Fréttablaðið - 13.03.2006, Qupperneq 86
13. mars 2006 MÁNUDAGUR34
��������
��� ��� ��� ��� ���
��� �� ��� ��� ������
��� ��� �
�� �� �� �� �
�� �� �� �� �
��������
�����������������������
�������������
������������������������������
��
���������
�����������
��������������
���� ���������
������������������������������
LÁRÉTT
2 merki 6 frá 8 augnhár 9 al 11
á fæti 12 gangtegund 14 vísa 16 2
eins 17 fúadý 18 hlé 20 til dæmis
21 hræðsla.
LÓÐRÉTT
1 spjall 3 í röð 4 íþrótt 5 til sauma 7
forhlaup 10 meðvitundarleysi 13 kóf
15 sál 16 nögl 19 tveir eins.
LAUSN
HRÓSIÐ
...fær Þröstur Leó Gunnarsson
leikari fyrir að láta tábrot ekki
aftra sér við kvikmyndaleik.
Músíktilraunir verða haldnar í 24. sinn
dagana 20. til 31. mars. Í þetta sinn
fer keppnin fram í Loftkastalanum og
verður Árni Matthíasson, blaðamaður á
Morgunblaðinu, yfirmaður dómnefndar
sem fyrr.
Árni segist eiga mjög erfitt með
að velja bestu hljómsveit allra tíma í
keppninni. „Þetta eru 20. Músíktilraun-
irnar sem ég sé um og á þessum tíma
hef ég séð um það bil 700 hljómsveit-
ir. Þær hljómsveitir sem ég hafði hvað
mest gaman af að sjá voru Bootlegs og
Bee Spiders með Jónsa og Kjartani úr
Sigur Rós. Þarna var Kjartan í minipilsi
og með hárkollu og þóttist vera kona,“
segir Árni og glottir við tilhugsunina.
„Bootlegs er besta hljómsveit
Músíktilrauna sem ekki vann. Þeir voru
ógeðslega þéttir og góðir og mikill
kraftur í þeim. Þeir spiluðu ruslkennt
rokk og kaflaskiptingarnar voru hraðar
og síðan hafði söngvarinn sterka
útgeislun,“ segir hann.
Hvað varðar eftirminnileg atvik man
Árni vel eftir hljómsveitinni Maunir
sem braut egg og gítar á sviðinu árið
1992. Meðlimir voru meðal annars
Arnar Eggert Thoroddsen og Danni
trommuleikari í Maus. „Þetta var mjög
umdeild hljómsveit. Dómnefndin setti
hana áfram og þá var ég sakaður um
að hata tónlist af einum dómnefndar-
manni. Þarna komst eiginlega upp um
mig,“ segir hann og hlær.
Árni segist hafa haft ótrúlega
gaman af Músíktilraununum í gegnum
árin. „Konan mín er alltaf með mér og
tekur myndir og ég hefði sennilega
ekki nennt þessu annars. Á hverju vori
ræðum við hvort þetta sé ekki orðið
gott en við ákveðum alltaf að vera eitt
árið í viðbót,“ segir Árni og útilokar
ekki að vera í dómnefndinni þar til
hann fer á eftirlaun árið 2027. - fb
SÉRFRÆÐINGURINN ÁRNI MATTHÍASSON OG BESTA HLJÓMSVEIT MÚSÍKTILRAUNA
Bootlegs var ógeðslega þétt
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT: 2 tákn, 6 af, 8 brá, 9 bor, 11
il, 12 brokk, 14 staka, 16 kk, 17 fen, 18
lot, 20 td, 21 ótti.
LÓÐRÉTT: 1 rabb, 3 áb, 4 krikket, 5
nál, 7 forskot, 10 rot, 13 kaf, 15 anda,
16 kló, 19 tt.
