Fréttablaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 44
30. mars 2006 FIMMTUDAGUR44
bio@frettabladid.is
Fyrir fjórtán árum birtist
tálkvendi á hvíta tjaldinu
að hætti gömlu „rökkur-
myndanna“. Hún átti ekki
í erfiðleikum með að slá
ryki í augu karlmanna með
ögrandi framkomu sinni og
kynþokka.
Ófáir stóðu á öndinni þegar Basic
Instinct var frumsýnd fyrir sex-
tán árum. Leikkonan Sharon Stone
fór hamförum í hlutverki glæpa-
sagnahöfundarins Catherine Tra-
mell sem vafði lögreglumanninum
Nick Curran um fingur sér. Tra-
mell var nútímaútgáfa af konun-
um sem leiddu Bogart og Cagney í
hverja gildruna á fætur annarri,
kynþokkinn allsráðandi enda leik-
stjórinn Paul Verhoeven ekki
þekktur fyrir að slá neitt af í þeim
málum. Breski leikstjórinn
Michael Caton-Jones hefur tekið
við taumunum en margir leyfa sér
að efast um að hin 48 ára gamla
Stone nái upp sama þokka og fyrir
fjórtán árum síðan.
Rithöfundurinn Tramell er flutt
til London eftir ævintýrin í San
Francisco en er ekki lengi að koma
sér í klandur hjá lögreglunni.
Íþróttamaður deyr og Tramell er
umsvifalaust grunuð um verknað-
inn enda átti hún í ástarsambandi
við kappann. Sálfræðingurinn
Michael Glass er fenginn til að
aðstoða Scotland Yard og „neyð-
ist“ hann til að sálgreina Tramell,
sem ætíð tekur glöð á móti karl-
kyninu. Gegn betri vitund og ráð-
leggingum vina fellur Glass fyrir
hinni þokkafullu Tramell.
Sharon Stone hefur margoft
dásamað hlutverkið í Basic Instinct
enda skaust leikkonan hátt upp á
stjörnuhimininn með framúrskar-
andi leik. „Konum hefur verið
kennt að þær eiga að láta undan til
að fá það sem þær vilja,“ sagði
Stone. „Karlmenn eru miklu meira
blátt áfram,“ bætir hún við. „Cath-
erine er á hinn boginn fyrsta kven-
persónan sem ákveður að segja við
sjálfa sig: Ég er valdamikil, áhuga-
verð, gáfuð og sterk. Ég get sagt
hvað sem er og gert hvað sem er
og ætla að gera það í herbergi fullu
af körlum,“ útskýrir Stone sem
hefur mært bæði leikstjórann,
Michael CatonJones, og mótleik-
ara sinn, David Morrissey. „Hann
er ótrúlega hæfileikaríkur,“ sagði
Stone um Morrissey.
Af öðrum leikurum má nefna
David Thewlis en hann þekkja ein-
hverjir úr kvikmyndinni Naked
sem sló eftirminnilega í gegn fyrir
mörgum árum. Þá má til gamans
geta að knattspyrnuhetjan Stan
Collymore leikur lítið hlutverk í
myndinni en hann gat sér frægð
sem framherji hjá knattspyrnulið-
inu Liverpool. - fgg
Ógnareðlið vaknar á ný
Löng hefð er fyrir myndum sem
gera grín að öðrum kvikmyndum
og hafa þær notið nokkurra vin-
sælda. Í Date Movie fá rómantísku
myndirnar sinn skerf en sömu
menn og stóðu að Scary Movie
skrifa handritið að þessari mynd.
Julia Jones er að leita eftir ást-
inni í sínu lífi og hittir loks breska
sjarmörinn Grant Funkydoder.
Þau þurfa þó að ganga í gegnum
sína þrautagöngu sem er reyndar
að mestu byggð á hugmyndum frá
vinsælustu ástarmyndum síðustu
ára. Meðal þeirra sem koma við
sögu eru My Big Fat Greek Wedd-
ing, Meet the Parents og The
Wedding Planner auk þess sem
My Best Friend’s Wedding kemur
töluvert við sögu.
Alyson Hannigan leikur hina
ástleitnu Juliu en hún var í Ameri-
can Pie-leikhópnum sem sló í gegn
með fyrstu myndinni og það er
síðan Adam Campbell sem leikur
enska kyntáknið.
FREISTINGAR Grant þarf að standast ofurkynþokkafulla vinkonu sína sem ætlar að fá hann
aftur til sín.
Ástin
er grín
Ljósir lokkar, flottur líkami og
hæfileikar á leiklistarsviðinu nægðu
Sharon Stone ekki lengst framan
af á sínum ferli enda uppskar hún
eingöngu hlutverk í svokölluðum
B-myndum. Lék eiginkonur þekktra
hasarleikara og nægir þar að nefna
Nico með Steven Seagal og skelfing-
una Action Jackson.
