Fréttablaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 16
16 30. mars 2006 FIMMTUDAGUR
Lacetti
Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8-12
Sími 590 2000 - www.benni.is
Opnunartilboð!
DVD ferðaspilari
fylgir öllum nýjum
Chevrolet bílum
Chevrolet gæði - frábært verð !
Vel búinn Lacetti st. CDX 1,8 l
á aðeins kr. 1.799.000,-
Bílasalan Ós umboðsaðili á Akureyri
TÓNLISTARHÁTÍÐ Afríkanskur tónlistarmað-
ur leikur á hljóðfæri á tónlistarhátíð sem
fram fór nýverið í Sansibar, en sú hátíð er
ein sérstæðasta tónlistarhátíð heims, enda
helguð hefðbundinni afríkanskri tónlist.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPÁNN, AP Leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar á Spáni hefur lýst yfir
stuðningi við forsætisráðherra
Spánar, í viðræðum hans við
aðskilnaðarhreyfingu Baska, ETA.
Yfirlýsingin kom á óvart, því
Mariano Rajoy, leiðtogi stærsta
íhaldsflokks Spánar, hefur hingað
til verið mjög gagnrýninn á stefnu
Zapateros varðandi Baska og
Baskahéruðin. En eftir fund með
Zapatero á mánudag tilkynnti
Rajoy blaðamönnum stuðning
sinn, en sagðist jafnframt hafa
farið fram á að Zapatero kanni
áreiðanleika yfirlýsingar tals-
manna ETA, en þeir boðuðu varan-
legt vopnahlé í síðustu viku. - smk
Stjórnarandstaðan á Spáni:
Zapatero nýtur
stuðnings
ÚKRAÍNA, AP Háttsettir flokksfélag-
ar Viktors Júsjenkós Úkraínufor-
seta skora nú á hann að jafna
ágreining sinn við Júlíu Tím-
ósjenkó, fyrrverandi bandamann
sinn í „appelsínugulu byltingunni“,
svo þau geti myndað saman nýja
ríkisstjórn.
Saman gætu flokkarnir þrír,
sem stóðu að byltingunni árið 2004,
hæglega myndað ríkisstjórn sem
nyti meirihlutastuðnings á þinginu.
Þetta eru flokkur forsetans, sem
heitir Okkar Úkraína og hafði hlot-
ið 84 þingsæti þegar talin höfðu
verið nærri 95 prósent atkvæða,
flokkabandalag Júlíu Tímósjenkó
sem hefur hlotið 131 þingsæti, og
Sósíalistaflokkurinn sem er með 34
þingsæti. Saman ráða þessir flokk-
ar yfir 249 þingsætum, en aðrir
flokkar á þingi eru aðeins tveir, það
er Héraðaflokkur Viktors Janúkov-
itsj, fyrrverandi forseta, með 180
þingsæti, og Kommúnistaflokkur-
inn með 21 þingsæti. Júlía Tím-
ósjenkó hefur hvatt til þess að app-
elsínugulu byltingarflokkarnir taki
höndum saman á ný, en sjálf krefst
hún þess að verða forsætisráðherra
í nýrri ríkisstjórn. Júsjenkó forseti
rak hana úr embætti forsætisráð-
herra núna í september síðastliðn-
um, og bæði hann og flokksfélagar
hans virðast tregir til að ganga að
þessu skilyrði hennar.
Flokksfélagar Júsjenkós sendu
honum hins vegar í gær þau skila-
boð að hann ætti að reyna allt til
þess að forðast stjórnarmyndun
með Janúkóvitsj sem er hliðhollur
Rússum og færi að öllum líkindum
ekki jafn hratt og hinir flokkarnir í
að styrkja tengslin við Vestur-
Evrópu. -gb
Byltingarflokkarnir
taki höndum saman
Samherjarnir úr „appelsínugulu byltingunni“ í Úkraínu þurfa að jafna ágrein-
ing sinn. Júsjenkó forseti hvattur til að mynda ekki stjórn með Janúkovitsj.
FYRRVERANDI SAMHERJAR Júlía Tímósjenkó situr á spjalli við Viktor Júsjenkó forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VARNARMÁLIN Umhverfisvernd-
arsinnar hafa áhyggjur af meng-
un á varnarsvæðinu á Suðurnesj-
um, sérstaklega olíu- og
PCB-mengun en það er hættulegt,
þrávirkt, lífrænt efni úr olíu sem
getur verið virkt í jarðvegi í
árhundruð. Áhyggjur beinast
einnig að virkum sprengjum og
skothylkjum á gömlu skotæfinga-
svæði.
Þorvaldur Örn Árnason, for-
maður umhverfisnefndarinnar í
Vogum, segir að ógerningur sé að
hreinsa sum svæðin þó að það
hafi verið reynt þar sem umferð
sé hvað mest. „Maður er hálf-
hræddur við að reka skóflu ofan í
jörðina þegar maður er að gróð-
ursetja tré því að það er mikið af
virkum sprengjum ennþá á stóru
svæði,“ segir hann.
Árni Finnsson, framkvæmda-
stjóri Náttúruverndarsamtaka
Íslands, segir að sérstaklega hafi
menn áhyggjur af gömlum rusla-
haugum á varnarsvæðinu, til
dæmis við Sölunefnd varnarliðs-
eigna. Hreinsun geti orðið geysi-
lega dýr og því séu menn nú að
byrja að safna gögnum.
Árni bendir á að verklagsregl-
ur hafi breyst hjá bandaríska hern-
um á síðustu áratugum. Upp úr
1970 hafi menn uppgötvað að PCB
leystist ekki upp í jarðvegi og í
framhaldi af því hafi herinn farið
að taka meiri ábyrgð. Víða um
heim séu menguð svæði eftir
bandaríska herinn. - ghs
ÁRNI FINNSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI
NÁTTÚRUVERNDARSAMTAKA ÍSLANDS.
Umhverfisverndarsinnar hafa áhyggjur af mengun á varnarsvæðinu:
Mikið af virkum sprengjum
BJARTASTA VONIN Á ENGLANDI
200 ÞÚSUND
MIÐAR
– 45 NÝ LÖG TILBÚIN
– MEÐ STÍLISTA ATOMIC KITTEN Í VINNU
– ÓTRÚLEGA SKJÓTUR FRAMI
SELDIR
DV 2x15 29.3.2006 21:03 Page 1