Fréttablaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 22
30. mars 2006 FIMMTUDAGUR22
Um síðustu helgi fór fram
í Rangárvallarsýslu og
Vestur-Skaftafellssýslu
víðtækasta almannavarna-
æfing sem um getur hér á
landi. Þá var munurinn á
milli hins raunverulega og
hins hugsanlega ekki öllum
sjáanlegur en um 1.500
manns tóku þátt í þessum
sýndarleik þar sem gert var
ráð fyrir því að gosið hefði
úr Kötlu.
Blaðamaður og ljósmyndari
Fréttablaðsins voru í Vík í Mýrdal
á laugardag og fylgd- ust
með æfingunni sem þar
fór fram. Um klukkan
tíu voru leikarar sendir
af stað í hlutverki ferða-
manna sem yrðu í hættu
staddir í nágrenni Mýr-
dalsjökuls þegar flóðið
færi af stað. Íbúar Víkur og
nágrennis fóru heldur ekki var-
hluta af þessu ástandi því stór
hluti þeirra býr á hættusvæðum
og því verður að rýma hús þeirra.
Léku ferðamenn og mótþróafulla
íbúa
Finnbogi Jónasson og Gústaf Inga-
son úr Lögregluskólanum voru í
hlutverki leikara og áttu að fara á
jeppa upp að Hafursey. Það var þó
ekki heiglum hent þar sem ófærð
var utan þjóðvegar. Þeir komust
þó langleiðina þangað upp eftir
allt saman eftir mikinn þrauta-
akstur. Kollegar þeirra Stefán
Sveinsson og Davíð Þór Óskarsson
voru einnig í slíkum hlutverkum
en þeirra leið niður að Hjörleifs-
höfða var mun greiðfær-
ari. Aðrir leikar-
ar voru dreifðir
um svæðið og biðu björgunar eftir
að hafa komist á tilætlaðan stað.
Hlutverk leikara voru þó misjöfn.
Til dæmis fékk Ágúst Sigurjóns-
son það hlutverk að leika íbúa á
hættusvæði með mótþróa sem
beita þyrfti kænsku og festu til að
koma til skráningar. Mikið fór
fyrir honum í fjöldahjálparstöð
þar sem hann fór hörðum orðum
um þá meðferð sem hann fékk.
Í ímyndaðri neyð
„Þetta er frá Bergrisanum. Við
erum staddir í neyð vestur við
Hjörleifshöfða. Bíllinn okkar er
fastur og allt er að fara á kaf,“
sagði Stefán þegar hann hringdi í
Neyðarlínuna. Þeim var ráðlagt að
koma sér upp á Hjörleifshöfða.
Bjart var í veðri en vindasamt en í
þessum
sýndarleik
átti veðrið að
vera öllu verra. Einnig átti
gjósku og sandi að þyrla
upp en þetta æfingaveð-
ur, eins og það er kall-
að, barst ekki Land-
helgisgæslunni og
einhverjir fjarskiptaörðu-
gleikar komu upp svo leikararnir
urðu að bíða um klukkustund á
Hjörleifshöfða. Fóru þeir aftur að
bíl og hringdu þaðan í Neyðarlín-
una að nýju. Samkvæmt sýndar-
leiknum var bíllinn kominn á flot
þegar þyrlan sótti mennina svo á
sandinn tæpum tveimur klukku-
stundum eftir að fyrst var hringt.
Bæjarbúar tóku raskinu vel
Um klukkan 11 byrjuðu björgun-
arsveitarmenn að ganga á milli
húsa á hættusvæðum í Vík og
nágrenni til að fá íbúa til að yfir-
gefa hús sín. Blaðamaður slóst í
för með Gunnari Bjarka Guð-
laugssyni, sem bar sig kurteis-
lega enda tóku íbúar honum vel
og urðu við kalli hans hið snar-
asta. Fóru þeir í fjöldahjálparstöð
til skráningar. Þeir sem blaða-
maður talaði við virtust vera
fegnir æfingunni og virtu það
sem svo að verið væri að búa að
öryggi þeirra. Þó var ljóst að all-
nokkrir hefðu brugðið sér af bæ
enda kom Gunnar Bjarki óvíða að
tómum kofanum. Að sögn Víðis
Reynissonar æfingastjóra tóku
þó 180 íbúar þátt í æfingunni
þennan dag, sem var mun meiri
þátttaka en búast hafði mátt við.