Leiksýningin Pétur Gautur sem
sýnd er í Kassanum, nýja leiksviði
Þjóðleikhússins, hefur fengið ein-
róma lof gagnrýnenda og er nú
sýnd fyrir fullu húsi. Leikverkið
er eitt af meistaraverkum Henrik
Ibsen og kom út árið 1867. Tæpum
hundrað og fjörutíu árum síðar
þykir það enn ferskt og höfða jafn-
vel til nútímans.
Leikmyndin hefur vakið mikla
athygli enda leikur hún stórt hlut-
verk í því að færa Pétur Gaut til
nútímans en það er Grétar Reynis-
son sem á heiðurinn af henni. Sús-
anna Svavarsdóttir skrifaði í
umfjöllun sinni að leikmyndin
væri: „Einföld og látlaus, en snilld-
arlega hugsuð. Hvítt leikrýmið
með tjöldum sem eru dregin frá og
fyrir, verða að hvaða heimi sem er
með einkar vel úthugsaðri lýsingu;
líkhúsi, spítala, frystihúsi, heimili,
tröllabyggð, blóðvelli...,“ og að
útlitið þjónaði sýningunni í hví-
vetna.
Grétar hefur verið lengi að í
leikhúsinu en hann hóf feril sinn
sem leikmyndahönnuður árið 1980.
Þrátt fyrir það segir hann hug-
myndirnar alltaf vera jafn erfiðar
í fæðingu. „Þær spretta út frá leik-
ritinu og leikhúsinu,“ útskýrir
hann en hugmyndavinnan hófst
með nokkurra mánaða samtali
Grétars og leikstjórans, Baltasars
Kormáks. Hlutverk leikmynda-
hönnuðar er að færa sýninguna í
myndrænt form en að þessu sinni
gerist Pétur Gautur á óræðum
stað. „Ég fer vel ofan í leikritið, tek
mér góðan tíma í að vinna hug-
myndina og fer í langt ferðalag til
að sannreyna hana,“ útskýrir Grét-
ar og segir það ekki hafa verið
beint fyrir fram ákveðið að gera
„nútímauppfærslu“ af þessu
sígilda verki. „Það lá hins vegar
alveg fyrir að taka þetta safaríka
verk og kreista úr því ferskan
safa,“ segir hann og forðast að nota
skilgreininguna nútímauppfærsla.
„Hver uppsetning er nútímaupp-
færsla því eini heiðarlegi skilning-
urinn er í gegnum okkur sjálf.“
Grétar segist hafa forðast að
lesa verkið með gleraugum Ibsens
heldur notast miklu frekar við sín
eigin. „Pétur Gautur hefur margar
hliðar og nútímamaðurinn, sem
sest inn í leikhúsið, verður að geta
séð Pétur Gaut okkar tíma,“ útskýr-
ir hann. „Verkið er miklu frekar
táknrænt heldur en spegilmynd
einhvers tíma,“ bætir Grétar við
og segir að við eigum öll eitthvað í
þessum strák á sviðinu og hann í
okkur.
freyrgigja@frettabladid.is
GRÉTAR REYNISSON: HUGMYNDIR FÆÐAST EKKI AF SJÁLFUM SÉR
Safaríkt leikverk
GRÉTAR REYNISSON Leikmyndin á ekki síst stóran þátt í velgengni sýningarinnar en Grétar Reynisson á heiðurinn af henni.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Bragi Halldórsson og María Pét-
ursdóttir eignuðust litla stúlku 31.
október. Fæðingin gekk vel og
heilsast þeim að sögn Braga mjög
vel. Skötuhjúin reka búðina Rani-
mosk á Klapparstígnum og þegar
jólin hvolfdust yfir auk annarra
verkefna gerðu þau sér grein fyrir
því að eitthvað yrði undan að láta
til að þau gætu notið þess að vera
með kornabarninu, sem verður jú
bara lítið einu sinni á ævinni. Þau
hafa því ákveðið að senda búðina í
barneignarleyfi.