Skjótt skipast þó veður í lofti.
Stone landaði hlutverki á móti
Arnold Schwarzenegger í Total Recall
og sat nakin fyrir í Playboy, sem
mörgum þótti djörf ákvörðun hjá
32 ára gamalli leikkonu en áhættan
borgaði sig. Paul Verhoeven setti sig
í samband við Stone og fékk hana
til að leika í hinni mjög svo erótísku
Basic Instinct. Myndin sló umsvifa-
laust í gegn og yfirheyrsluatriðið
fræga er fyrir löngu orðið sígilt í
kvikmyndasögunni.
Stone reyndi í fyrstu að halda
þeirri kynþokkufullu ímynd sem
henni hafði áskotnast með Sliver en
henni var slátrað af gagnrýnendum
og ekki skánuðu hlutirnir mikið með
The Intersection, The Specialist og
kúrekamyndinni The Quick and the
Dead.
Stone gafst hins vegar kjörið tæki-
færi til að setja ofan í óvildarmenn
sína þegar Martin Scorsese fékk hana
til að leika ofurdópaða fegurðardís í
Casino. Leikkonan sýndi að hún hafði
hæfileika til annars en að klæða sig
úr fötunum og uppskar að launum
Golden Globe-verðlaunin fyrir besta
leik í aðalhlutverki og var þar að auki
tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Ekki bara tálkvendi
SHARON STONE Í upphafi ferils
síns neyddist hún til að láta sér
nægja smáhlutverk í B-mynd-
um en varð heimsfræg eftir
hlutverk sitt í Basic Instinct.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
I‘d have to be pretty
stupid to write a book
about killing and then
kill him the way I
described in my book. I‘d
be announcing myself as
the killer. I‘m not stupid.
Catherine Tramell útskýrir í yfirheyrslu af
hverju hún hefði ekki drepið Mr. Boz í
kvikmyndinni Basic Instinct.
Kvikmyndin Eight Below er endur-
gerð japönsku myndarinnar Nan-
kyoku Monogatari frá árinu 1983.
Myndin er sannsöguleg og fjall-
ar um starfsmann rannsóknar-
stöðvar vísindastofnunar Banda-
ríkjanna á Suðurskautslandinu,
Jerry Shepard (Paul Walker), sem
er sáttur við lífið og tilveruna.
Notar hann frítíma sinn til að
skoða villta náttúruna ásamt sleða-
hundunum sínum átta og félaga
sínum Charlie Cooper (Jason
Biggs) sem starfar einnig á rann-
sóknarstöðinni.
Þegar þeir fá það verkefni að
finna loftstein frá Merkúr á Suð-
urskautinu versnar í því. Mikið
óveður skellur á og hætta þarf við
förina. Þegar starfsmenn rann-
sóknarstöðvarinnar þurfa að yfir-
gefa staðinn þurfa þeir að skilja
hundana eftir. Spurningin er: geta
hundarnir lifað einir af á suður-
skautinu?
Paul Walker fer með aðalhlut-
verkið í Eight Below en hann sló í
gegn í hasarmyndinni The Fast
and the Furious. Fer hann jafn-
framt með stórt hlutverk í Flags
of Our Fathers sem var tekin upp
hér á landi síðasta sumar. Jason
Biggs úr American Pie-myndun-
um fer einnig með stórt hlutverk
ásamt Bruce Greenwood, sem m.a.
lék nýverið í Capote og The
World´s Fastest Indian.
Leikstjóri myndarinnar er
Frank Marshall sem síðast stýrði
Congo árið 1995. Áður hafði hann
gert köngulóarmyndina Arachno-
phobia og Alive.
Átta hundar í hættu
PAUL WALKER Aðal-
leikari Eight Below er
Paul Walker, sem sló
í gegn í myndinni The
Fast and the Furious.
ST0NE OG MORRISSEY Leika saman í framhaldsmyndinni um tálkvendið Catherine Tramell
en þar heillar hún breska karlmenn upp úr skónum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
> Ekki missa af...
V for Vendetta. Myndin hefur hlotið
einróma lof gagnrýnenda og loksins
ná Wachowski-bræðurnir sér á strik
eftir frekar háðulegan endi á Matrix
- þríleiknum. Natalie Portman, John
Hurt og Hugo Weaving fara fyrir fríðum
leikhópi og þrátt fyrir
varnaðarorð nær
myndin að fanga
þann anda sem býr
í myndasögunum.
SMS
LEIKUR
!
TAKTU
ÞÁTT!
VINNINGAR VERÐA AFHENDIR HJÁ BT SMÁRALIND. KÓPAVOGI. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. 99 KR/SKEYTIÐ.
FRUMSÝND 30. MARS
11. HVER VINNUR!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO Á DATE MOVIE
DVD MYNDIR • PEPSI • GEISLADISKAR
BOLIR OG MARGT FLEIRA