Ýmislegt þarf að laga
Á fjöldahjálparstöðinni sem Rauði
krossinn hafði komið upp í Vík var
ys og þys en þær Elsa Vilmundar-
dóttir og Áslaug Einarsdóttir sem
þar sáu um að skrá íbúa sögðu að
þeir hefðu brugðist skjótt við og
mesta álagið hefði verið á um
fjörutíu mínútna kafla.
Víðir var ánægður í lok æfing-
ar og sagði það markmið hafa tek-
ist að láta reyna á kerfið og hefðu
nokkrir agnúar komið í ljós sem
vinna þyrfti í. „Helst var það vinn-
an með meðferð upplýsinga sem
var ekki nægilega hnitmiðuð og
skjót,“ segir hann. „Það þyrfti því
að gefa fólkinu sem vinnur á
stjórnstöðvunum frekari tækifæri
til að þjálfa sig.“
LEIKARI Í HLUTVERKI MÓTÞRÓAFULLS ÍBÚA
Leikarar fengu misjöfn hlutverk og lét
Ágúst Sigurjónsson öllum illum látum á
fjöldahjálparstöðinni líkt og honum var
ætlað að gera. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FRÉTTASKÝRING
JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON
jse@frettabladid.is
Æfðu viðbrögð vegna Kötlugoss
ÞYRLAN KEMUR MÖNNUM TIL HJÁLPAR Þeir Stefán Sveinsson og Davíð Þór Óskarsson
sýna hér þyrluflugmönnum vindáttina með því að halda á lofti spjaldi sem bundið er
í snæri. Þeir fengu að bíða mun lengur en áætlað hafði verið. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÍBÚAR Í SKRÁNINGU Í nógu var að snúast hjá Elsu Vilmundardóttur og
Áslaugu Einarsdóttur í skráningunni á fjöldahjálparstöð Rauða krossins.
Ekki stóð það þó lengi því íbúar voru fljótir til. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
TF-SIF Flugmenn
þyrlunnar höfðu í nógu
að snúast á æfingunni.
Menntamálaráðuneytið
Viðbótarnám fyrir grunnskólakennara
vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalnámsskrá
Í maí 2006 hefst viðbótarnám í íslensku fyrir grunnskólakennara vegna
fyrirhugaðra breytinga á aðalnámskrá. Námið verður með eftirfarandi hætti.
• Aðfaranám, maí 2006.
Meðal annars verður farið yfir drög að aðalnámskrá og nemendum þátttakendum kynnt kennsluumhverfi á vef.
Staðbundnar lotur verða haldnar í öllum landsfjórðungum og þeim fylgt eftir með fjarnámi.
19. og 20. maí á Akureyri og í Reykjavík.
26. og 27. maí á Ísafirði og Egilsstöðum.
• Aðfaranám, haust 2006 (3e).
Meðal annars verður hugað að undirbúningi háskólanáms í íslensku og rætt um kennsluaðferðir og -tækni.
September 2007
• Viðbótarnám, 2007-2009.
Þátttakendur geta valið námskeið í íslensku í Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri
eða Háskólanum í Reykjavík og stundað þau í fjarnámi.
Menntamálaráðuneytið mun greiða kennslukostnað og innritunargjöld.
Umsóknir um þátttöku berist í síðasta lagi 28. apríl 2006 til Símenntunarstofnunar Kennaraháskóla Íslands sem
hefur umsjón með skráningu og þátttöku. Upplýsingar um skráningu og námið eru veittar á vef Símenntunar:
http://simennt.khi.is og í síma 563 3980.