Bragi var staddur í búðinni
þegar Fréttablaðið náði í skottið á
honum en leyfið hefst væntanlega
á næstu mánuðum. „Við erum í
svo mörgu öðru en bara búðinni
þannig að eitthvað varð undan að
láta,“ segir Bragi. Þau ætla þó að
halda vinnustofunni opinni en
hafa pakkað búðinni niður. Ekki er
útilokað að Ranimosk verði opnuð
að nýju í nánustu framtíð en versl-
unareigandinn segir ekkert ákveð-
ið í þeim efnum. „Okkur finnst
gaman að skapa og það getur því
verið að við förum út í einhvers
konar samstarf við aðrar búðir,“
útskýrir Bragi en þau vinna sína
framleiðslu mest upp úr gömlum
hlutum.
Nafnið Ranimosk hefur vafist
fyrir mörgum og ófáir halda að
nafnið sé erlent, en Bragi upplýsir
að það sé rammíslenskt. „Það
þýðir samansafn af misónauðsyn-
legum hlutum eða skran,“ útskýr-
ir hann.
Ranimosk í barneignarleyfi
MARÍA OG BRAGI Hafa ákveðið að senda
búðina sína Ranimosk í barneignarleyfi um
óákveðinn tíma.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hópur stúdenta við Háskóla Íslands hefur boðað til mótmæla í Odda
klukan 12 í dag og stefnir að því að
koma í veg fyrir að dr. Michael Rubin,
fræðimaður við American Enterp-
rise Institute og ritstjóri Middle East
Quarterly, geti haldið fyrirlestur sinn um
stefnu Bandaríkjastjórnar í Mið-Austur-
löndum. Alþjóðamálastofnun Háskóla
Íslands stendur fyrir fyrirlestrinum en
mótmælendurnir fá ekki séð að það sé
í verkahring hennar að fá menn eins
og Rubin til þess að ávarpa íslenskt
háskólafólk. Ekki eru spöruð stóru orðin
í mótmælaboðuninni þar sem Rubin er
sagður „stríðsglæpamaður“, „lygari“ og
„baráttumaður fyrir verri heimi“ og hafi
átt „stóran þátt í að veita Bandaríkja-
sjórn slæm ráð og rangar upplýsingar
um Írak og Íraksstríðið“ og hafi þannig
stuðlað að „ófriði og mannréttinda-
brotum í heiminum“. Mótmælendurnir
telja það sverta orðstír Háskólans fái
„þessi mannfýla“ að halda fyrirlesturinn
og hvetja alla sem vettlingi geta valdið
til að mæta í Odda
og stöðva kappann.
Fyrirlesturinn er haldin
í stofu 101 í Odda og
hefst klukkan 12.15 og
má búast við marg-
menni; bæði þeim
sem vilja hlusta á
Rubin og svo þeim
sem vilja þagga
niður í honum.
Nýtt Mannlíf er komið út en þar fjallar Ragnhildur Gísladóttir söngkona
um skilnaðinn við Stuðmenn í ítarlegu
viðtali auk þess sem hún ljóstrar upp
um leyndarmál eilífrar æsku sinnar.
Annars eru Vestfirðir áberandi í blaðinu
og Halldór Jónsson, blaðamður og fyrr-
verandi bæjarfulltrúi á Ísafirði, segir frá
því þegar bæjaryfirvöld á Ísafirði reyndu
allt sem i þeirra valdi stóð til að flæma
hann úr starfi á héraðsfréttablaðinu
Bæjarins besta. Hann upplýsir meðal
annars í þessu sambandi að Halldór
Halldórsson bæjarstjóri hafi reiðst nafna
sínum fyrir neikvæðan spádóm völvu
BB. Halldór
Jónsson sver
hins vegar af
sér öll tengsl
við völvuna
óvinsælu í
Mannlífsvið-
talinu. - þþ
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI