH-GRÓTTA 25-26 Ítalska úrvalsdeildin: JUVENTUS-AC MILAN 0-0 Deildarbikarinn: VÍKINGUR ÓL.-ÍBV 0-0 Slavisa Mitic - Atli Jóhannsson (2) ÚRSLIT GÆRDAGSINS Gylfi Þór Sigurðsson, átján ára ungl-ingalandsliðsmaður, átti stórleik fyrir lið sitt Reading þegar u-19 ára lið félagsins tapaði fyrir Chelsea á laugar- dag, 4-2. Eftir því sem stuðningsmenn Reading segja á spjallsíðum var Gylfi Þór langbesti leikmaður liðsins í leiknum en hann lagði upp bæði mörk sinna manna. Pat Reily, þjálfari Miami Heat í NBA-deildinni, segir að Dwyane Wade, sem farið hefur á kostum með liðinu í vetur, sé hæfileikarík- asti leikmaður sem hann hafi nokkurn tíma þjálfað. „Hann er gríðarlega mikill íþróttamaður og ef litið er til allra þátta hefur hann líklega mestu hæfileikana,“ segir Riley, sem m.a. hefur þjálfað Magic Johnson og Kareem Abdul-Jabbar á sínum ferli. „Johnson kemst ekki nálægt því sem Wade getur gert, þegar litið er til líkam- legra þátta,“ segir Riley. Valur er þessa dagana með belgískan varnarmann á reynslu hjá sér. Hinn 33 ára gamli leikmaður heitir Sadio Ba og býr yfir mikilli reynslu frá belgísku úrvalsdeildinni, en þar hefur hann leikið með St. Truiden, Lokeren og Westerlo. Ba verður hjá Val út þessa viku. Hið virta breska dagblað The Observer greindi frá því í gær að Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hygð- ist bjóða í David Beckham hjá Real Madrid í sumar. „Ég veit ekki hvað hann ætlar sér en sem leikmaður er Beckham í miklum metum hjá mér,“ hefur blaðið eftir Wenger. Hrakfarir brasilíska framherjans Ron-aldo hjá Real Madrid virðast engan enda ætla að taka en á laugardags- kvöldið fékk hann upplagt tækifæri til að verða tekinn í sátt af stuðningsmönnum liðsins. Þá tók hann vítaspyrnu sem Real fékk á 90. mínútu stórleiksins gegn Val- encia en svo fór að Santiago Canizares varði slaka spyrnu hans. Lokatölur urðu því 0-0. Skíðakonan Dagný Linda Kristjáns-dóttir hafnaði í 3. sæti á stór- svigsmóti sem fram fór í Þýskalandi á laugardaginn. Þessi árangur Dagnýjar þykir mjög góður og færir henni rúm 30,17 FIS stig, sem gerir það að verkum að hún mun líklega taka gott stökk upp heimslistann í greininni. Ólafur Stefánsson skoraði sjö mörk fyrir lið sitt Ciudad Real sem sigraði Cangas, 30-25, í spænsku úrvals- deildinni í hand- bolta á laugardag. Barcelona er efst í deildinni með 38 stig en Ciudad Real er í 3. sæti með 34 stig. Juventus og AC Milan skildu jöfn í stór-slag ítölsku úrvalsdeildarinnar í gær- kvöldi, 0-0. Leikurinn náði aldrei þeim hæðum sem vonast var eftir og var lítið um færi hjá báðum liðum. Juventus er því áfram með 10 stiga forystu á toppi deildarinnar og á titilinn næsta vísan. Miðjumaðurinn Jóhannes Gíslason hefur gengið til liðs við Þrótt í 1. deildinni og fylgir þar með bróður sínum Þorsteini sem nýlega skrifaði einnig undir samning við Reykjavíkur- liðið. Báðir hafa þeir verið á mála hjá ÍA undanfarin ár. Þjóðverjinn André Miklaus sigraði óvænt í sjöþraut á HM í frjálsum íþróttum í gær. Tveir sigurstranglegustu keppendurnir, Bryan Clay frá Bandaríkj- unum og Roman Serble frá Tékklandi, urðu í 2. og 3. sæti. Miklaus sigraði í síðustu tveimur keppnisgreinunum, stangarstökki og 1000 metra hlaupi, og stakk sér þannig í efsta sætið. Niklaus hlaut 6.192 stig og Clay 6.187 stig en Serble 6.161 stig. ÚR SPORTINU HANDBOLTI KA-menn byrjuðu betur í Safamýrinni í gær og skoruðu þrjú fyrstu mörkin en þá komust Framarar í gang, lokuðu vörninni og voru með þriggja marka forskot í hálfleik. Í seinni hálfleiknum má síðan segja að aðeins eitt lið hafi verið á vellinum og tíu marka sigur heimamanna, 37-27, varð stað- reynd. „Það tók okkur smá tíma að vakna en hægt og rólega komumst við inn í leikinn. Við náðum góðri forystu sem byggðist á mjög góðri vörn og öguðum sóknarleik. Liðs- heildin var mjög sterk, liðið vann mjög vel saman í vörn og sókn. Við byggjum ekki á einum eða tveim- ur leikmönnum og það er mjög jákvætt fyrir okkur,“ sagði Guð- mundur Guðmundsson, þjálfari Fram, eftir leikinn en framundan er spennandi lokasprettur í deild- inni. „Ég er mjög ánægður með hvernig við náðum að klára leik- inn því við höfum stundum náð góðri forystu en misst hana síðan niður. Nú heldur baráttan í deild- inni áfram, við höfum ungt lið og ætlum bara að stíga eitt skref í einu,“ sagði Guðmundur. Jóhann Einarsson var marka- hæstur hjá Fram með átta mörk en annars dreifðist markaskorun vel hjá liðinu. Varnarleikur liðsins með Sverri Björnsson í farabroddi var mjög góður og virðist góður andi ríkja innan liðsins. KA-menn virtust gefast upp í seinni hálfleik og hafa haft trú á þessu, „Leikur okkar hrundi í seinni hálfleik og ljóst að við þurfum að endurskoða okkar leik. Í fljótu bragði finnst mér menn ekki hafa mætt tilbúnir í þennan leik. Við náðum engan veginn að skapa okkur færi í seinni hálfleik og vörnin hélt ekki. Þá var mark- varslan nánast engin og ekkert gekk upp,“ sagði Reynir Stefáns- son, þjálfari KA. Haukar elta Fram eins og skugginn en þeir unnu Selfoss auðveldlega á Ásvöllum í gær- kvöldi, 33-28. - egm Sigur liðsheildarinnar Framarar halda efsta sætinu í DHL-deild karla en þeir unnu tíu marka sigur á KA í gær 37-27. Haukar fylgir Fram eins og skugginn og eru áfram í 2. sæti. ÁRANGURSLAUST Varnarmenn KA reyna hér að stöðva Jóhann Einarsson, sem skoraði átta mörk í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.