Fréttablaðið - 30.03.2006, Side 8

Fréttablaðið - 30.03.2006, Side 8
8 30. mars 2006 FIMMTUDAGUR fylgir hverri OROBLU vöru Kaupauki Kynningar á n‡ju vorvörunum frá OROBLU Laugardag, 1. apríl kl. 13-17 í Kringlunni og Fir›inum. Fimmtudag, 30. mars kl. 14-18 á Melhaga. Föstudag, 31. mars kl. 12-15 í Austurveri og kl. 15.30-19 í Mjódd. Kynningar í Lyf og heilsu BYGGÐASTOFNUN Breytingar á Byggðastofnun voru löngu tíma- bærar, segir bæjarstjóri Ísafjarðar- bæjar, Halldór Halldórsson. Breyt- ing stofnunar í byggðasjóð undir Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem hættir að lána fé og veitir í staðinn ríkisábyrgð á bankalánum, fær jákvæð viðbrögð. Kristinn H. Gunnarsson, þing- maður Framsóknarflokksins, segir ríkisábyrgð á lánum víða hafa reynst vel, sérstaklega í Bandaríkj- unum. Færi best á því að bæta þeirri leið við aðrar sem ríkið hafi upp á að bjóða, en ekki hætta algerlega að veita fyrirtækjum lán. Hann segir að til þess að ríkisábyrgðin virki þurfi samstarf við bankana að vera gott. Þeir megi ekki nýta sér mögu- leikann á að lágmarka eigin áhættu. Hann minnir á að íslensku bankarn- ir hafi ekki lánað írska fyrirtækinu sem vildi byggja kalkþörungaverk- smiðju á Bíldudal, þó það væri fjár- sterkt. „Á endanum náði fyrirtækið sér í tryggingu fyrir lánsfé erlend- is.“ Steingrímur J. Sigfússon, for- maður vinstri grænna, segir lán- veitingahlutann hafa verið á miklu undanhaldi þar sem stofnunin hafi vart verið lánshæf vegna bágrar fjárhagsstöðu. „Það má segja að eftir því sem aðgangur að fjár- magni hafi verið greiðari hafi þörf- in fyrir hina hefðbundnu lánastarf- semi minnkað.“ Ábyrgðin geti komið að sama gagni og lánin, en útfærslan skipti máli. - gag Breytt Byggðastofnun fær víða jákvæð viðbrögð: Ábyrgðin gagnist eins og lánin BYGGÐASTOFNUN LÖGÐ NIÐUR Breytt í byggðasjóð innan Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem verður með höfuðstöðvarnar á Sauðárkróki. ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir Samfylkingunni vill vita hve mikl- ar skatttekjur ríkissjóður hafði af framlögum og styrkjum úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélag- anna síðstliðin tvö ár. Jafnframt spyr hún fjármálaráðherra hvaða stefnubreyting hafi orðið árið 2002 þegar farið var að leggja skatt á sjúkrastyrki án þess að til lagabreytinga hafi komið. Þá spyr hún einnig hvort hún telji skatt- lagninguna eðlilega og hvort fjár- málaráðherra hyggist beita sér fyrir því að breyta skattlagningu sjúkrastyrkjanna. Árni Heimir Jónsson mennta- skólakennari hefur skrifað þingmönnum bréf vegna þessa. Hann er haldinn krabba- meini og hafði í desember greitt um 106 þúsund krónur úr eigin vasa vegna lækn- isþjónustu og rannsókna. Árni Heimir sótti um styrk úr sjúkrasjóði Kennarasam- bands Íslands og fékk 53 þúsund króna styrk úr sjóðnum. Honum var gerð grein fyrir því að styrk- urinn yrði skattlagður. Í bréfinu til þingmanna segir Árni Heimir að sér finnist skattlagningin ósanngjörn en túlkun ríkisskatt- stjóra á lögunum verði ekki hagg- að. „Mér stendur að sjálfsögðu til boða að höfða mál fyrir dómstól- um til að reyna að fá þessu hnekkt en bæði er það að ekki er á vísan að róa hvort mér endist ævin til þess að standa í tímafrekum mála- ferlum og svo er hitt að kostnaður- inn verður ávallt meiri en óviss ávinningur,“ segir í bréfi Árna Heimis til þingmanna. Árni kveðst hafa fengið gífur- leg viðbrögð eftir viðtal sem við hann var tekið í Kastljósi um miðj- an mánuðinn. „Menn lýsa yfir undrun sinni og skömm á þessari skattheimtu. Ég trúi því ekki að löggjafinn hafi séð fyrir þessa túlkun á lögunum þar sem kostn- aður sjúklinga af lífsnauðsynlegri læknishjálp verður að skattstofni fyrir ríkið,“ segir í bréfinu. Árni Heimir kveðst vona að þingmenn séu sér sama sinnis og sjái sér fært að taka þátt í að breyta skatta- lögunum og taki af öll tvímæli hvað þetta varði. „Mér er ljóst að það eru miklar annir á þinginu og það stendur stutt, en það rennur úr fleiri tímaglösum þessa dag- ana,“ segir Árni Heimir í bréfi sínu til þingmanna. Svars fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardótt- ur er að vænta á næstunni. johannh@frettabladid.is Lífsnauðsynleg læknishjálp skattlögð Árni Heimir Jónsson, krabbameinssjúkur menntaskólakennari, hefur beðið þingmenn bréflega um að afnema skattlagningu sjúkrastyrkja frá stéttarfélög- um. Skattlagning sjúkrastyrkja hófst árið 2002. LÖGREGLA Tryggvi Harðarson, bæj- arstjóri á Seyðisfirði, segir að almenn óánægja sé á Seyðisfirði með löggæslu á staðnum. Hann segir lögreglu mæta seint og illa á staðinn bæði vegna slysa og afbrota. Dæmi sé um að innbrot á Seyðisfirði hafi ekki verið rann- sakað fyrr en seint og síðar meir og fólk hafi þurft að bíða lögreglu í tvær klukkustundir í vondu veðri eftir árekstur. Tryggvi telur nauð- synlegt að hafa lögregluþjón á Seyðisfirði allan sólarhringinn, annað hvort á vakt eða bakvakt. Bæjaryfirvöld hafa farið fram á fund með sýslumanni Norður- Múlasýslu vegna löggæslumála og einnig ummæla sýslumanns um að bæjaryfirvöld séu ekki marktækt stjórnvald, sem voru viðhöfð eftir að sýslumaður ákvað að taka bráðabirgðaleyfi bæjaryfirvalda til veitingastaðarins Kaffi Láru ekki gilt. Þá var allt áfengi veit- ingastaðarins flutt í fangageymsl- ur á Seyðisfirði og þær innsiglað- ar. Ástríður Grímsdóttir, sýslu- maður Norður-Múlasýslu, segir að það sé enginn munur á löggæsl- unni nú frá því sem verið hefur, fjölgað hafi verið stöðugildum á undanförnum árum en hafa verði í huga að umdæmi lögreglunnar sé afar stórt. -shá Bæjaryfirvöld á Seyðisfirði vilja fund með sýslumanni vegna löggæslumála: Segja ófremdarástand ríkja FRÁ SEYÐISFIRÐI Bæjaryfirvöld segja almenna óánægju með störf lögreglu á staðnum og hafa beðið um fund með sýslumanni til að ræða málið. Sýslumaður segir löggæsluna eins og áður. FRÉTTABLAÐIÐ/SMK LITHÁEN, AP Grænfriðungar slettu málningu í gær á nokkra togara sem lágu við festar í Klaipeda- höfn í Litháen, og sögðu togarana vera á svörtum lista Evrópusam- bandsins, Norðaustur-Atlants- hafs-fiskveiðinefndarinnar og Noregs fyrir ólöglegar veiðar. Togararnir tólf sigla undir rúss- neskum, georgískum og kambód- ískum fánum. Grænfriðungar sögðu Litháen brjóta lög Evrópusambandsins með því að þjónusta togarana og ásökuðu yfirvöld um lélegt aðhald sem gerði veiðiþjófum kleift að landa ólöglegum afla. Litháísk yfirvöld neituðu ásökununum og sögðu Grænfriðunga ekkert vald hafa yfir því hvaða skip legðust að þeirra bryggjum. - smk Óeirðir í Litháen: Grænfriðungar sletta málningu FRAMKVÆMDIR Börn á leikskól- anum Hjalla í Hafnarfirði tóku í gær fyrstu skóflustunguna að nýrri byggingu skólans. Leikskól- inn Hjalli hefur verið starfrækt- ur síðan 1989 og byggir starfið á Hjallastefnunni svonefndu sem Margrét Pála Ólafsdóttir hefur þróað. Þrír leikskólar og einn grunnskóli starfa nú eftir Hjalla- stefnunni. 130 börn eru nú á Hjalla en þegar nýja byggingin verður tekin í gagnið í október verður þar rúm fyrir um 170 börn. -bþs Fyrsta skóflustungan: Leikskólinn Hjalli stækkar GLATT Á HJALLA Börnin glöddust þegar fyrsta skóflustungan var tekin í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Verkfall Verkamenn í nokkrum þýskum verksmiðjum lögðu niður störf í gær í einu af mörgum skammvinnum verkföllum sem fyrirhuguð eru þar í landi til að reyna að knýja fram hærri laun verkamanna. Þessi skyndiverkföll eru algeng aðferð verkalýðsfélaga í Þýskalandi til að fá kröfum framgengt, án þess að hafa meiri háttar áhrif á framleiðslu verksmiðjanna. ÞÝSKALAND ÁRNI HEIMIR JÓNSSON MENNTASKÓLAKENNARI „Mér er ljóst að það eru miklar annir á þinginu og það stendur stutt, en það rennur úr fleiri tímaglösum þessa dagana,“ JÓHANNA SIGURÐ- ARDÓTTIR SAM- FYLKINGUNNI SJÚKRAHÚS Í bréfinu til þingmanna segir Árni Heimir að sér finnist skattlagningin ósanngjörn en túlkun ríkisskattstjóra á lögunum verði ekki haggað. Abramoff dæmdur Jack Abramoff, sem lengi var einn áhrifamesti talsmað- ur hagsmunahópa í Washington, var í gær dæmdur ásamt viðskiptafélaga sín- um í fimm ára og tíu mánaða fangelsi fyrir svik í tengslum við kaup þeirra á spilavítisbátaflota á Flórída árið 2000. BANDARÍKIN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.